Morgunblaðið - 13.09.2004, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 B 7
ÞAR sem Albert Sævarsson hætti
að leika með Grindvíkingum þegar
tveir leikir voru eftir brugðu þeir á
það ráð að fá hinn gamalreynda
Þorstein Bjarnason til að taka upp
hanskana að nýju en Þorsteinn er
orðinn 47 ára.
„Þetta var ekkert mál, það var
aðallega erfitt að fá skrokkinn til að
hlýða. Ég átti að taka eitt af mörk-
unum og hefði gert það á venjuleg-
um degi,“ sagði Þorsteinn eftir leik-
inn gegn Keflavík. Hann sagðist
vera tilbúinn að leika í síðustu um-
ferðinni en sagði það á valdi stjórn-
ar Grindavíkur hvort þeir vildu
leyfa yngri strákunum að spreyta
sig. En ætlar hann halda áfram að
spila?
„Ég veit nú ekki hvort ég ætti að
demba mér í þetta, held að ég láti
einn leik á ári duga,“ sagði Þor-
steinn glaðlega að lokum.
„Mér fannst við vera að spila fín-
an bolta, alla vega til að byrja með
en það virðist vera þannig að þegar
við komumst yfir þá förum við sjálf-
krafa í eitthvert kerfi og föllum
alltof aftarlega á völlinn og það er
eitthvað sem við þurfum að laga,“
sagði Haraldur Freyr Guðmunds-
son, fyrirliði Keflvíkinga, en hann
skoraði tvö mörk í leiknum. „Ég er
sáttur við það að við skoruðum þrjú
mörk og komumst tvisvar yfir en
við vinnum ekki leiki ef við fáum á
okkur fjögur mörk og varnarleik-
urinn var alls ekki nógu góður. Við
verðum bara að berja okkur saman
fyrir síðasta leikinn, við höfum dal-
að nokkuð í síðustu leikjum en ætl-
um okkur sigur næst, ekki spurn-
ing,“ bætti Haraldur við.
„Þetta er gríðarlegur léttir, að
vera búnir að bjarga sér og vinna
Keflvíkingana – það þykir nú ekki
leiðinlegt. Þetta var hraður og op-
inn leikur en ég held að við höfum
verið sterkari lengst af, fengum
fleiri opin færi og vorum óheppnir
að vera ekki fleiri mörkum yfir í
hálfleik. Við vorum of værukærir í
vörninni og gáfum þeim tvö mörk
eftir aukaspyrnur sem var kannski
óþarfi. En í heildina er ég sáttur,“
sagði Guðmundur Valur Sigurðs-
son, þjálfari Grindavíkur.
Þorsteinn Bjarnason tekur upp hansk-
ana – erfitt að fá skrokkinn til að hlýða
Keflavík 3:4 Grindavík
Leikskipulag: 4-5-1 Landsbankadeild karla,
19. umferð
Keflavíkurvöllur
Sunnudaginn 12. sept. 2004
Aðstæður:
Skýjað, nær logn, 12 stig,
völlur þungur og blautur.
Áhorfendur: 772
Dómari:
Garðar Örn Hinriksson,
Þróttur R., 4
Aðstoðardómarar:
Svanlaugur Þorsteinsson,
Pjetur Sigurðsson
Skot: 24(10) - 17(13)
Hornspyrnur: 3 - 5
Rangstöður: 6 - 1
Leikskipulag: 4-4-2
Magnús Þormar
Guðjón Árni Antoníusson
Stefán Gíslason M
Haraldur Freyr Guðmundsson M
Ólafur Ívar Jónsson
Hólmar Örn Rúnarsson M
Jónas Guðni Sævarsson
Hörður Sveinsson
(Guðmundur Steinarsson 73.)
Ingvi Rafn Guðmundsson
Scott Ramsay M
Þórarinn Brynjar Kristjánsson M
Þorsteinn Bjarnason
Paul McShane M
Óðinn Árnason
Guðmundur A. Bjarnason
Ray Anthony Jónsson
Momir Mileta M
Sinisa Valdimar Kekic M
Eysteinn Húni Hauksson
Óskar Örn Hauksson
Alfreð Elías Jóhannsson M
(Sveinn Þór Steingrímsson 87.)
Grétar Ó. Hjartarson MM
1:0 (18.) Ray Anthony Jónsson sendi boltann í átt að eigin marki, Hólmar Örn
Rúnarsson komst inní sendinguna, Guðmundur Andri Bjarnason náði
af honum boltanum en sendi hann rakleitt í eigið mark, framhjá Þor-
steini Bjarnasyni.
1:1 (21.) Momir Mileta tók hornspyrnu frá hægri, Óskar Örn Hauksson var við
fjærstöngina, boltinn sveif yfir alla í markteignum og Óskar þurfti að-
eins að nikka honum í markið með höfðinu.
