Morgunblaðið - 21.09.2004, Síða 13
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2004 13
1.786 tonn milli ára, en engu að síður
féllu niður ónýttar heimildir upp á
1.881 tonn. Það sama á við í stein-
bitnum og ufsanum. Það eru nánast
eingöngu heimildir krókaaflamarks-
bátanna sem ekki voru nýttar. Heim-
ildir þeirra námu 6.875 tonnum. Bát-
arnir veiddu aðeins 2.776 tonn, fluttu
934 milli ára og náðu ekki að nýta sér
1.841 tonn. Leyfilegur heildarafli af
grálúðu var 24.310 tonn. Aðeins
veiddust 14.529 tonn. Heimildum
sem námu 3.386 tonnum var breytt í
aðrar fiskitegundir og 4.186 tonn
voru flutt á næsta fiskveiðiár. Því
ALLS féllu ónýttar niður veiðiheim-
ildir í lok fiskveiðiársins sem nema
ígildi um 17.000 tonnum af þorski.
Langmest féll niður af loðnu, en
einnig töluvert af úthafsrækju og
steinbít. Frestur til flutnings afla-
marks og krókaaflamarks fiskveiði-
ársins 2003/2004 milli skipa rann út
15. september síðastliðinn.
Veiðitímabil loðnu er júní–apríl.
Það er því löngu orðið ljóst að mikið
magn loðnuaflamarks fiskveiðiársins
2003/2004 féll niður ónýtt, alls
160.705 tonn. Auk loðnu falla nokkr-
ar aflaheimildir í botnfiski niður
ónýttar á fiskveiðiárinu. Til að
mynda 900 tonn af ufsa, 400 tonn af
karfa, 1800 tonn af steinbít, 2.200
tonn af grálúðu og 1.250 tonn af
sandkola og skrápflúru.
Heimildir til að flytja hluta af
óveiddum heimildum yfir á næsta
fiskveiðiár draga verulega úr því
sem fellur niður ónýtt um fiskveiði-
áramótin.
18 tonn af þorski ónýtt
Þegar á heildina er litið nam flutn-
ingur á þorski milli ára 3.840 tonnum
og reyndust aðeins 18 tonn ónýtt. Af
ýsu voru flutt 4.127 tonn og niður
féllu 141 tonn. 2.144 tonn af ufsa fóru
á milli ára, en engu að síður voru
ónýttar veiðiheimildir um 900 tonn,
nær allt frá krókaaflamarksbátum
eða 828 tonn. Langmest var flutt af
veiðiheimildum í karfa á milli ára,
eða 8.423 tonn, en engu að síður féllu
niður 428 tonn. Af steinbít voru flutt
stóðu eftir óveidd 2.209 tonn.
Síldveiðar gengu mjög vel á fisk-
veiðiárinu. Heimildir voru tæplega
131.000 tonn, en þar af voru 21.000
tonn flutt frá árinu áður. Nú veidd-
ust 125.719 tonn og á næsta ár voru
flutt 4.850 tonn. Því standa aðeins
eftir óveidd 322 tonn. Mjög hátt hlut-
fall úthafsrækjuveiðiheimilda nýttist
ekki. Leyfilegur heildarafli var tæp-
lega 26.000 tonn, en tæp 6.000 tonn
voru þá flutt frá fyrra ári. Aflinn nú
varð ríflega 18.000 tonn. 3.726 tonn
voru flutt yfir á nýja fiskveiðiárið,
svo niður féllu 4.123 tonn.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Rækjuveiðar Veiðar á úthafsrækju gengu illa á síðasta fiskveiðiári. Aðeins
veiddust um 18.000 tonn af 26.000 tonna leyfilegum heildarafla.
Ígildi 17.000 tonna af þorski
nýttust ekki á fiskveiðiárinu
Langmest af því var loðna, en aflaheimildir í
loðnu er óheimilt að flytja milli fiskveiðiára
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
MEIRA en helmingur þess afla sem
varð til vegna línuívilnunar á síð-
asta fisveiðiári kom á land á Vest-
fjörðum eða rúmt 61%. Af ein-
stökum höfnum á landinu kom mest
á land í Bolungarvík. Frá þessu er
greint á vef Bæjarins besta á Ísa-
firði.
Sem kunnugt er tók svokölluð
línuívilnun við stjórn fiskveiða gildi
1. febrúar síðastliðinn. Í henni felst
að hægt er að landa ýsu- og stein-
bítsafla sem að hluta er ekki reikn-
aður til aflamarks. Nemur línuíviln-
unin í þessum tegundum 16% af
lönduðum afla. Ívilnunin gildir að-
eins á þeim bátum sem róa með línu
sem beitt er í landi. Til loka síðasta
fiskveiðiárs 31. ágúst nam línuíviln-
un samtals rúmum 473 tonnum í
ýsu og rúmum 416 tonnum í stein-
bít. Aflinn kom á land í 39 höfnum á
landinu. Stærstur hluti aflans, eða
tæp 547 tonn, kom á land í höfnum
á Vestfjörðum, þar af 239 tonn af
ýsu og 308 tonn af steinbít.
Af einstökum höfnum má nefna
að mestur afli sem varð til vegna
línuívilnunar kom á land í Bolung-
arvík eða tæp 162 tonn en næst-
hæsta höfn landsins var Suðureyr-
arhöfn með tæp 141 tonn. Af öðrum
höfnum á Vestfjörðum má nefna að
á Flateyri komu á land 84 tonn og á
Þingeyri tæp 32 tonn.
