Morgunblaðið - 21.09.2004, Síða 4
KENNARAVERKFALLIÐ
4 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Dubli
n
37.810kr.
Dublin bíður þín
á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Bewleys hótelinu,
íslensk fararstjórn og allir flugvallarskattar.
Netverð
4., 11., og 25. nóvember
FULLT var út úr dyrum í verkfallsmiðstöð
fyrir kennara í Reykjavík, Mosfellsbæ, Kópa-
vogi og Seltjarnarnesi í gær en hún er til
húsa í Borgartúni 22.
„Hér er fólk saman komið til að ræða málin
og skoða kröfurnar sem lagðar voru fram í
gær [fyrradag],“ sagði Ólafur Loftsson, for-
maður svæðisfélags Kennarasambands Ís-
lands í Reykjavík, við Morgunblaðið í gær.
Verkfallsmiðstöðvar verða starfræktar víða
um land meðan á verkfallinu stendur.
„Hingað getur fólk komið og fengið upp-
lýsingar um það sem er að gerast [í deil-
unni],“ segir Ólafur. Heitt kaffi er á könn-
unni, blöð og tímarit liggja frammi og þjónar
því miðstöðin einnig hlutverki nokkurs konar
félagsmiðstöðvar fyrir kennara meðan á
verkfalli stendur, að sögn Ólafs.
„Það eru allir fúlir yfir því að vera komnir í
verkfall,“ segir Ólafur. „En úr því sem komið
er er þetta eitthvað sem við verðum að gera.
Það er hiti í gangi en engin heift,“ segir Ólaf-
ur um hljóðið í kennurum.
Hlutverk verkfallsmiðstöðvar er m.a. að
halda utan um og skipuleggja verkfallsvörslu
í þeim sveitarfélögum sem hver miðstöð þjón-
ar. Kennarar mæta snemma dags og fá út-
hlutað skóla til að sinna eftirliti í. Í gær voru
einnig heimsótt fyrirtæki og íþróttafélög sem
halda úti gæslu fyrir börn í verkfallinu.
150 manns sinna verkfalls-
vörslu daglega
Um 150 kennarar eru væntanlegir á
morgnana í verkfallsmiðstöðina í Borgartúni
til að sinna verkfallsvörslu. Sé grunur um
verkfallsbrot er skýrsla viðkomandi verk-
fallsvarðar send verkfallsstjórn til skoðunar.
Er Morgunblaðið bar að garði í gær var
Ólafur að greina viðstöddum frá stöðu mála
og gerði grein fyrir fundi trúnaðarmanna
sem haldinn var í gær. Sagði hann verkfalls-
verði hafa heimsótt fyrirtæki, íþróttafélög og
aðra staði þar sem barnagæsla er til þess að
safna upplýsingum um starfsemina.
Ólafur sagði að vonast hefði verið til þess
að fá Valsheimilið til afnota fyrir verkfalls-
miðstöðina en þar væri „því miður“ nú rekinn
starfsemi fyrir börn. „Það góða er að hér er-
um við beint á móti húsi sáttasemjara og í því
felst dulinn styrkur fyrir samninganefndina.“
Sagði hann að ef fjöldi þeirra sem sækja í
verkfallsmiðstöðina myndi aukast næstu
daga yrði það skoðað hvort flytja bæri hana í
stærra húsnæði.
Verkfallsmiðstöðvar verða opnar víðar um
land og sjá formenn svæðafélaga um verk-
fallsmiðstöðvarnar á sínum svæðum. Upplýs-
ingar um þær má finna á heimasíðu Kenn-
arafélags Íslands, www.ki.is.
Verkfallsmiðstöð kennara opnuð í Borgartúni í gær
Hiti í kennurum en engin heift
„VIÐ erum náttúrlega ekki mjög
hress,“ segir Ásdís Ólafsdóttir,
kennari í Snælandsskóla í Kópa-
vogi, um þann hnút sem deila
kennara og sveitarfélaganna virðist
nú vera komin í. Ásdís var stödd
ásamt samstarfskonu sinni, Krist-
ínu Pétursdóttur, í verkfalls-
miðstöðinni í Borgartúni í gær.
