Morgunblaðið - 13.09.2004, Page 3
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 B 3
FÓLK
HEIMIR Guðjónsson, fyrirliði
FH-liðsins í knattspyrnu, komst í
gær í sjötta sætið yfir leikjahæstu
leikmenn efstu deildar frá upphafi
hér á landi. Heimir lék þá sinn 240.
leik í deildinni og fór upp fyrir
Þormóð Egilsson, fyrrum fyrirliða
KR. Fyrir ofan Heimi eru Birkir
Kristinsson (307), Gunnar Oddsson
(294), Sigurður Björgvinsson (267),
Andri Marteinsson (246) og Júlíus
Tryggvason (243).
JULIAN Johnsson, miðjumaður-
inn öflugi, gat ekki leikið með
Skagamönnum gegn Víkingi í gær.
Julian meiddist í rófubeini í þegar
Færeyingar léku við Frakka í und-
ankeppni HM í Þórshöfn síðasta
miðvikudag.
UNNAR Örn Valgeirsson lék á
ný með Skagamönnum í gær eftir
langa fjarveru vegna meiðsla en
hann lék síðast með ÍA í annarri
umferð Íslandsmótsins, í maí. Ell-
ert Jón Björnsson var hins vegar
ekki með ÍA vegna meiðsla og
Andri Karvelsson var ekki með
þar sem hann er farinn erlendis í
nám.
SAMTALS voru skoruð 24 mörk
í leikjunum fimm í 17. og næstsíð-
ustu umferð úrvalsdeildar karla í
knattspyrnu í gær, eða tæplega
fimm mörk að meðaltali í leik. Öll
tíu liðin skoruðu og þrjú þeirra,
Grindavík, FH og ÍA, náðu að
skora fjögur mörk. Allan Borg-
vardt úr FH og Helgi Pétur Magn-
ússon úr ÍA skoruðu sína þrennuna
hvor, og báðir skoruðu þar með
sína fyrstu þrennu í efstu deild.
Borgvardt hefur nú skorað 6 mörk
í síðustu þremur mörkum FH en
Helgi Pétur, sem skoraði fyrsta
mark sitt í efstu deild gegn Kefla-
vík í 16. umferð, er þá kominn með
fjögur mörk í tveimur leikjum.
ÁRNI Gautur Arason, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, fagnaði
stórsigri á sínum gamla heimavelli
í Þrándheimi á laugardaginn þegar
hann lék þar í marki Vålerenga
gegn Rosenborg. Lið Vålerenga
sigraði óvænt, 4:1, og er nú í þriðja
sæti norsku úrvalsdeildarinnar,
fimm stigum á eftir Rosenborg
sem heldur forystunni þrátt fyrir
skellinn.
HANNES Þ. Sigurðsson lék síð-
ustu 20 mínúturnar með Viking
sem fékk dýrmæt stig í fallbarátt-
unni með því að sigra Sogndal, 4:2.
GYLFI Einarsson spilaði allan
leikinn með Lilleström sem steinlá
gegn Odd Grenland á heimavelli,
0:4.
SKAGAMAÐURINN Jóhannes
Harðarson lék síðustu 15 mínút-
urnar með Start sem vann Bryne,
2:1, í norsku 1. deildinni. Start er á
hraðri siglingu upp í úrvalsdeildina
en liðið er með sjö stiga forystu á
Aalesund og er 13 stigum á undan
Sandefjord sem er í þriðja sæti.
KA lék án Atla Sveins Þórarins-sonar, sem verið hefur besti
leikmaður liðsins í sumar, en hann
var í leikbanni auk
þess sem Elmar
Dan Sigþórsson var
meiddur. Í lið KR
vantaði Gunnar Ein-
arsson sem einnig var í leikbanni en
Bjarki Gunnlaugsson var í byrjun-
arliði KR í fyrsta sinn í sumar en
hann er að stíga upp úr erfiðum
meiðslum.
