Morgunblaðið - 21.09.2004, Qupperneq 19
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2004 19
Hápunktur haustsins
Sparidagar á Hótel Örk
Fyrir alla eldri borgara
Sparidagar hefjast 10. október, þegar Gunnar
Þorláksson skemmtanastjóri mætir til leiks og
stjórnar dagskránni. Að venju verður í boði
fjölbreytt dagskrá, m.a.: Morgunhreyfing,
félagsvist, gönguferðir, bingó, danskennsla,
leikjanámskeið, ferðalag og svo öll tómstundariðja
hótelsins, auk kvöldskemmtana með söng, dansi og
gamanmálum á hverju kvöldi.
Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir leikritið Rapp
og rennilásar báðar vikurnar.
Pantaðu tímanlega, mikil aðsókn.
Tvö tímabil eru í boði: 10. okt - 15. okt. og 17. okt. - 22.okt.
Verð krónur 21.800,-
Innifalið: Gisting í fimm nætur m.v. Tvíbýli, morgunverður, þríréttaður
kvöldverður ásamt skemmtidagskrá alla daga.
HÓTELÖRK
Sími 483 4700
Lykill að íslenskri gestrisni
Gunnar Þorláksson, skemmtanastjóri
„MÉR finnst svo mikið gert fyrir krakkana sem ýtir
undir góð samskipti og að þeim þyki gaman og líði
vel í skólanum,“ segir Hildur Thors heimilislæknir
sem býr í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni spurð um
hvað henni þyki áhugavert við sænska skólakerfið.
Hildur er í framhaldsnámi í lýðheilsufræði og hefur
fjölskyldan búið í Solna, rétt utan við Stokkhólm, í
eitt ár. Dæturnar Þórdís 12 ára og Auður 10 ára
ganga í Hagalund-skólann og fjölskyldufaðirinn Helgi
Sigurðsson ferðast á milli Íslands og Svíþjóðar. Í
Hagalund-skóla ganga krakkar á aldrinum 10–16 ára
og eru nemendur nú um 400. Auður er nú nýbyrjuð í
svokölluðum Ma/NO bekk (Matte/Natur Orientering),
þ.e. bekk þar sem áhersla er lögð á stærðfræði og
náttúrufræði og er Hagalund-skólinn einn af nokkr-
um í Stokkhólmi þar sem boðið er upp á slíka bekki.
„Auður hefur sýnt áhuga á raungreinum og hefur
staðið sig vel í skólanum og var boðið í þennan bekk.
Forsendan fyrir því er til dæmis að nemendur geti
unnið sjálfstætt og séu klárir á sænskunni,“ útskýrir
Hildur. Skólinn er nýbyrjaður og í náttúrubekknum
er nú fjallað um skóginn sem er nokkurs konar þema
í öllum raungreinum, líffræði, eðlis- og efnafræði, en
þar fyrir utan eru börnin líka í öðrum skyldufögum.
Skógarferðir til að læra um trjátegundir
„Mér finnst mjög gaman í skólanum,“ segir Auður.
„Við erum búin að fara í margar ferðir til að skoða
tré og þegar skógarþemað er búið eigum við að
þekkja tólf trjátegundir. Næst verður þemað vatn.
Við höfum líka gert alls konar tilraunir, í dag settum
við til dæmis egg ofan í einhvern vökva og gátum
séð í gegnum skurnina og á morgun sjáum við
hvort skurnin hefur leyst upp.“ Auður segist finna
nokkurn mun á sænskum og íslenskum skóla.
„Aðallega á krökkunum. Ef maður mætir til
dæmis krökkum á leiðinni út í búð segja allir
hæ við alla fjölskylduna. Krakkarnir hér þora
meira og eru opnari. Svo finnst mér líka
skemmtilegt að fara í alls konar ferðir með
skólanum. Á morgun er minn bekkur til
dæmis að fara að keppa við sama bekk í
öðrum skóla í frjálsum íþróttum.“
Þórdís systir hennar er á sama máli.
„Á Íslandi eru alltaf stelpur að leika sér
saman og strákar að leika sér saman. Hér
er lögð áhersla á að allir séu saman. Ef
einn strákur er að leika með stelpum í frí-
mínútum er það allt í lagi hér en á Íslandi
þætti það skrýtið. En mér finnst aðalmun-
urinn að fá alltaf heitan mat í hádeginu,“ segir Þór-
dís.
Mæðgurnar nefna líka að mjög þægilegt sé að hafa
læsta skápa fyrir hvern og einn nemanda í skólanum.