1:2 (26.) Momir Mileta tók hornspyrnu frá vinstri, beint að stönginni nær þar
sem Sinisa Valdimar Kekic var mættur og stangaði knöttinn í netið.
2:2 (52.) Brotið var á Þórarni Kristjánssyni hægra megin við vítateigsboga
Grindavíkur. Haraldur Freyr Guðmundsson tók aukaspyrnuna og skor-
aði beint með þrumuskoti í þverslána og inn, óverjandi fyrir Þorstein.
3:2 (59.) Scott Ramsay tók aukaspyrnu frá vinstri og sendi fyrir mark Grindavík-
ur. Haraldur Freyr var mættur í vítateignum og fleytti boltanum aftur
fyrir sig með höfðinu og í markið.
3:3 (61.) Momir Mileta sendi háa sendingu innfyrir vörn Keflvíkinga þar sem
Grétar Ó. Hjartarson tók við boltanum og lyfti honum laglega yfir
Magnús í marki Keflavíkur.
3:4 (85.) Grétar átti stungusendingu innfyrirvörn Keflvíkinga, sem töldu Alfreð
Elías Jóhannsson rangstæðan. Hann tók við boltanum og smellti hon-
um upp í markhornið hægra megin.
Gul spjöld: Sinisa Valdimar Kekic, Grindavík (65.) fyrir brot
Rauð spjöld: Engin
Mörg skörð voru í liðunum aðþessu sinni en Milan Stefán
Jankovic, þjálfari Keflavíkur, gat
ekki stjórnað liði
sínu vegna leikbanns
eins og miðjumaður-
inn sterki Zoran
Ljubicic. Grindvík-
ingar söknuðu fyrirliða síns, Óla
Stefáns Flóventssonar, og Gests
Gylfasonar sem báðir voru í leik-
banni. Orri Óskarsson var meiddur
og Albert Sævarsson markmaður
hættur að leika með liðinu, stöðu
hans tók hinn þaulreyndi Þorsteinn
Bjarnason sem einnig tók upp hansk-
ana fyrir liðið í síðasta leik liðsins í
fyrra.
Þrátt fyrir forföll í liðunum var
leikurinn hin mesta skemmtun og
þrátt fyrir að völlurinn hafi verið
blautur og leikmenn átt erfitt með að
fóta sig var hraðinn mikill og mörkin
hefðu hæglega getað orðið fleiri.
Mikið var um færi og markskot voru
á fjórða tug.
Keflvíkingar komust yfir á 18.
mínútu eftir sjálfsmark en aðeins
átta mínútum síðar höfðu gestirnir
jafnað og komist yfir – Óskar Örn
Hauksson og Sinisa Valdimar Kekic
skoruðu eftir hornspyrnur, þar sem
vörn Keflvíkinga var alveg úti á
þekju. Alfreð Jóhannsson, framherji
Grindvíkinga, fékk einnig dauðafæri
í tvígang eftir að Magnús Þormar, í
marki Keflavíkur, hélt ekki skotum
Grétars Hjartarsonar á 22. og 23.
mínútu. Grindvíkingar voru mun
beittari í sókninni og voru aftur lík-
legir til afreka á 39. mínútu eftir
hættulega aukaspyrnu frá Momir
Mileta sem Magnús sló út í teig en
skot Sinisa Kekic fór í varnarmann
og framhjá. Þrátt fyrir mörg færi
undir lok hálfleiksins var staðan í
leikhléi 1:2.
Keflvíkingar komu einbeittir inn í
síðari hálfleik og tók þá ekki nema
sjö mínútur að jafna metin. Það gerði
varnarmaðurinn og fyrirliðinn, Har-
aldur Freyr Guðmundsson. Eftir
jöfnunarmarkið virkaði vörn Grind-
víkinga hálf óörugg og kom það ekki
á óvart þegar Haraldur kom heima-
mönnum yfir á 59. mínútu. Aðeins
tveimur mínútum síðar jöfnuðu
Grindvíkingar aftur, þar var að verki
Grétar Hjartarson eftir glæsilega
sendingu Momir Mileta sem hafði þá
lagt upp öll mörk Grindvíkinga. Stað-
an orðin 3:3 og aðeins farið að draga
af leikmönnum, sem fá hrós skilið
fyrir prúðmannlega leikinn leik, að-
eins eitt gult spjald fékk að líta dags-
ins ljós. Engu líkara var en að leik-
menn ætluðu að una sáttir með
jafnteflið þegar Grindvíkingar stálu
sigrinum fimm mínútum fyrir leiks-
lok þegar Alfreð Jóhannsson skoraði.
Heimamenn voru allt annað en sáttir
með markið og vildu meina að Alfreð
hafi verið kolrangstæður. Markið
stóð og Grindvíkingar fögnuðu sigri.