KA-menn byrjuðu leikinn mun
betur og hélt boltanum vel innan
liðsins og þeir áttu fyrsta færi leiks-
ins en Kristján Finnbogason varði
auðveldlega laust skot Örlygs
Helgasonar. Fimm mínútum síðar
fékk Sigurvin Ólafsson gott færi
fyrir KR en skot hans úr góðu færi
fór yfir. KA tók verðskuldaða for-
ystu með marki Þorvalds Sveins
Guðbjörnssonar eftir hornspyrnu
Dean Martin en Jökull Elísabetar-
son var nálægt því að bjarga á
marklínu en náði ekki að stýra bolt-
anum frá. Eftir markið hafði KA-
leikinn í hendi sér og náðum heima-
menn í KR ekki að ógna marki
þeirra að ráði. Sóknarleikur KR-
inga var máttlaus og mestallan fyrri
hálfleik sótti liðið aðeins á þremur
mönnum.
Það var hins vegar allt annað KR
lið sem mætti til leiks í síðari hálf-
leiks. Strax frá fyrstu mínútu press-
uðu KR-ingar stíft að marki KA og
komust norðanmenn, sem ætluðu að
halda fengnum hlut, varla fram yfir
miðju. Ágúst Gylfason og Arnar
Gunnlaugsson fengu nokkur góð
skotfæri sem ekki nýttust áður en
KR-ingar skoruðu tvö mörk með
tveggja mínútna millibili úr föstum
leikatriðum. Fyrst skoraði Akureyr-
ingurinn Kristján Örn Sigurðsson
með skalla eftir hornspyrnu og
Bjarni Þorsteinsson kom KR yfir
með skalla eftir sendingu frá öðrum
Akureyringi, Guðmundi Benedikts-
syni. Það má því segja að Þórsarar
hafi verið örlagavaldar KA í leikn-
um því bæði Kristján Örn og Guð-
mundur léku með Þór frá Akureyri
á sínum yngri árum. KR-ingar voru
nær því að bæta við fleiri mörkum
heldur en KA að jafna og fór Guð-
mundur Benediktsson illa með gott
færi eftir glæsilegan undirbúning
Elmars Bjarnasonar. Það var svo
Arnar Gunnlaugsson sem fékk síð-
asta færi leiksins en skalli hans eftir
frábæra sendingu Elmars fór
framhjá markinu.
Eins og áður sagði er staða KA
orðin mjög erfið en liðið lék skín-
andi vel í fyrri hálfleik en bakkaði
fullmikið í þeim síðari og þá gengu
KR-ingar á lagið. Ronni Hartvig og
Hreinn Hringsson voru bestir í liði
KA en í liði KR hélt Kristján Örn
Sigurðsson fyrrum félaga sínum í
Þór, Jóhanni Þórhallssyni, í skefjum
allan tímann. Þá átti Elmar Bjarna-
son frábæra innkomu í liði KR og
ljóst er að þarna er á ferð einn efni-
legasti leikmaðurinn á landinu.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH, og Framarinn Andri Fannar Ottósson eigast við í Kaplakrika.
Vonlítil
staða
hjá KA
VONIR KA um að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni dvínuðu í gær þeg-
ar liðið tapaði fyrir KR, 2:1. Liðið mætir FH í lokaumferðinni norðan
heiða og verður að vinna þann leik og um leið að treysta á að Víkingur
og Fram tapi sínum leikjum. KR-ingar eru hins vegar sloppnir við fall
eftir sigurinn en eftir fremur slakan fyrri hálfleik sýndi liðið allar sínar
bestu hliðar og sýndu KR-ingar stuðningsmönnum sínum gömlu
góðu meistarataktana sem skort hefur í sumar.
Magnús Geir
Eyjólfsson
skrifar
SKAGAMENN þurfa að sigra Eyja-
menn með fimm marka mun í loka-
umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu
til að ná af þeim öðru sætinu og kom-
ast í UEFA-bikarinn á næsta ári. Þrjú
stig skilja liðin að og markatala ÍBV
er mun betri en hjá ÍA.
Að öðrum kosti væri best fyrir
Skagamenn að tapa leiknum, treysta
á að ÍBV yrði Íslandsmeistari og að
FH ynni síðan bikarkeppnina. Þá færi
ÍBV í forkeppni Meistaradeildar Evr-
ópu og FH og ÍA í UEFA-bikarinn.
