Morgunblaðið - 13.09.2004, Page 8
ÍÞRÓTTIR
8 B MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HEIÐAR Helguson og Brynjar
Björn Gunnarsson léku allan leikinn
með Watford sem gerði jafntefli við
Brighton, 1:1, í ensku 1. deildinni í
knattspyrnu á laugardaginn. Brynj-
ar Björn var nálægt því að skora
með hörkuskoti af 25 metra færi en
boltinn straukst við stöngina.
ÍVAR Ingimarsson lék allan leik-
inn með Reading sem tapaði fyrir
Derby County, 2:1.
BJARNI Guðjónsson var vara-
maður hjá Coventry og kom ekki við
sögu þegar lið hans tapaði, 3:0, fyrir
Leeds.
JÓHANNES Karl Guðjónsson var
ekki í leikmannahópi Leicester sem
vann Rotherham á útivelli, 2:0.
AUÐUN Helgason lék allan leik-
inn með Landskrona sem gerði jafn-
tefli, 1:1, við Elfsborg í sænsku úr-
valsdeildinni í gær. Pétur H.
Marteinsson lék ekki með Hamm-
arby vegna meiðsla þegar lið hans
tapaði, 1:0, í nágrannaslag gegn
Djurgården. Sölvi Geir Ottesen var
ekki í leikmannahópi Djurgården.
HELGI Sigurðsson lék allan leik-
inn með AGF sem tapaði fyrir Vi-
borg á heimavelli í dönsku úrvals-
deildinni í gær, 1:2.
GRAEME Souness, hinn nýi
knattspyrnustjóri Newcastle, hefur
gert miklar breytingar á starfs-
mönnum hjá Newcastle. Hann tekur
með sér frá Blackburn þá Dean
Saunders, Alan Murray og Phil
Boersma. Þess má geta að Tommy
Craig, sem þjálfari KR 1977, mun
halda starfi sínu sem þjálfari vara-
liðs Newcastle.
FLORENTINO Perez, forseti
Real Madrid, sagði í gær í viðtali við
The Sundey Mirror að hann hafi hug
á að fá Steven Gerrard, fyrirliða Liv-
erpool, til að leika með Real. „Steven
Gerrard er leikmaður sem ég kann
að meta – myndi falla vel inn í leik
okkar.“ Þess má geta að Perez
keypti tvo enska landsliðsmenn í
sumar – Michael Owen frá Liver-
pool og Jonathan Woodgate frá
Newcastle, en fyrir er Davild Beck-
ham. Nafn Gerrard er nú komið upp
eftir að Real mistókst að fá Patrick
Vieira frá Arsenal.
BRASILÍSKI miðjumaðurinn
Thiago Motta, 22 ára, leikmaður
Barcelona, verður frá keppni í
minnst sex mánuði. Hann meiddist á
hné í leik með Barcelona gegn
Sevilla á laugardaginn, 2:0. Liðbönd
á vinstri hné slitnuðu. Góðar fréttir
frá Bercelona eru að meiðsli varn-
armannsins Carles Puyol eru ekki
eins alvarleg og haldið var í fyrstu –
hann mun vera í leikmannahópi liðs-
ins fyrir Evrópuleik gegn Celtic í
Glasgow á morgun. Þá mun Ronald-
inho, sem gat ekki leikið gegn
Sevilla vegna meiðsla á ökkla, vera
tilbúinn fyrir leikinn gegn Celtic.
FÓLK
MAREL Baldvinsson lagði upp
sigurmark Lokeren sem sigr-
aði La Louviere, 1:0, í belgísku
1. deildinni í knattspyrnu í
gær. Hann átti þá góða fyr-
irgjöf og Tailson skallaði af
öryggi í mark La Louviere á
16. mínútu leiksins. Áður hafði
Marel lagt upp gott færi fyrir
Hendrix en markvörður gest-
anna varði.
Rétt fyrir hlé fékk Esp-
artero, leikmaður La Louviere,
rauða spjaldið fyrir að slá
Arnar Þór Viðarsson í andlitið
en hann varð ekki fyrir
meiðslum.
Arnar Þór og Arnar Grét-
arsson léku báðir allan leikinn
með Lokeren en Marel var
skipt af velli á 65. mínútu.
Rúnar Kristinsson lék ekki
með Lokeren vegna meiðsla.
Indriði Sigurðsson og fé-
lagar í Genk gerðu jafntefli,
1:1, við Standard Liege þrátt
fyrir að þeir væru manni færri
frá því á 2. mínútu leiksins. Þá
fékk Jan Moons, markvörður
Genk, að líta rauða spjaldið.
Indriði lék allan leikinn og var
einn sex leikmanna sem fengu
gula spjaldið.
