Morgunblaðið - 13.09.2004, Síða 5
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 B 5
„VIÐ fengum urmul af færum í
fyrri hálfleik og spiluðum lengst
af vel,“ sagði Þorlákur Árnason,
ósáttur þjálfari Fylkis, í leikslok.
Hann vandaði Jóhannesi Valgeirs-
syni, dómara leiksins, ekki kveðj-
urnar þegar hann ræddi um fram-
göngu hans.
„Eyjamennirnir spiluðu gróft
og komust upp með það og það er
með ólíkindum miðað við hvernig
leikurinn var að við skyldum enda
leikinn einum færri. Það áttu
tveir til þrír leikmenn ÍBV að
fjúka út af með rautt en dómarinn
verndaði þá og þeir stjórnuðu
þessu gjörsamlega, áhorfendurnir
og leikmenn ÍBV.
Við vissum þetta fyrir leikinn,
þeir eru góðir í þessu og þeim
tókst þetta í dag. Við lékum miklu
betri fótbolta en þeir skoruðu
fleiri mörk,“ sagði þjálfarinn.
Gríðarleg vonbrigði
Þorlákur segir næsta leik gegn
KR vera leik upp á stoltið. „Það
er búið að vera rosalegt basl á
okkur með meiðsli og annað. Úr-
slitin í dag eru okkur gríðarleg
vonbrigði en það er bara næsti
leikur.“
Þorlákur segir FH klárlega
vera með besta liðið. „Við erum
ekki með lið á við þá en við erum
með svipað lið og ÍBV og ÍA en
það hefur verið svolítill klaufa-
gangur á okkur í sumar.“
Dómarinn verndaði
leikmenn Eyjaliðsins
FÓLK
VIJAY Singh fagnaði sínum sjö-
unda sigri á PGA mótaröðinni í
gær þegar hann lagði Mike Weir á
Opna kanadíska mótinu. Til að
knýja fram sigur varð að fara í
þriggja holu umspil og þar hafði
Singh, efsti maður heimslistans,
betur.
FYRSTU holu umspilsins, 18.
holu vallarins par fimm, léku þeir
báðir á fugli, en Weir var nær því
að setja púttið fyrir erni í.
NÆSTA hola, 17. holan par fjór-
ir, var þeim erfiðari því báðir fengu
þeir skolla á hana.
ÁTJÁNDA holan varð fyrir val-
inu sem þriðja umspilsholan og því
í þriðja sinn þann daginn sem þeir
félagar léku hana. Teighögg Weirs
lenti í þykku grasi utan brautar en
Singh var á miðri braut og setti
annað höggið í flatarkant en Weir
á miðja braut. Þriðja högg hans
lenti hins vegar í vatninu á meðan
Singh setti boltan rúman metra frá
holu og tvípúttaði en Weir missti
sitt pútt.
SINGH náði fugli á síðustu hol-
unni og lék því á tveimur undir í
gær á meðan Weir lék á einu undir
og þar með voru þeir jafnir á 275
höggum eða níu höggum undir pari
vallarins.
JOE Ogilvie varð í þriðja sæti,
tveimur höggum á eftir Singh og
Weir, en hann lék á 69 höggum í
gær. Síðan komu fjóri kylfingar
jafnir í 4.–7. sæti.
JUSTIN Rose átti frábæran
lokahring á Opna kanadíska golf-
mótinu, lék þá á 63 höggum sem
dugði honum í 4.–7. sæti en hann
var í 34. fyrir síðasta daginn. Tom
Lehman lék líka vel síðasta daginn,
kom inn á 64 höggum og fór úr 30.
sæti og að hlið Rose.
PADRAIG Harrington frá Ír-
landi sigraði á PGA móti í golfi
sem fram fór í Þýskalandi um
helgina. Hann lék hringina fjóra á
13 höggum undir pari vallarins en
annar varð Nick O’Hern frá Ástr-
alíu þremur höggum á eftir. Harr-
ington lék fyrsta hringinn á 66
höggum, þann næsta á 75, þá kom
flottur hringur hjá honum þar sem
hann notaði aðeins 64 högg og í
gær lauk hann leik á 70 höggum.
KAPPINN byrjaði ekki vel í
gær, lék fyrstu tvær holurnar báð-
ar á skolla, einu yfir pari. En áður
en hann hafði lokið við níu fyrstu
holurnar hafði hann krækt sér í
þrjá fugla og á síðari níu fékk hann
þrjá til viðbótar og einn skolla.