Þá er t.d. hægt að geyma íþróttaskó í skápnum og
fleira sem þarf ekki að fara á milli heimilis og skóla á
hverjum degi. Hildur segist líka vera ánægð með svo-
kölluð vikubréf frá kennaranum sem send eru heim
með öllum nemendum. Þar eru viðburðir líðandi viku
reifaðir, hvað gekk vel í skólanum, hvað gert var þá
vikuna o.fl. Einnig ef eitthvað fór úrskeiðis, t.d. um
aga og hegðun í kennslustundum og frímínútum. Í lok
bréfsins er dagskrá næstu viku, skil á heimanámi o.fl.
„Þetta gerir það að verkum að við fylgjumst mjög vel
með því sem er að gerast í skólanum og yfirleitt bíður
maður spenntur eftir næsta vikubréfi,“ segir Hildur.
Að sögn Hildar er
andinn í Hagalund-
skólanum mjög góður
og áhersla lögð á að
skólinn sé skemmtilegur
staður til að vera á.
Göngutúrar og ferðir út
fyrir skólann eru algeng
og námið ekki bara bók-
lestur. Íslendingar sem
þekkja sænska skólakerf-
ið segja margir hverjir
að meira sé ýtt undir fé-
lagslega þáttinn í sænsku
skólunum en þeim íslensku
og tekur Hildur undir það og
bendir á að samvera í göngutúrum og ferðum út fyrir
skólann ýti undir góð samskipti nemendanna. Syst-
urnar voru í undirbúningsbekk fram að síðustu ára-
mótum og komust fljótt inn í sænskuna og eru mjög
ánægðar í skólanum. Móðir þeirra er líka ánægð með
sænska skólann og finnur nokkurn mun á honum og
íslenska skólanum. Til dæmis þurfa nemendur ekki að
koma með neitt í skólann að hausti, engar stílabækur,
blýanta eða annað sem íslenskir foreldrar flykkjast í
bókaverslanir að kaupa síðsumars. „Mér fannst þetta
mikill munur. Þetta dregur líka úr samkeppni meðal
barnanna um flottar stílabækur eða strokleður. Á Ís-
landi hefði ég verið til í að borga eitthvað ákveðið til
að skólinn sæi um þetta,“ segir Hildur sem flytur aft-
ur til Íslands að ári ásamt fjölskyldunni.
MENNTUN | Grunnskólinn Hagalund í Solna í Svíþjóð
Sérstök áhersla á stærð-
fræði og náttúrufræði
Morgunblaðið/Sverrir
Þórdís og Auður Helgadætur: Við Haga-
lundsskolan í Solna.
AFBRÝÐISEMI getur spannað allt
frá því að vera óþægilegur fylgifiskur
í ástarsamböndum til þess að vera
undirrót alvarlegra sambúðarvanda-
mála, jafnvel ofbeldis.
Á morgun mun Endurmennt-
unarstofnun Háskóla Íslands standa
fyrir námskeiði fyrir fagfólk í heil-
brigðisþjónustu um mat og viðbrögð
við afbrýðisemi í samböndum. Breski
sálfræðingurinn Padmal de Silva
mun kenna á námskeiðinu en hann
hefur sérhæft sig í greiningu
og meðferð við sjúklegri af-
brýðisemi í samböndum fólks.
Hefur de Silva m.a. skrifað
fjölda fræðigreina á sviðinu og
þróað árangursríkt meðferð-
arform, sem hann hefur m.a.
kennt á námskeiðum víða um
heim, en hún byggist m.a. á
sálrænni atferlismeðferð og para-
meðferð.
Sérfræðingur í afbrýðisemi
De Silva er lektor við King’s Coll-
ege í London og hefur starfað við sál-
fræðimiðstöð sem helguð er kynlífs-
og hjónabandsvandamálum um 25 ára
skeið. Hann segir starf sitt á sviði
hjónabandsráðgjafar hafa beint at-
hygli sinni sérstaklega að sjúklegri af-
brýðisemi. „Í starfi mínu og kollega
minna við sálfræðimiðstöðina kom-
umst við að því hversu áberandi
vandamál afbrýðisemi er í sambúð-
arvanda fólks. Í mörgum samböndum
reyndist hún vera undirrót rang-
hugmynda, ofbeldis og andlegrar kúg-
unar. Mikilvægt er að sálfræði- og
geðlæknastéttin taki mið af þessum
möguleika þegar hjón eða pör leita að-
stoðar vegna sambúðarvandamála. Á
námskeiðinu mun ég miðla af þeirri
reynslu sem við höfum á sviði með-
ferðar við þessum vanda.“ De Silva
segir afbrýðisemi eiga sér misjafnlega
alvarlegar birtingarmyndir. „Í ákaf-
lega mörgum samböndum er ákveðin
afbrýðisemi fyrir hendi, sem veldur
því e.t.v. að makinn fylgist með sam-
skiptum eiginkonu sinnar eða eig-
inmanns við aðila af hinu kyninu og
lætur jafnvel í ljós óánægju með það
að makinn sýni þessu fólki of mikla at-
hygli. Þetta er þáttur sem fólk í sam-
böndum verður að takast á við og ræða
en telst þó ekki til alvarlegs vanda-
máls. Afbrýðisemi er hins vegar orðin
að vandamáli þegar hún er farin að
stjórna gjörðum fólks, valda t.d. því að
einstaklingur reynir að setja höft á at-
hafnafrelsi maka síns, til þess að koma
í veg fyrir að hann eigi náin samskipti
við fólk af gagnstæðu kyni.