Lokeren og Genk eru jöfn
að stigum í 6.–7. sæti deild-
arinnar með 8 stig hvort, fimm
stigum minna en toppliðið
Club Brugge.
Marel lagði upp sigur-
markið fyrir Lokeren
RÓBERT Gunnarsson, línu-
maður úr landsliðinu í hand-
knattleik, byrjaði vel á laug-
ardaginn þegar keppni hófst
í dönsku úrvalsdeildinni. Ró-
bert, sem spilar sitt þriðja
tímabil með Århus GF, skor-
aði 12 mörk þegar lið hans
vann Silkeborg/Voel, 36:33,
á heimavelli. Sturla Ásgeirs-
son, fyrrum ÍR-ingur, er
einnig kominn til liðs við År-
hus GF og hann skoraði 2 mörk í
leiknum.
Staðarblaðið í Árósum, Århus
Stiftstidende, þakkaði Róberti og
markverðinum Lars Juul Mikkelsen
sigurinn en þeir voru langbestu leik-
menn liðsins. Erik Veje Rassmussen,
þjálfari Århus GF, lék með
liði sínu vegna mikilla for-
falla, spilaði í vörninni, en
hann er orðinn 46 ára gam-
all.
Daníel Ragnarsson var
markahæstur hjá FCK
Håndbold með 5 mörk þegar
lið hans sigraði Team Hels-
inge, 28:27. Magnús Agnar
Magnússon skoraði eitt
mark fyrir Team Helsinge.
Ragnar Óskarsson skoraði 6
mörk í sínum fyrsta leik með Skjern
sem sigraði Ringsted auðveldlega í
gær, 33:22. Aron Kristjánsson þjálf-
ar lið Skjern en leikur væntanlega
ekkert með því sjálfur vegna
meiðsla.
Róbert skoraði 12 mörk
gegn Silkeborg/Voel
TIM Cahill, ástralskur miðjumaður
sem er nýkominn til liðs við Everton,
var rekinn af velli nokkrum sek-
úndum eftir að hann skoraði sig-
urmarkið gegn Manchester City á
útivelli, 1:0, á laugardaginn. Cahill
hafði áður fengið gula spjaldið og
þegar hann skoraði markið lyfti
hann treyjunni upp fyrir höfuð.
Steve Bennett dómari hljóp um-
svifalaust til hans og sýndi honum
annað gult spjald og það rauða í
kjölfarið.
Knattspyrnustjórar liðanna sam-
einuðust um að fordæma þennan úr-
skurð dómarans að leik loknum.
„Fótboltinn er endanlega genginn af
göflunum. Það situr einhver náungi
á skrifstofu í Sviss og býr til svona
fáránlegar reglur. Strákurinn er ný-
kominn til félagsins, skorar mik-
ilvægt mark og vill njóta þess. Það
er algengt að lyfta treyjunni yfir
höfuðið, hann kastaði henni ekki til
áhorfenda eða batt hana við horn-
fánann. Ég kenni til með strákum
því þetta er svo heimskulegt, en
þannig er fótboltinn stundum,“
sagði Kevin Keegan, stjóri Man-
chester City, sem fannst lítil sann-
girni í því að vera manni fleiri síð-
asta hálftímann vegna svona atviks.
„Öll félög eru með reglurnar í
höndunum og vita fyrir hvað gefið
er gult spjald, og ég er ekki í vafa
um að leikmaðurinn braut regl-
urnar. Ég gat ekki annað en rekið
hann af velli. Reglurnar eru svona,
við eigum bara að framfylgja þeim,“
sagði Steve Bennett dómari.
Þetta atvik skyggði algjörlega á
David James, enska landsliðs-
markvörðinn, sem brást við harka-
legri gagnrýni fyrir mörkin sem
hann fékk á sig í Austurríki á dög-
unum með því að eiga sannkallaðan
stórleik í marki Manchester City.
Everton er komið með 10 stig eftir
fimm leiki og virðist til alls líklegt en
margir spáðu liðinu falli eftir að það
seldi Wayne Rooney til Manchester
United um síðustu mánaðamót.
„Fótboltinn er genginn af göflunum“
Mark Halsey var einn af mörg-um dómurum sem var í
sviðsljósinu í ensku úrvalsdeildinni
á laugardaginn. Á stuttum tíma í
fyrri hálfleik afturkallaði hann
vítaspyrnu sem hann hafði dæmt á
Arsenal, neitaði Arsenal um víta-
spyrnu, og dæmdi af mark sem
Collins John skoraði fyrir Fulham
á lokasekúndum hálfleiksins –
taldi að John hefði brotið af sér
áður en hann skallaði boltann í
mark Arsenal.
