Morgunblaðið - 21.09.2004, Side 17
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2004 17
Borgarnes | Fyrirhugað er að nýtt
golfhótel verði risið fyrir 1. júní á
næsta ári, nánar tiltekið á milli 7.
og 8. brautar á golfvellinum að
Hamri í Borgarnesi. Það eru hjónin
Hjörtur Árnason og Unnur Hall-
dórsdóttir sem byggja tæplega
1000 fermetra hótel, með 30 her-
bergjum, eldhúsi og tveimur fund-
arsölum.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra tók fyrstu skóflustunguna
sl. föstudag og er ætlunin að jarð-
vinna fari í gang á næstu vikum.
Peter Ottoson, sem er danskur
arkitekt, teiknaði hótelið en Guðni
Jóhannesson, prófessor við
tækniháskólann í Stokkhólmi, er
hönnuður. Hjörtur segir ekki ljóst á
þessari stundu hverjir sjái um
framkvæmdir, en þau hjón séu
bjartsýn á að allt verði tilbúið
næsta vor. „Við erum líka alltaf
bjartsýnni og bjartsýnni á vel-
gengni, því við rákum golfskálann á
Hamri í sumar og það gekk mjög
vel, enda veðrið einstaklega gott í
sumar.“
Þau eiga í viðræðum við innlenda
aðila um markaðssamsstarf, sem
lofar góðu. „Það er erfitt að vera
einn að markaðssetja lítið sveita-
hótel,“ segir Hjörtur og bætir því
við að samstarf þeirra við golf-
klúbbinn hér sé mjög jákvætt og
gott.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Fyrsta skóflustungan: Unnur Halldórsdóttir tekur í höndina á Sturlu Böðv-
arssyni sem hóf framkvæmdir, en á milli þeirra stendur Hjörtur Árnason.
Golfhótel rís milli
7. og 8. brautar
Tálknafjörður | Það var
þungbúið og strekkingur af
hafinu í Selárdal í Arnarfirði
sl. laugardag, þegar afhjúp-
aður var minnisvarði um
sjóslys sem þar varð 20.
september árið 1900. Þá fór-
ust 18 menn af fjórum bát-
um frá Selárdal og Bakka-
dal í Arnarfirði. Ellefu
konur urðu ekkjur og 24
börn misstu feður sína.
Með Andvara frá Selár-
dal fórust fimm menn, með
Halli frá Selárdal fórust
fimm menn, með Skeiðis-
bátnum fórust fimm menn
og með Feigsdalsbátnum
fórust þrír menn. Þeir sem
fórust voru á aldrinum 14
ára til rúmlega sjötugs.
Tveir úr hópnum voru 14
ára. Áfallið var mikið fyrir
byggðina og í kjölfar slyss-
ins var fjölskyldum tvístrað.
Grétar Guðmundsson á
Patreksfirði á ættir að rekja
til eins þeirra sem fórust,
Jóns Sumarliðasonar frá
Tóftum í Selárdal, en hann
var á bátnum Andvara. Sú
hugmynd að reisa minnis-
varða um slysið kviknaði hjá
Grétari fyrir um tveimur árum og
byrjaði hann þá að vinna að málinu.
Fljótlega fékk hann til liðs við sig
Magnús Kr. Guðmundsson á Tálkna-
firði og Freyju dóttur hans, en afi
Magnúsar, Guðmundur Egilsson,
fórst með Feigsdalsbátnum aðeins 27
ára að aldri. Fjölmargir aðilar komu
að verkefninu á einn eða annan hátt.
Bæði með beinum fjárframlögum,
gáfu vinnu og veittu afslætti af vinnu
og efni.
24 börn misstu
föður í slysinu
Minnisvarði: Helga Kristín og Hafrún
Tryggvadætur fylgdust með afhjúpun minn-
isvarðans, en langalangafi þeirra, Guðmund-
ur Egilsson, fórst með Feigsdalsbátnum.
Minnisvarði um sjóslys afhjúpaður
Morgunblaðið/Finnur Pétursson
LANDIÐ