PARIÐ á Gut Lärchenhof vell-
inum er 72 og er hann 6.662 metra
langur. Harrington lék sem sagt á
átta undir pari þriðja daginn, eða
jafn vel og Graeme McDowell frá
Norður-Írlandi gerði annan daginn
en hann kom þá inn á 64 höggum.
Hann endaði í þriðja sæti ásamt
Raphaël Jacquelin frá Frakklandi.
MAGNÚS Gylfason, þjálfari
ÍBV, var að vonum sáttur við
sína menn í leikslok. „Við héld-
um alltaf áfram og misstum
ekki þolinmæðina. Við börð-
umst eins og ljón og upp-
skárum eftir því og ég er rosa-
lega sáttur við mína leikmenn.“
Hann segir sína menn þó
hafa fengið allt of mörg spjöld í
leiknum. „Kannski við flokk-
umst sem grófir en við berj-
umst á fullu og það hefur kost-
að okkur allt of mörg gul spjöld
í sumar. Það voru eitt eða tvö
ruglspjöld í dag og við verðum
að gera eitthvað í þessu.“
Það vantaði þrjá lykilmenn í
ÍBV-liðið í leiknum, Matt Garn-
er og Bjarnólfur Lárusson tóku
út leikbann og Gunnar Heiðar
Þorvaldsson er farinn til
Halmstad í Svíþjóð.
„Er sáttur“
Leikurinn í Eyjum einkenndistaf miklu roki og hörðum
tæklingum. Gestirnir spiluðu með
vindinn í bakið í
fyrri hálfleik og
voru miklu sterkari.
Strax á áttundu
mínútu munaði
minnstu að Björgólfur slyppi í
gegnum vörn Eyjamanna en Birk-
ir Kristinsson var vel vakandi í
marki Eyjamanna og kom út á
hárréttu augnabliki.
Þegar fimmtán mínútur voru
liðnar af leiknum fengu Fylkis-
menn aukaspyrnu nálægt miðju
vallarins, Guðni Rúnar Helgason
tók spyrnuna og eitthvað mis-
reiknaði Birkir knöttinn sem hafn-
aði í stöng Eyjamarksins og fór
þaðan í fangið á Birki. Þrátt fyrir
að Fylkismenn hafi verið aðgangs-
harðari í leiknum gekk þeim illa að
skapa sér færi. Það dró til tíðinda
á 34. mínútu þegar Björgólfur
Takefusa fékk boltann inn í víta-
teig Eyjamanna, Tryggvi Bjarna-
son fór í hann, Björgólfur féll við
og Jóhannes Valgeirsson, umdeild-
ur dómari leiksins, dæmdi víta-
spyrnu. Taldi að Tryggvi hafi ýtt á
bak Björgólfs.
Eyjamenn mótmæltu og enginn
meira en Tryggvi sem uppskar að
lokum gula spjaldið. Björgólfur
tók spyrnuna sjálfur og skoraði
með föstu skoti í hægra hornið,
Birkir var í boltanum en náði ekki
að verja.
Þannig var staðan í leikhléi og
hlutirnir snerust við frá fyrstu
mínútu síðari hálfleiks. Eyjamenn
tóku öll völd á vellinum, Einar
Hlöðver Sigurðsson fékk gott færi
eftir hornspyrnu á 50. mínútu en
skotið var yfir. Hann var síðan aft-
ur á ferðinni fjórum mínútum síð-
ar en Bjarni Þórður Halldórsson
varði vel skalla Einars. Fátt mark-
vert gerðist fyrir framan mörk lið-
anna næstu mínútur en það var
þeim mun meira að gera hjá Jó-
hannesi dómara sem lyfti gula
spjaldinu ellefu sinnum í leiknum.
Eyjamenn fengu vítaspyrnu á
71. mínútu þegar brotið var á Atla
Jóhannssyni, Fylkismenn mót-
mæltu og vildu meina að brotið
hafi verið fyrir utan teig. Dóm-
arinn var viss í sinni sök og Mark
Schulte skoraði af öryggi úr
spyrnunni.
Eyjamenn gerðu þá breytingu á
sínu liði, Magnús Már Lúðvíksson
kom þá inn fyrir Einar Hlöðver
Sigurðsson. Hann var ekki búinn
að vera inni á vellinum nema í um
30 sekúndur þegar hann fékk gula
spjaldið fyrir brot. Fylkismenn
misstu boltann strax, Mark
Schulte brunaði upp völlinn, Guðni
Rúnar Helgason braut á honum og
fékk sitt annað gula spjald í leikn-
um og þar með rautt. Mark tók
spyrnuna og varamaðurinn, Magn-
ús Már Lúðvíksson, stökk hæst í
teig Fylkis og skallaði í bláhornið,
óverjandi fyrir Bjarna í markinu.