„Þannig er ekki óalgengt að karl-
menn reyni að banna eiginkonum sín-
um að vinna utan heimilis eða að ein-
staklingar hreinlega banni maka
sínum að hafa samband við fólk af
gagnstæðu kyni.“
Afbrýðisemi og ofbeldi
Í afmörkuðum tilfellum leiðir af-
brýðisemi til þess að fólk fer að saka
maka sinn um framhjáhald, jafnvel
þótt enginn fótur sé
fyrir slíkum grun,
segir de Silva. „Þessi
tilhneiging getur
orðið mjög alvarleg,
því sá sem á við sjúk-
lega afbrýðisemi að
stríða fyllist oft mikl-
um ranghugmyndum
um hegðun eða tryggð maka síns og
gengur oft mjög hart að honum í til-
hæfulausum ásökunum. Ég hef verið
með karlmenn í meðferð sem hafa
gengið svo langt að koma fyrir hler-
unarbúnaði á heimilinu, eða ráðið fólk
til þess að njósna um eiginkonu sína.“
Alvarlegustu birtingarmynd sjúk-
legrar afbrýðisemi segir de Silva vera
þá þegar fólk beitir maka sinn kúgun
og ofbeldi, og í mörgum tilfellum leiði
sá vandi til varanlegra limlestinga
eða morðs.
Aðspurður segir de Silva karlmenn
og konur oft bregðast á ólíkan hátt
við því er þau eiga við sjúklega af-
brýðisemi að stríða. „Því miður er
það oft svo að karlmenn bregðast við
með ofbeldi gagnvart maka sínum.
Konur hneigjast frekar til þess að
beita nokkurs konar andlegum eða
sálfræðilegum þrýstingi gagnvart
makanum sem þær finna til af-
brýðisemi gagnvart. En þetta er auð-
vitað ekki algilt,“ segir de Silva.
Á námskeiðinu hjá Endurmennt-
unarstofnun mun Padmal de Silva
fjalla um hugtök og skilgreiningar á
afbrýðisemi. Fjallað verður um birt-
ingarmyndir og fylgifiska af-
brýðisemi og mat á henni, og tengsl
afbrýðisemi og ofbeldishegðunar tek-
in sérstaklega fyrir. Þá verður lögð
áhersla á árangursríkar leiðir í með-
ferð við sambúðarvanda sem sprettur
af afbrýðisemi og unnið þar í vinnu-
hópum og hlutverkaleikjum. Umsjón
með námskeiðinu hefur dr. Jón Frið-
rik Sigurðsson forstöðusálfræðingur
á geðlækningsviði Landspítala – há-
skólasjúkrahúss.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Höft: Það er ekki óalgengt að karlmaður reyni að banna eiginkonu
sinni að vinna utan heimilis til þess að koma í veg fyrir að hún eigi
náin samskipti við aðra karlmenn.
Afbrýðisemi oft
undirrót alvarlegs
sambúðarvanda
Afbrýðisemi er
orðin að vanda-
máli þegar hún
er farin að
stjórna gjörð-
um fólks.
TILFINNINGAR
Í BANDARÍKJUNUM hafa sautján
konur á aldrinum 17–30 ára látist af
völdum getnaðarvarnaplásturs á
þeim tveimur árum sem plásturinn
hefur verið á markaði í Bandaríkj-
unum.
Plásturinn, sem heitir Evra í
Bandaríkjunum, er talinn geta leitt
til blóðtappa, hjartastopps eða
hjartaáfalls, að því er m.a. kemur
fram á vef Aftenposten. Bandaríska
lyfjaeftirlitið telur að notkun plást-
ursins sé orsökin. Ofurfyrirsætan
Naomi Campbell er á meðal þeirra
sem auglýst hafa plásturinn og hefur
hann selst vel. Talsmaður framleið-
andans Ortho-McNeil segir að not-
endur plástursins taki svipaða
áhættu og notendur getnaðarvarn-
arpillunnar en af hennar völdum
deyja 0,3–1,9 af 100 þúsund not-
endum á aldrinum 15–29 ára á ári.
HEILSA|Bandaríkin
Dauðsföll af
völdum getn-
aðarvarna-
plásturs