Grétar Hjartarson skoraði mark
og lagði upp annað. Hann var að von-
um ánægður í leikslok. „Það er frá-
bært að koma hingað til Keflavíkur
og tryggja sætið í deildinni hér. Völl-
urinn var mjög blautur og gerði okk-
ur erfitt fyrir en bæði lið gerðu sitt
besta til að spila góðan fótbolta og
mér þótti það ganga vel. Við fórum
þreyttir og ánægðir af leikvelli í dag,
og þó svo að við höfum fengið á okkur
þrjú mörk skiptir það ekki svo miklu
máli þegar við skorum fjögur,“ sagði
Grétar.
Grindavík úr
hættu eftir sjö
marka leik
BOÐIÐ var upp á markaveislu í Keflavík í gærdag þegar Grindvík-
ingar sigruðu Keflvíkinga 4:3 í hröðum og spennandi leik þar sem
úrslitin réðust með umdeildu marki Grindvíkinga fimm mínútum
fyrir leikslok, þar sem Keflvíkingar töldu að um rangstöðu hafi verið
að ræða. Með sigrinum tryggðu Grindvíkingar, sem voru í fallbar-
áttu fyrir leikinn, sæti sitt í efstu deild að ári og fögnuðu leikmenn
því innilega í leikslok. Þegar ein umferð er eftir óleikin eru liðin jöfn
að stigum í sjötta og sjöunda sæti með 21 stig.
Andri
Karl
skrifar
Morgunblaðið/Sverrir
s Sæmundsdóttir, fyrirliði ÍBV, kyssir bikarinn. „Þetta var algjör draum-
r fyrir okkur stelpurnar sem hafa verið lengi í fótboltanum og farið allan
kalann, verið í botnbaráttu, tapað með tveggja stafa tölu og vinna nú
loksins alvörubikar,“ sagði Íris eftir leikinn.
yrirliði Vals, Íris Andrésdóttir, sagði
synd að taka ekki líka þennan bik-
„Sigur hefði getað endað báðum
gin en ÍBV fékk færi í lokin og nýtti
,“ sagði Írís eftir leikinn. „ÍBV-liðið
jaði af meiri krafti en það hefur ver-
ín stemning í liði okkar alla vikuna,
in ofurspenna eða slíkt. Það kom
ur heldur ekki á óvart í leik ÍBV. Við
um að þær myndu koma í leikinn af
fti en við brugðumst ekki við því
ax, það tók okkur hálftíma að ná fót-
u í leiknum og þegar við gerðum það
paði það færi en því miður gáfum við
færi á okkur og það nýtti Eyjaliðið
Við breyttum um leikkerfi og það
strax að virka, við náðum tökum á
miðjunni en fram að því vorum við að-
allega í því að sparka boltanum sem
lengst fram. Við fórum að spila betur en
því miður vildi boltinn inn hjá okkur í
dag. Við vorum langt frá því að sýna
okkar besta í dag og synd að enda sum-
arið svona. Við getum samt borið höf-
uðið hátt, höfum átt frábært sumar en
ÍBV er með mjög gott lið og hafði betur
í dag.“
Hélt að við værum tilbúnar
„Þetta var ekki nógu góður leikur hjá
okkur,“ sagði Guðbjörg Gunnarsdóttir,
markvörður Vals, eftir leikinn. „Ég veit
ekki hvað gerðist, það var allt í fínu
standi fyrir leikinn og ég hélt að við
værum tilbúnar en við náðum ekki að
skapa okkur færi eins og við höfum gert
undanfarið, töpuðum boltanum of oft á
miðjunni svo að ÍBV átti meira í leikn-
um. Það var sárt að tapa þessum leik
því mér finnst við í raun besta liðið í ár,
höfum spilað mjög vel í sumar og höfð-
um ekki tapað leik þar til kom að þess-
um og sárt að það skyldi einmitt vera
bikarúrslitaleikur.“ Guðbjörg getur vel
við sinn leik unað því hún sá til þess að
Eyjastúlkur skoruðu ekki úr nokkrum
opnum færum. „Í fyrri markinu var ég
með puttana á boltanum og sárt að gera
ekki betur en seinna markið kemur þeg-
ar allir eru komnir í sóknina.“
Þær voru betri
byrjuðum leikinn mjög illa en
mumst svo ágætlega inn í hann en
aliðið einfaldlega vildi frekar en
vinna í dag og þetta var ekki einn
okkar bestu leikjum í sumar,“
ði Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari
s, eftir leikinn. „Þær voru rosaleg
ngraðar í sigur, sem sást mjög
inilega og betra liðið vann. Þetta
einfaldlega sanngjarnt og ég vil
ka Eyjastelpum til hamingju, þær
vel að sigrinum komnar. Við erum
ög sáttar við okkar Íslandsmeist-
titil þó að það hefði auðvitað verið
man að vinna líka hér í dag.“
KNATTSPYRNA