Morgunblaðið - 13.09.2004, Síða 12
Við erum svona þokkalega sáttarmeð að tapa með fjórum mörk-
um, en hefðum verið alveg sáttar
við að tapa með tveimur,“ sagði
Guðríður Guðjónsdóttir, þjálfari
Valskvenna, í samtali við Morgun-
blaðið eftir leikinn. „Við byrjuðum
illa og lentum sex mörkum undir í
fyrri hálfleik en náðum þeim niður í
fjögur fyrir leikhlé. Í síðari hálfleik
náðum við muninum niður í eitt
mark þegar um tíu mínútur voru
eftir og fengum tvö dauðafæri á
miðri línu til að jafna, en það tókst
ekki. Í stað þess að leika af skyn-
semi og halda muninum í einu til
tveimur mörkum og sætta sig við
það, vildum við meira og það varð
til þess að sænska liðið komst aftur
í fimm marka forystu en við gerð-
um síðasta markið,“ sagði Guðríður.
Hún sagði það mikla og skemmti-
lega reynslu fyrir stúlkurnar að
taka þátt í mótinu, öll umgjörð og
framkvæmd hefði verið til fyrir-
myndar hjá Svíunum. „Liðið er
svipað að styrkleika og liðin í efri
hluta deildarinnar heima, enda er
sænska deildin ekki eins sterk og
sú norska og danska. Okkur fannst
við eiga tækifæri til að sigra en á
hinn bóginn sögðu forráðamenn
Önnered að þeirra lið hefði átt að
vinna stærra.
Ég er þokkalega ánægð með
hvernig við spiluðum, það var góð
dreifing hjá okkur og tíu stelpur
skoruðu og Berglind Hansdóttir var
maður leiksins hjá okkur, varði ein
18 eða 20 skot. Hún byrjaði ekki
vel, var í öllum boltum en þeir láku
inn, en hún náði sér upp úr því eins
og henni einni er lagið. Ég er alveg
viss um að við getum unnið þær
með meira en fjórum mörkum á
heimavelli og stelpurnar sáu í þess-
um leik að það er hægt. Nokkrar í
mínu liði eiga mikið inni frá þessum
leik þannig að það verður bara
gaman að takast á við þær sænsku
á heimavelli á laugardaginn,“ sagði
Guðríður.
Hún sagði sænsku stúlkurnar
vera stærri, sterkari og þyngri en
leikmenn Vals. „Við erum hins veg-
ar sneggri og það nýttist ágætlega í
þessum leik. Við skoruðum nokkur
mörk úr hraðaupphlaupum en ann-
ars var þetta nokkuð jafnt skipt hjá
okkur.“
Eigum að geta unnið með meiri mun
VALSKONUR standa vel að vígi eftir fyrri leikinn við sænska liðið
Önnered í EHF-bikarnum í handknattleik. Liðin mættust í fyrri
leiknum í Gautaborg á laugardaginn og höfðu heimastúlkur betur,
30:26. Fjögurra marka tap á útivelli er ágætt veganesti í síðari leik-
inn, sem verður að Hlíðarenda á laugardaginn kemur.
HAUKAR byrja á heimavelli
gegn þýska stórliðinu Kiel í
riðlakeppni Meistaradeildar Evr-
ópu. Leikur liðanna verður á Ás-
völlum 9. eða 10. október. Þeir
spila í deildinni sex helgar í röð,
fram í miðjan nóvember
Í annarri umferð fara Haukar
til Frakklands og leika við Crét-
eil og í þriðju umferð mæta þeir
Sävehof frá Svíþjóð á heimavelli.
Síðan snýst þetta við, Haukar
fá Créteil í heimsókn og enda síð-
an á útileikjum gegn Kiel og
Sävehof.
Tvö efstu liðin í hverjum riðl-
anna átta komast áfram í 16 liða
úrslit, sem eru leikin í desember,
og eftir það er leikið með útslátt-
arfyrirkomulagi.
Haukar byrja heima gegn Kiel
Eftir stórsigurinn í gær varþessi leikur hér í kvöld nán-
ast formsatriði. Það var erfitt að
ná upp stemningu í
liðinu í annan leik á
móti jafn slöku
liði,“ sagði Páll
Ólafsson, þjálfari
Hauka, við Morgunblaðið eftir
leikinn í gærkvöld.
Það var fátt sem gladdi augað í
leik liðanna í gær en frábær mark-
varsla Birkis Ívars Guðmundsson-
ar var ljósi punkturinn. Birkir
varði 23 skot þann tíma sem hann
var inná en Páll ákvað að skipta
honum útaf um miðjan síðari hálf-
leik sem og nær öllu byrjunarlið-
inu og við það misstu Haukar
dampinn en á tímabili í seinni hálf-
leik var munurinn tíu mörk.
„Það var leiðinlegt að enda leik-
inn á þennan hátt en ungu strák-
arnir sem fengu tækifærið höndl-
uðu það ekki vel,“ sagði Páll.
Haukarnir gerðu út um fyrri
leikinn á laugardaginn með frá-
bærum endaspretti í fyrri hálfleik.
Þeir breyttu stöðunni úr 12:11 í
22:12 og þar með var eftirleikurinn
auðveldur. Þórir Ólafsson átti
skínandi leik og skoraði 11 mörk
en belgíska liðið var ákaflega slakt
og mun slakara en Páll, þjálfari
Hauka, hafði reiknað með.
Haukaliðið verður annars ekki
dæmt af leikjunum við Neerpelt,
til þess var lið Belganna of slakt.