Róðurinn því erfiður fyrir Fylki,
marki undir, manni færri og á
móti austan strekkingsvindi. Þeir
reyndu þó hvað þeir gátu, sóttu
hart að marki ÍBV en varnarmenn
ÍBV létu engan bilbug á sér finna.
Þegar fjórar mínútur voru komnar
fram yfir venjulegan leiktíma inn-
siglaði besti leikmaður vallarins,
Ian Jeffs, sigur ÍBV þegar hann
skoraði eftir góðan undirbúning
Einars Þórs Daníelssonar. Eyja-
menn því enn með í baráttunni um
titilinn og annað sætið í deildinni
sem gefur þátttökurétt í Evrópu-
keppni á næsta ári.
Morgunblaðið/Sigfús
Hart sótt að Bjarna Halldórssyni markverði Fylkis í Eyjum í gær.
Eyjamenn
enn með í
baráttunni
LEIKMENN ÍBV gefa ekkert eftir í baráttunni um Íslandsmeistaratit-
ilinn en þeir sigruðu Fylki í Vestmannaeyjum í gær 3:1. Þar með
misstu Fylkismenn enn eitt árið af titlinum á lokasprettinum. Að-
eins tvö lið geta nú orðið Íslandsmeistarar, ÍBV og FH, sem hefur
pálmann í höndunum fyrir síðustu umferðina.
Sveinn
Þórðarson
skrifar
ÍBV 3:1 Fylkir
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeild karla,
19. umferð
Hásteinsvöllur
Sunnudaginn 12. september
2004
Aðstæður:
Austan hvassviðri.
Áhorfendur: Um 400
Dómari:
Jóhannes Valgeirsson,
KA, 2
Aðstoðardómarar:
Sigurður Óli Þórleifsson,
Eyjólfur Finnsson
Skot á mark: 12(6) - 15(6)
Hornspyrnur: 8 - 7
Rangstöður: 2 - 2
Leikskipulag: 4-4-2
Birkir Kristinsson M
Bjarni Geir Viðarsson
Tryggvi Bjarnason M
Páll Þ. Hjarðar
Mark Schulte M
Einar Hlöðver Sigurðsson M
(Magnús Már Lúðvíksson 71.)
Andri Ólafsson
Ian Jeffs MM
Atli Jóhannsson M
Einar Þór Daníelsson
Steingrímur Jóhannesson
Bjarni Halldórsson
Kristján Valdimarsson
(Albert B. Ingason 79.)
Helgi Valur Daníelsson M
Þórhallur Dan Jóhannsson M
Gunnar Þór Pétursson
Guðni Rúnar Helgason
Ólafur Ingi Skúlason M
Finnur Kolbeinsson M
Ólafur Valdimar Júlíusson
Sævar Þór Gíslason
Björgólfur Takefusa M
0:1 (34.) Jóhannes Valgeirsson dómari dæmdi vítaspyrnu á Tryggva Bjarnason
er hann og Björgólfur Takefusa áttust við í teignum. Björgólfur skoraði
sjálfur úr vítaspyrnunni.
1:1 (71.) Brotið var á Atla Jóhannssyni og dæmd var vítaspyrna sem Mark
Schulta skoraði úr.
2:1 (74.) Mark Schulta tók aukaspyrnu og sendi inn á vítateiginn þar sem
Magnús Már Lúðvíksson stökk hæst og skoraði með skalla í bláhorn-
ið.
3:1 (90.) Einar Þór Daníelsson átti fína sendingu á Ian Jeffs sem gulltryggði sig-
ur Eyjamanna.
Gul spjöld: Helgi Valur Daníelsson, Fylkir (11.) fyrir bort Einar Þór Daníelsson, ÍBV (23.)
fyrir brot Tryggvi Bjarnason, ÍBV (34.) fyrir mótmæli Finnur Kolbeinsson,
Fylkir (36.) fyrir mótmæli Guðni Rúnar Helgason, Fylkir (38.) fyrir brot
Bjarni Geir Viðarsson, ÍBV (63.) fyrir brot Ian Jeffs, ÍBV (64.) fyrir mótmæli
Magnús Már Lúðvíksson, ÍBV (72.) fyrir brot Andri Ólafsson, ÍBV (78.)
fyrir brot Mark Schulte, ÍBV (82.) fyrir að tefja
Rauð spjöld: Guðni Rúnar Helgason, Fylkir (73.) fyrir brot