Morgunblaðið - 17.09.2004, Qupperneq 1
BYGGIR MEÐ ÞÉR
Lillevilla
smáhýsi
Fleiri gerðir enn fáan-
legar í takmörkuðu
magni á lækkuðu verði.
Fyrstir koma fyrstir fá.
89.000
99.900
Miðbær í
brennidepli
Akureyringar ræða uppbyggingu
og skipulag á íbúaþingi | Miðopna
Óhollustu
úthýst
Heildstæð lausn á heilsusamlegum
matarinnkaupum | Daglegt líf
Erfitt hjá FH Rómverjum verður
refsað Keppnin um Ryder-bikarinn
hefst í dag Everton skoðar Emil
Íþróttir í dag
STOFNAÐ 1913 253. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
AÐ MINNSTA kosti átján manns létu lífið í
Bandaríkjunum af völdum fellibylsins Ívans, sem
fór á land í Alabama í gær, og embættismenn
sögðu að tala látinna gæti hækkað.
Milljónir manna höfðu leitað skjóls í neyðarskýl-
um um nóttina en þegar fólk vaknaði virtist sem
fellibylurinn hefði ekki valdið jafnmiklum skaða og
óttast hafði verið, að sögn AP-fréttastofunnar.
Víða hafa þó tré brotnað og skemmt raflínur og
önnur mannvirki og bílar eyðilagst.
Mikið eignatjón
Linda Garðarsdóttir í New Orleans sagði bylinn
hafa sneitt nær algerlega hjá borginni. „Þetta var
ekki neitt, þetta var bara smágola,“ sagði hún.
Inga Bartley, sem býr í Mobile í Alabama, sagði
hins vegar að mikið hefði gengið á um nóttina, há-
vaðinn hefði verið gífurlegur.
„Það er mikið eignatjón hér, mest í gamla bæn-
um. Hér í Alabama eru yfir 600 þúsund manns raf-
magnslaus. En trén mín, þau tvö sem ég var
hræddust um, stóðu þetta af sér,“ sagði Inga. Stórt
tré hefði hins vegar kubbast í sundur í garði ná-
grannans og annað brotið lent á síma- og raflínum.
Götur væru sumar þaktar laufi og braki. Hún sagð-
ist ekki vita til að neitt amaði að Íslendingum á
svæðinu.
Ívan varð
minnst átján
manns að bana
AP
Kona á milli bíls og hjólhýsis sem urðu fyrir
trjám í úthverfi Panama City í Flórída þegar
fellibylurinn Ívan skall þar á í gærmorgun.
ÞAK fauk í heilu lagi af einni álmu Hótels
Skaftafells í Freysnesi og stórskemmdi aðra
hluta þess, önnur hótelálma færðist til í heilu
lagi af steyptum grunni um hátt í einn og hálf-
an metra í illviðrinu sem gekk yfir landið í
fyrrinótt. Vindur fór um og yfir 50 metra á
sekúndu í verstu hviðunum. Gífurleg eyðilegg-
ing blasti hvarvetna við í Freysnesi og ljóst að
tjónið hleypur á milljónum ef ekki tugum millj-
óna króna. Um 40 gestir voru í hótelinu og sak-
aði engan þeirra en þeir leituðu skjóls í kjall-
ara þess á meðan veðrið gekk yfir.
„Þegar þakið fór af var það eins og að heyra
rosalega sprengingu. Þetta var rosaleg lífs-
reynsla,“ segir Berglind Guðnadóttir sem var
á vakt um nóttina.
Illviðrið olli eignaspjöllum víðar um land og
ferðamenn lentu í hrakningum af völdum þess.
Franskir ferðamenn komust heilu og höldnu í
Hótel Rangá eftir að hafa fest bíl sinn á leið úr
Eldgjá. Tjón varð á kornökrum í uppsveitum
Árnessýslu í illviðrinu og eru akrar sums stað-
ar alveg ónýtir og miklir skreiðarhjallar, fuku í
hávaðaroki sem gekk yfir Vestmannaeyjar í
fyrrinótt.
Morgunblaðið/RAX
Anna María Ragnarsdóttir, eigandi Hótels Skaftafells í Freysnesi, og Ásmundur Gíslason í Árnanesi skoða skemmdirnar en brak var um allt.
„Rosaleg lífsreynsla“
Eignaspjöll og hrakningar vegna illviðris sem gekk yfir landið
Illviðrið/4, 6
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, virðist reyna
að losa samtökin úr „kviksyndinu“ í
Írak með því að lýsa yfir því að inn-
rásin í landið hafi verið ólögleg og
draga í efa að hægt verði að halda þar
„trúverðugar“ kosningar í janúar, að
sögn sérfræðinga í öryggismálum í
gær.
„Þetta er augljós leið til að segja að
Sameinuðu þjóðirnar verði ekki fáan-
legar til að aðstoða við að skipuleggja
kosningarnar, með tilliti til ófremdar-
ástandsins í Írak,“ sagði Francois
Heisbourg, forstöðumaður FRS,
rannsóknarstofnunar í öryggismál-
um í París.
Hann bætti við að Annan hefði gef-
ið til kynna að ástandið væri orðið svo
slæmt í Írak að Sameinuðu þjóðirnar
hefðu þar „ekki
lengur hlutverki
að gegna“. Pascal
Boniface, forstöðu-
maður IRIS, al-
þjóðatengslastofn-
unar í París, segir
að Annan hafi „lýst
raunveruleikanum
– þetta stríð átti að
leiða til lýðræðis í
Írak, en svo virðist sem það verði
mjög erfitt að skipuleggja kosningar
á sama tíma og átökin harðna“.
„Þessar kosningar eru skrípaleik-
ur, í ljósi þess að líklegt er að vanda-
málin verði ekki leyst á næstu mán-
uðum,“ sagði Guillaume Parmentier,
forstöðumaður Bandaríkjadeildar
Rannsóknarmiðstöðvar í alþjóða-
tengslum í Frakklandi (IFRI).
„Lausnin er verri en vandamálið,“
sagði Parmentier og bætti við að
Annan hefði gefið til kynna að „betra
væri að skipuleggja ekki neitt“.
Segja innrásina löglega
Talsmenn Bandaríkjaforseta og
utanríkisráðuneytisins í Washington
neituðu því í gærkvöldi að innrásin
hefði verið ólögleg. Þeir áréttuðu að
bandarísk stjórnvöld litu svo á að ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna hefði
heimilað innrásina með því að sam-
þykkja ályktun 1441 í nóvember 2002
þar sem Írakar voru varaðir við „al-
varlegum afleiðingum“ yrðu þeir ekki
við kröfum ráðsins um afvopnun.
Sagður reyna að losa SÞ
úr „kviksyndinu“ í Írak
Annan efar að hægt sé að halda kosningar í Írak í janúar
París. AFP.
Annan segir/16
Kofi Annan
DANSKA fyrirtækið Nordisk Industripartner A/S stefnir að opnun
netmyndbandaleigu hér á landi á næstu mánuðum eða misserum, að
því er kemur fram í norrænum vefmiðlum.
Fyrirtækið hefur tryggt sér dreifingarréttinn á um 25.000 kvik-
myndum á öllum Norðurlöndunum og sagði Lars Henning Christen-
sen hjá NI í samtali við Morgunblaðið að menn þar á bæ væru að huga
að starfsemi á Íslandi. Sökum þess hve stór hluti íslenskra heimila sé
með háhraðatengingu á Netið sé óhugsandi annað en að NI sæki á ís-
lenska markaðinn.
Netmyndbandaleiga opnuð?