Það hafa verið höggvin skörð í
Haukaliðið þar sem þeir Alexandr
Shamkuts og Robertas Pauzuolis
eru horfnir á braut og væntanlega
bíður Haukanna strembið verkefni
þegar þeir etja kappi við Kiel,
Savehof og Crétel í riðlakeppni
Meistaradeildarinnar sem hefst í
byrjun október.
„Það verður auðvitað allt annað
að glíma við þessi lið heldur en
þetta belgíska lið. Það er hins veg-
ar mikil tilhlökkun hjá okkur að
takast á við þetta verkefni og að
þessu höfum við stefnt. Ég geri
mér vel grein fyrir því að liðin sem
eru með okkur í riðlinum eru
geysisterk. Ég sá til að mynda að
Kiel vann útisigur á Lemgo í dag
og það segir mér bara hversu gríð-
arlega sterkt lið Kiel hefur á að
skipa. Strákarnir koma til með að
fá mikla reynslu og ég tala nú ekki
um þá sem eru að stíga sín fyrstu
skref í meistaraflokki. Við erum
veikari varnarlega eftir að Shamk-
uts og Pauzuolis fóru og nú tekur
við að reyna að þjappa vörninni
betur saman áður en alvaran í
Meistaradeildinni hefst,“ sagði
Páll en Haukar leika sinn fyrsta
leik á Íslandsmótinu gegn HK á
miðvikudaginn.
Vandræðalaust
hjá Haukum
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka eru
komnir í riðlakeppni Meist-
aradeildar Evrópu í handknatt-
leik annað árið í röð en Hauk-
arnir áttu ekki í vandræðum
með að slá út slakt lið Sporting
Neerpelt frá Belgíu í forkeppn-
inni þar sem báðir leikir liðanna
voru leiknir á Ásvöllum. Haukar
burstuðu fyrri leikinn, 42:30, og
því var aðeins formsatriði að
ljúka síðari leiknum í gærkvöld
sem Haukar höfðu betur í,
28:25 og því samanlagt, 70:55.
Morgunblaðið/Sverrir
Halldór Ingólfsson er hér kominn í fínt færi og Vignir Svavarsson fylgist með félaga sínum.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
ÓLAFUR Stefánsson skoraði 4
mörk, eitt þeirra úr vítakasti,
þegar Ciudad Real sigraði Barce-
lona, 32:29, í
opnunarleik
keppnistímabils-
ins í spænska
handboltanum,
leiknum um
meistarabik-
arinn. Leikurinn
fór fram í
Lleida, frammi
fyrir þrjú þús-
und áhorfendum
á laugardaginn.
Leikurinn var
framlengdur en
staðan var 10:10 í hálfleik og
25:25 eftir venjulegan leiktíma.
Rolando Urios skoraði 7 mörk
fyrir Ciudad, Jonas Källman 6 og
Ólafur 4 en hjá Barcelona var
Luka Zvizej með 7 mörk og þeir
Jerome Fernández og Lars-
Krogh Jeppesen gerðu 5 mörk
hvor. Spænsku landsliðs-
markverðirnir, Jose Hombrados
hjá Ciudad og David Barrufet hjá
Barcelona, voru í stórum hlut-
verkum í leiknum.
Ciudad Real varð spænskur
meistari í fyrsta skipti á síðasta
tímabili og vann meistarabik-
arinn í fyrsta skipti á laugardag-
inn.
Ciudad
meistari
meistaranna
Ólafur
Stefánsson
DAGUR Sigurðsson, þjálfari og
leikmaður Bregenz í Austurríki,
skoraði 3 mörk þegar lið hans
vann Tatran
Presov frá Slóv-
akíu, 32:28, í
forkeppni Meist-
aradeildar Evr-
ópu í handknatt-
leik um helgina.
Þetta var fyrri
leikur liðanna
og var leikinn í
Austurríki en sá
síðari fer fram í
Slóvakíu um
næstu helgi og
ljóst að þar eiga
Dagur og félagar erfiða baráttu
fyrir höndum.
Bregenz var með sjö marka
forystu þegar skammt var eftir af
leiknum. Þá brugðu Slóvakarnir
á það ráð að taka Dag úr umferð
og með því riðluðu þeir sókn-
arleik austurríska liðsins nægi-
lega til að minnka muninn í fjög-
ur mörk.
Takist Bregenz að komast
áfram leikur liðið í riðli með
Flensburg, Banik Karvina frá
Tékklandi og Metkovic frá Króat-
íu í Meistaradeild Evrópu.
Dagur og
Bregenz í
harðri baráttu
Dagur
Sigurðsson
WEIBERN, undir stjórn Aðalsteins
Eyjólfssonar, vann óvæntan úti-
sigur á Oldenburg, 25:23, í annarri
umferð þýsku 1. deildarinnar í
handknattleik kvenna á laugardag-
inn. Íslensku stúlkurnar í liðinu
voru atkvæðamiklar og skoruðu
nær helming markanna. Sólveig
Lára Kjærnested skoraði 6 mörk,
Dagný Skúladóttir 4 og Jóna Mar-
grét Ragnarsdóttir 2. Að auki skor-
aði Sylvia Strass, fyrrum leikmaður
ÍBV, þrjú mörk í leiknum.Weibern
tapaði fyrir Frankfurt/Oder á
heimavelli, 29:32, í fyrstu umferð-
inni á dögunum.
Tólf íslensk
mörk fyrir
Weibern