Halsey viðurkenndi síðan eftir
leikinn að viðbrögð leikmanna
beggja liða þegar hann dæmdi
vítaspyrnuna hefðu haft áhrif á sig
en hann væri sannfærður um að
hann hefði haft rétt fyrir sér í öll
þrjú skiptin. „Leikmenn Arsenal
mótmæltu en Andy Cole var fyrst
og fremst svekktur yfir því að hafa
ekki skorað. Ég hljóp til aðstoð-
ardómarans til að vinna mér inn
tíma og þegar hann staðfesti að
ekki hefði verið um brot að ræða,
ákvað ég að breyta dómnum.“
Fredrik Ljungberg kom Arsenal
á bragðið og átti síðan mestan þátt
í því að Zat Knight, varnarmaður
Fulham, sendi boltann í eigið mark
þremur mínútum síðar. Jose Ant-
onio Reyes rak endahnútinn á
þennan magnaða kafla þegar hann
slapp inn fyrir vörn Fulham og
skoraði af mikilli yfirvegun, 3:0.
Sjötta mark hans á tímabilinu –
hann hefur skorað í öllum sex
leikjum Arsenal, fyrst í leiknum
gegn Manchester United um sam-
félagsskjöldinn og síðan í fimm
deildarleikjum.
„Fulham tók þá áhættu að spila
grimman sóknarleik gegn okkur
og það munaði litlu að sú áhætta
skilaði sér. Við sluppum fyrir horn
í fyrri hálfleiknum, og fyrst staðan
var 0:0 í hálfleik vissi ég að við
ættum góða sigurmöguleika,“
sagði Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal.
Mikil dramatík var á síðustu
mínútunum í leik Bolton og Man-
chester United sem endaði 2:2.
Hinn gamalreyndi sóknarmaður
Les Ferdinand virtist hafa tryggt
Bolton sigurinn þegar hann skor-
aði, 2:1, um það leyti sem 90 mín-
úturnar voru liðnar, eftir mikil
mistök hjá Tim Howard í marki
United. En David Bellion jafnaði
fyrir United með síðustu „spyrnu“
leiksins, boltinn virtist fara af
handlegg hans og í netið.
Gabriel Heinze, argentínski
varnarmaðurinn, lék sinn fyrsta
leik með Manchester United og
hann byrjaði á því að skora, rétt
fyrir hlé. Kevin Nolan jafnaði fyrir
Bolton, 1:1, snemma í síðari hálf-
leik eftir að Howard varði þrumu-
skot frá Jay-Jay Okocha. Bolton er
nú með 10 stig eftir fimm leiki og
virðist ætla að standa við þau
markmið að berjast um Evrópu-
sæti í vetur. Manchester United
hefur hins vegar aðeins unnið einn
af fyrstu fimm leikjum sínum og
heldur sig áfram um miðja deild-
ina.
Souness tekur við
Newcastle á sigurbraut
Newcastle vann sinn fyrsta leik
á tímabilinu, 3:0, gegn Blackburn.
Graeme Souness, sem tekur við
Newcastle í dag eftir að hafa stýrt
Blackburn í fjögur ár, er því ekki
með alveg eins mikla pressu á sér í
nýja starfinu. Alan Shearer skor-
aði eitt markanna.
Mark Viduka skoraði bæði
mörk Middlesbrough gegn Birm-
ingham í 2:1 sigri og virðist ætla
að reynast liðinu happafengur.
Emile Heskey fer líka ágætlega af
stað með Birmingham og skoraði
mark liðsins.
Luis Garcia, nýi Spánverjinn
hjá Liverpool, átti stórleik í 3:0
sigri á WBA og kórónaði hann
með því að skora eitt markanna og
leggja annað upp fyrir Steven
Gerrard. Steve Finnan komst
einnig á blað.
Ricardo Fuller frá Jamaíka
skoraði eftir aðeins 170 sekúndur
þegar Portsmouth vann Crystal
Palace, 3:1. Fullar var nýkominn
til baka yfir Atlantshafið eftir að
hafa leikið með Jamaíka gegn El
Salvador í undankeppni HM.
Tottenham nýtti ekki tæki-
færi til að komast í þriðja sæti
deildarinnar í gær og gerði aðeins
markalaust jafntefli á heimavelli
gegn nýliðum Norwich þrátt fyrir
mörg góð marktækifæri.
Englandsmeistararnir halda sínu striki
og hafa leikið 45 deildarleiki án taps
Tíu mínútur
voru nóg
fyrir Arsenal
TÍU mínútna hvirfilvindur á Craven Cottage gerði góðan leik Fulham
gegn Arsenal að engu. Meistararnir skoruðu þrjú mörk á tíu mín-
útna kafla um miðjan síðari hálfleik, sigruðu 3:0, og eru nú einir á
toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 15 stig eftir fimm leiki, og hafa
þegar skorað 19 mörk. Þetta var 45. deildaleikur Arsenal í röð án
taps og liðið bætir met sitt með hverjum leik.
Róbert