61% línu-
ívilnunar
fyrir vestan
föstudaginn 24. september 2004, kl. 12–17 • Ársal Hótel Sögu
M Á L Þ I N G L Ö G F R Æ Ð I N G A F É L A G S Í S L A N D S
Er þörf á stjórnsýsludómstól?
Hádegisverður.
Úrskurðarnefndir í stjórnsýslunni
Friðgeir Björnsson héraðsdómari
Endurskoðun stjórnvaldsákvarðana erlendis
Matti Niemivuo skrifstofustjóri í finnska
dómsmálaráðuneytinu
Er unnt að setja stjórnsýsludómstól inn í
núverandi kerfi?
Páll Hreinsson prófessor
Athugasemdir:
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra
Gunnlaugur Claessen, varaforseti hæstaréttar
Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis
Atli Gíslason hrl., varaþingmaður.
Umræður
12:00
13:30
15:30
Þátttaka tilkynnist í síma 568 0887 milli kl. 13-15 virka daga eða með
tölvupósti á netfangið: logfr@logfr.is
Síðasti skráningardagur er miðvikudagur 22. september.
Þátttökugjald er kr. 10.000.
Lögfræðingafélag
Íslands
Lögfræðingafélag Íslands, Álftamýri 9, 108 Reykjavík, sími: 568 0887, fax: 568 7057
Stjórntækniskóli Íslands
Bíldshöfða 18
Sími 567 1466
MARKAÐSFRÆÐI
Hnitmiðað 250 stunda nám í sölu og markaðsfræðum. Náminu er
ætlað að koma til móts við sívaxandi kröfur atvinnulífsins um
hæfari starfskrafta. Námið er ætlað fólki sem vill bæta við
þekkingu sína og fá innsýn í heim markaðsfræðinnar, og að
nemendur tileinki sér markaðshugsun í íslensku viðskipta og
athafnalífi, og nái þannig betri árangri. Kennslan fer fram í formi
fyrirlestra og verkefnavinnu.
Helsu námsgreinar:
Markaðsfræði Sölustjórnun og sölutækni
Vöruþróun Vörustjórnun
Auglýsingar Áætlanagerðir
Viðskiptasiðferði Lokaverkefni
Starfsmenntun. Fjárfesting til framtíðar.
WWW.menntun.is Sími 567 1466. Opið til kl. 22.00.
„Ég mæli með náminu
fyrir alla þá, er starfa við
markaðs- og sölustörf.
Ég hef verið í sölu-
mennsku í 6 ár og nám-
skeiðið hefur nýst mér vel
í starfi. Fjölbreytt og
áhugavert námskeið.“
Elísabet Ólafsdóttir
Eggert Kristjánsson hf.
„Ég mæli tvímælalaust
með þessu námi fyrir
alla þá sem eitthvað eru
tengdir markaðs-, sölu-,
upplýsinga-, skipulags-
og/eða framleiðslumál-
um sinna fyrirtækja.“
Hendricus Bjarnason
Tæknilegur ráðgjafi og umsjónarmaður
markaðstengdra verðbréfa kerfa
ING-bankans í Amsterdam
„Sölu- og markaðsfræði-
nám Stjórntækniskóla Ís-
lands er afar hagnýtt og
ott nám fyrir alla þá er
starfa við sölu- og mark-
aðsmál. Námið er mjög
markvisst og hefur nýst
mér vel í starfi frá upp-
hafi og kemur til með að
gera það í framtíðinni.“
Gróa Ásgeir dóttir,
Flugfélag Íslands.
Helluland - Endaraðhús á einni hæð
Vorum að fá í sölu mjög fal-
legt og vel skipulagt 164 fm
endaraðhús á einni hæð. Þar
af er 21 fm bílskúr. Húsið
skiptist m.a. í stofu, borð-
stofu og fjögur herbergi. Sér-
staklega falleg gróin lóð til
suðurs. Verð 32 millj. 4450.
Skráning skuldabréfa í Kauphöll Íslands
Sparisjóður Mýrasýslu
500.000.000 kr.
1. flokkur 2004
Nafnverð útgáfu
Heildarnafnverð flokksins er 500.000.000 kr.
Skilmálar skuldabréfa
Skuldabréf 1. flokks 2004 eru gefin út til 6 ára og greiðist verðbættur höfuðstóll
skuldarinnar með einni greiðslu þann 15. maí 2010. Útgáfudagur bréfsins er
23. mars 2004. Skuldabréfið ber 5,1% fasta ársvexti. Vextir greiðast á sex
gjalddögum, 15. maí ár hvert, í fyrsta sinn 15. maí 2005 og í síðasta sinn 15. maí
2010. Auðkenni flokksins í Kauphöll Íslands verður SPM 04 1.
Skráningardagur
Kauphöll Íslands mun taka bréfin á skrá 27. september 2004.
Upplýsingar og gögn
Umsjón með sölu skuldabréfanna og skráningu í Kauphöll Íslands hafa Íslensk
verðbréf hf., Strandgötu 3, 600 Akureyri, vefsíða www.iv.is. Skráningarlýsingu og
önnur gögn um Sparisjóð Mýrasýslu sem vísað er til í lýsingunni er hægt að
nálgast hjá Íslenskum verðbréfum hf.