Verði FH Íslandsmeistari yrðu það
hins vegar KA, Keflavík og HK sem
myndu slást um að fylgja ÍBV eða ÍA í
UEFA-bikarinn. Það þessarra
þriggja liða sem yrði bikarmeistari
myndi hreppa hnossið, eða þá það lið,
HK eða Keflavík, sem kæmist í úr-
slitaleik gegn FH.
Sæti í Intertoto-keppninni fellur
síðan í hlut ÍA eða Fylkis, ef sú
keppni verður þá enn við lýði næsta
sumar.
ÍA þarf fimm
marka sigur
KR 2:1 KA
Leikskipulag: 4-5-1 Landsbankadeild karla,
19. umferð
KR-völlur
Sunnudaginn 12. september
2004
Aðstæður:
Hægur vindur, blautur og háll
völlur
Áhorfendur: 1123
Dómari:
Gísli H. Jóhannsson,
Keflavík, 5
Aðstoðardómarar:
Einar Sigurðsson,
Ingvar Guðfinnsson
Skot á mark: 10(4) - 5(2)
Hornspyrnur: 6 - 5
Rangstöður: 4 - 9
Leikskipulag: 4-3-1-2
Kristján Finnbogason
Jökull I. Elísabetarson
Petr Podzemsky
Kristján Örn Sigurðsson M
Bjarni Þorsteinsson M
Sölvi Davíðsson M
(Theodór Elmar Bjarnason 62.) M
Kristinn Magnússon
Ágúst Gylfason
Sigurvin Ólafsson M
Bjarki B. Gunnlaugsson
(Gunnar Kristjánsson 65.)
Arnar B. Gunnlaugsson M
Sándor Matus
Haukur I. Sigurbergsson
Ronni Hartvig M
Steinn V. Gunnarsson
Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson M
Örlygur Þór Helgason
Örn Kató Hauksson M
Pálmi Rafn Pálmason M
Dean Martin
Jóhann Þórhallsson
Hreinn Hringsson M
0:1 (27.) Dean Martin tekur hornspyrnu frá vinstri. Hann gefur háa sendingu inn
á miðjan vítateig KR þar sem Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson skallar
boltann í fjærhornið.
1:1 (74.) Arnar Gunnlaugsson tekur hornspyrnu frá hægri og sendir boltann inn
í vítateig KA. Ágúst Gylfason skallar boltann til Kristjáns Arnar Sig-
urðssonar sem skallar hann af krafti í þaknetið.
2:1 (76.) KR fær aukaspyrnu við vítateigshornið vinstra megin. Guðmundur
Benediktsson gefur fasta sendingu á nærstöng þar sem Bjarni Þor-
steinsson hendir sér fram og skallar boltann í þaknetið.
Gul spjöld: Kristján Örn Sigurðsson, KR (69.) fyrir brot. Þorvaldur Sveinn Guðbjörns-
son, KA (89.) fyrir brot.
SIGURVINI Ólafssyni,
leikmanni KR, var létt
eftir sigurinn gegn KA
enda liðið búið að
bjarga sér frá falli.
„Jú, þetta er nokkur
léttir enda var mögu-
leiki á að við myndum
lenda í bullandi fallslag
en það var ekkert ann-
að að gera en að klára
þetta. Mér fannst við
betri í fyrri hálfleik og
í seinni hálfleik. Þeir
nýttu þetta eina færi
sem þeir fengu. Ég er
ánægður með að liðið
fór ekki í baklás eftir
markið en maður fékk
smáfiðring í magann
eftir að þeir skoruðu.
En það var líka frá-
bært að fá áhorfendur
með sér því það er erf-
itt að vera stuðnings-
maður KR í dag. Við
vissum að þeir myndu
bakka í síðari hálfleik
og við vorum að dæla
boltanum inn í vítateig
og keyra okkur í gegn
og það gekk mjög vel.
Við erum með stóran
hóp og Elmar er einn
efnilegasti leikmaður
landsins og hann sýndi
það í dag,“ sagði Sig-
urvin.
Erfitt að vera stuðnings-
maður KR í dag
Arnar og Sigurvin
fagna marki.