Morgunblaðið - 13.09.2004, Qupperneq 1
2004 MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HAUKAR KOMNIR Í MEISTARADEILD EVRÓPU / B12
ELÍN Anna Steinarsdóttir, leik-
maður ÍBV, mun í vetur spila
knattspyrnu á Ítalíu. Hún heldur
á morgun til Napólí í skóla og
stendur til boða að spila með
Napoli eða Decimum Lazio en
hefur ekki gert upp hug sinn
hvort félagið hún velur. Decimum
Lazio er eitt af bestu liðum Ítalíu
og varð síðast meistari árið 2002
en Napoli leikur í 3. deild.
Fyrst ætlar hún að taka sér frí í
þrjár vikur, enda framundan nám
í ítölsku og síðan byggingaverk-
fræði, en hún verður ytra í 7 mán-
uði og mætir því aftur í vor.
„Mér líst mjög vel á að spila
þarna. Ég var á Ítalíu í einn og
hálfan mánuð í fyrra og líkaði
mjög vel,“ sagði Elín Anna sem
heldur til Ítalíu á morgun.
Hún er 21 árs og er frá Borg-
arnesi og lék þar með strákalið-
um Skallagríms í yngri flokk-
unum. Síðan spilaði hún með ÍA,
Val og Breiðabliki í úrvalsdeild-
inni, áður en hún gekk til liðs við
ÍBV fyrir þetta tímabil. Elín Anna
hefur spilað einn A-landsleik, 15
leiki með 21 árs landsliðinu og 18
leiki með yngri landsliðunum.
Elín Anna
til Napoli
eða Lazio
VILHELM Gauti Bergsveinsson,
fyrirliði handknattleiksliðs HK,
hefur lagt skóna á hilluna, um
sinn að minnsta kosti. Vilhelm
hefur átt við slæm meiðsli í öxl að
ræða og á vef HK er haft eftir
honum að hann hafi ákveðið að
gefa bæði líkama og sál tækifæri
á að jafna sig. Vilhelm Gauti
missti af seinni hluta síðasta tíma-
bils vegna meiðslanna en tók síð-
an við þjálfun liðsins og stjórnaði
því á lokaspretti Íslandsmótsins.
Vilhelm
Gauti ekki
með HK
ARNÓR Atlason, handknattleiks-
maður hjá Magdeburg í Þýskalandi,
þarf að gangast undir smávægilega
hjartaaðgerð á næstunni. Á dög-
unum kom í ljós að hann er með
meðfæddan hjartagalla og þarf því
að gangast undir aðgerð.
„Þetta uppgötvaðist þegar hann
fór í hjartalínurit hjá Magdeburg.
Læknunum fannst það ekki alveg
eðlilegt þannig að hann var sendur
í röntgenmyndatöku og síðan til
hjartasérfræðings sem telur að um
galla í hjartaloku sé að ræða,“
sagði Atli Hilmarsson, faðir Arnórs
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
„Þetta hefur ekkert háð strákn-
um og hann aldrei fundið neitt fyrir
þessu. Hann æfir á fullu með félag-
inu og spilaði í gær með B-liðinu og
gerði átta mörk þannig að það er í
rauninni ekkert að honum. Það er
samt fínt að þetta kemur í ljós á
meðan hann er svona ungur og
sprækur,“ sagði Atli.
Hann sagði að Arnór færi til sér-
fræðings í Leipzig á mánudaginn
kemur og trúlega færi hann þá
beint í aðgerðina. „Arnór segir að
hann verði einn dag á sjúkrahúsi og
síðan fjóra daga heima. Það er eitt-
hvert op sem þarf að loka og þetta
er ekki stór aðgerð eins og sést af
því hversu stuttan tíma hann þarf
til að jafna sig,“ sagði Atli.
Arnór í aðgerð vegna hjartagalla
Morgunblaðið/Sigfús
Eyjamenn kunna að fagna og hér gleðjast þeir yfir einu marka sinna í gær með miklum hama-
gangi. Fjallað er um næstsíðustu umferð deildarinnar á B2, B3, B4, B5 og B7.
Einu sinni áður hafa fleiri áhorf-endur séð handboltaleik en það
var þegar 35 þúsund manns fylltu
Georgia Dome höllina í Atlanta í
Bandaríkjunum á Ólympíuleikunum
1996 og sáu Króata leggja Svía í úr-
slitaleik.
Logi er í góðum félagsskap hjá
Lemgo, ásamt kjarnanum úr þýska
landsliðinu. Markus Baur skoraði 8
mörk fyrir Lemgo og Christian
Schwarzer 7 en að Loga viðbættum
skoruðu þessir þrír öll mörk liðsins
nema fimm. Stefan Lövgren, Svíinn
reyndi, skoraði 10 mörk fyrir Kiel og
þeir Frode Hagen og Christian Zeitz
gerðu 7 mörk hvor.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði
7 mörk fyrir Essen sem vann nauman
sigur á Göppingen á heimavelli, 28:27.
Andrius Stelmokas skoraði 4 mörk
fyrir Göppingen og Jaliesky Garcia 3.
Alfreð Gíslason stýrði Magdeburg
til stórsigurs á útivelli gegn Wil-
helmshavener, 39:28. Gylfi Gylfason
skoraði 4 mörk fyrir heimaliðið.
Hvorki Sigfús Sigurðsson né Arnór
Atlason voru í leikmannahópi Magde-
burg.
Patrekur Jóhannesson, fyrirliði
Minden, skoraði 2 mörk þegar lið
hans steinlá á heimavelli gegn meist-
urum Flensburg, 20:33.
Alexander Petersson skoraði 4
mörk fyrir nýliða Düsseldorf sem
töpuðu fyrir Gummersbach á heima-
velli, 21:25. Markús Máni Mich-
aelsson leikur ekki með Düsseldorf í
bili en hann lenti í umferðarslysi á
dögunum.
Logi með 6 í heims-
metsleik í Schalke
LOGI Geirsson byrjaði vel með stórliði Lemgo í þýsku 1. deildinni í
handknattleik í gær, en lið hans hóf þó vertíðina á tapi á heimavelli.
Logi skoraði 6 mörk þegar Lemgo tók á móti Kiel á hinum magnaða
AufSchalke-knattspyrnuleikvangi í Gelsenkirchen, frammi fyrir
30.925 áhorfendum, sem er heimsmet á leik félagsliða. Kiel hafði
betur, 31:26, og var með undirtökin í leiknum allan tímann.