Þetta er þriðja verkfallið sem Ásdís
tekur þátt í en hún hefur verið
kennari í þrjátíu ár.
„Samninganefnd sveitarfélaga
hefur vitað í marga mánuði og ár
að samningar yrðu lausir þennan
ákveðna dag,“ segir Kristín sem
kennt hefur í fjögur ár. „En samt
sem áður hafa sveitarfélögin ekki
komið með neitt bitastætt tilboð
fyrir okkur þó að þau hafi haft
fjögur ár til að undirbúa sig. Það
væri hægt að herja á ríkið fyrst
staðan er svona rosalega léleg hjá
sveitarfélögunum.“
Ásdís segir að það sem verið er
að bjóða kennurum sé aðeins það
að færa aurana úr einum vasa í
annan. „Í síðustu samningum feng-
um við lengingu á vinnutíma,“ segir
Ásdís. Kristín bætir við: „Já, við
fengum lengri vinnutíma en í raun
enga launahækkun. Við fengum
fleiri krónur í vasann fyrir að vinna
meira, en þetta var engin launa-
hækkun.“
Ásdís og Kristín segjast taka
undir með forystu KÍ hvað varðar
barnagæslu fyrirtækja í verkfall-
inu. „Þetta þýðir bara framleng-
ingu á verkfallinu. Það verður
lengra og það verður meiri harka,“
segir Ásdís.
„Það vill enginn kennari vera
lengi í verkfalli,“ segir Ásdís. „Við
hugsum um bekkinn okkar sem
fær ekki þá kennslu sem hann á að
fá, en hvað eigum við að gera?“
Þær segja að á meðan víða sé
verið að ræða sveigjanlegri vinnu-
tíma sé verið að reyna að „njörva
kennara meira niður“. Báðar segj-
ast þær þreyttar á því að alltaf
þegar rætt er um launahækkun við
kennara sé það í formi meiri vinnu.
„Hvaða aðrar stéttir fá svoleiðis
framan í sig?“ segir Ásdís.
Morgunblaðið/RAX
Kristín Pétursdóttir og Ásdís Ólafsdóttir, kennarar í Snælandsskóla,
ræddu málin í verkfallsmiðstöðinni í gær.
Vilja launa-
hækkun en ekki
lengri vinnutíma
GRUNNSKÓLAR landsins standa
ekki tómir meðan á verkfalli stendur
því hluti starfsmanna, sem ekki á að-
ild að Kennarasambandi Íslands
(KÍ), mætir til vinnu eins og venju-
lega þrátt fyrir að verkfall kennara
sé skollið á. Þetta eru t.d. starfs-
menn á skrifstofum, matráðar, hús-
verðir, skólastjórar og aðstoðar-
skólastjórar, skólaliðar, ganga-
verðir, starfsmenn heilsdagsvist-
unar, ræstingafólk og stundakennar-
ar sem ekki greiða félagsgjöld til KÍ.
Þeir síðastnefndu halda áfram
kennslu í verkfallinu en þeir starfa
aðallega við kennslu í valfögum efstu
bekkja grunnskólans, samkvæmt
upplýsingum formanns Skólastjóra-
félags Íslands, og verða nemendur
að mæta í skólann á þeim tímum sem
þessi ákveðnu valfög eru kennd. T.d.
er um að ræða kennslu í leiklist og
kvikmyndagerð sem og tölvum svo
eitthvað sé nefnt. Einnig verður
kennslu í fögum á framhaldsskóla-
stigi sem stundakennarar sjá um
haldið áfram í grunnskólunum í
verkfallinu.
Hanna Hjartardóttir, formaður
Skólastjórafélags Íslands og skóla-
stjóri í Snælandsskóla í Kópavogi,
segir nemendum hafa verið gerð
grein fyrir þessu áður en verkfallið
skall á. 25 manns, sem ekki eru í KÍ,
mættu til starfa í Snælandsskóla í
gær.
Skólastjórar hafa heimild til að
fella niður störf starfsmanna sam-
kvæmt upplýsingum frá verkfalls-
stjórn KÍ. „Það getur verið sam-
komulag um það hvað menn eru að
gera og hversu lengi,“ segir Hanna.
„Ef sá tími kemur að við teljum ekk-
ert fyrir starfsfólkið að gera innan-
dyra þá förum við að skoða aðra
kosti. Númer eitt, tvö og þrjú er að
starfsfólkið gangi alls ekki í störf
kennara.“
Stundakennarar og annað
starfsfólk enn í skólunum
ÞRÓTTARHEIMILIÐ í Laugardal
iðaði af lífi í gær þar sem um 120
börn starfsfólks Íslandsbanka og
Sjóvár-Almennra nýttu sér aðstöðu
sem boðið er upp á meðan á verkfalli
kennara stendur. Foreldrafélag fyr-
irtækjanna hefur daggæsluna með
höndum í samstarfi við Heilsuskól-
ann okkar. Kristín Jóna Kristjáns-
dóttir, formaður félagsins, segir við-
brögð starfsfólksins hafa verið góð.
„Þetta fyrirkomulag er fínt sem slíkt
en þetta kemur auðvitað engan veg-
inn í staðinn fyrir skólann og við
vonum að deilan leysist sem fyrst.“
Foreldrarnir borga 800 króna
daggjald fyrir Heilsuskólann en for-
eldrafélagið borgar einnig hluta
gæslunnar.
Börnunum er skipt í hópa eftir
aldri og fást við ýmis verkefni t.d. í
listasmiðju, íþróttasal eða úti við.
Þau fá heitan mat í hádeginu og
koma með nesti að heiman til að
snæða í kaffitímum. Fimm fullorðnir
starfa við Heilsuskólann í Þróttar-
heimilinu en þeim til aðstoðar eru
þrír unglingar úr 10. bekk. Ásgerður
Guðmundsdóttir, skólastjóri Heilsu-
skólans, segir að samkomulag hafi
verið gert við Þrótt um að Heilsu-
skólinn hefði aðstöðu í Þróttarheim-
ilinu svo lengi sem þörf væri á.
Fáir í KR-heimilinu
Atli Atlason, starfsmannastjóri
Landsbankans, segir foreldrafélagið
hafa kannað þörf á gæslu fyrir síð-
ustu helgi. Í gær nýttu aðeins for-
eldrar sjö barna sér gæsluna sem
fram fór í KR-heimilinu. Þó var von
á því að fleiri myndu nýta sér hana
næstu daga. Atli segir að eitt af þeim
vandamálum sem komið hafi upp
snerti foreldra fatlaðra barna, en
gæslan sem foreldrafélagið stendur
fyrir í KR-heimilinu henti ekki þeim
börnum. Því hafi verið komið til
móts við foreldra fatlaðra barna og
þeim boðinn sveigjanlegri vinnutími.
Eimskip hefur einnig boðið börn-
um starfsmanna gæslu og leigði að-
stöðu í Smáranum í Kópavogi til
þess. Starfsfólk á vegum fyrirtæk-
isins sinnir gæslunni en Jónína A.
Sanders starfsmenntastjóri segir
fáa foreldra hafa nýtt sér aðstöðuna
í gær, aðeins um tuttugu börn hafi
verið þar samankomin. Hún segir
því greinilegt að foreldrar hafi grip-
ið til annarra ráða við upphaf verk-
falls.
Fleiri fyrirtæki buðu upp á barna-
gæslu í gær og voru t.d. börn starfs-
fólks KB banka í Valsheimilinu.
Ekki er boðið upp á gæslu barna
starfsmanna Landspítalans í verk-
fallinu. Þeim tilmælum var beint til
yfirmanna deilda að þeir kæmu til
móts við foreldra og gæfu þeim svig-
rúm til að breyta vöktum sínum.
Erna Einarsdóttir, starfsmanna-
stjóri á LSH, segir að ekki hafi verið
óvenjumikið um fríóskir eða veik-
indaforföll nú í upphafi verkfalls.
Morgunblaðið/Kristinn
Aron Elí, Páll Jökull Þorsteinsson og Stefán Örn Stefánsson í barnagæslunni í KR-heimilinu í gær.
Barnagæsla fyrirtækj-
anna misjafnlega nýtt