Morgunblaðið - 21.09.2004, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2004 23
Í
slensk stjórnvöld hafa þegar
gengið frá samningum við
nokkur aðildarríki Samein-
uðu þjóðanna um stuðning
við framboð Íslands til setu í
öryggisráði SÞ kjörtímabilið 2009–
2010. Um er að ræða gagnkvæman
stuðning, þ.e. Ísland myndi á móti
einnig styðja framboð viðkomandi
ríkja til setu í öryggisráðinu einhvern
tíma á næstu árum eða til setu í ein-
hverjum af öðrum mikilvægum
nefndum og ráðum SÞ.
„Þetta eru ríki úr öllum álfum
heimsins,“ segir Hjálmar W. Hann-
esson, fastafulltrúi Íslands hjá SÞ, í
samtali við Morgunblaðið. Hann vill
þó ekki gefa upp fjölda skriflegra lof-
orða sem fyrir liggja eða tjá sig um
það hvaða ríki hér um ræðir. Best sé
að sýna ekki á spilin á þessari stundu
en Ísland keppir við Tyrkland og
Austurríki innan Vesturlandahópsins
um tvö laus sæti í öryggisráðinu kjör-
tímabilið 2009–2010.
Hjálmar kom til starfa hjá fasta-
nefndinni í New York fyrir réttu ári,
hafði áður verið sendiherra í Kanada,
Þýskalandi og Kína, auk þess sem
hann hefur gegnt stöðu skrifstofu-
stjóra Alþjóðaskrifstofu í utanríkis-
ráðuneytinu. Hann segist undanfarið
ár hafa kynnt framboð Íslands til ör-
yggisráðsins eftir megni meðal fasta-
fulltrúa annarra ríkja hjá SÞ. Langt
sé þangað til að kosningu kemur en
ekki sé ráð nema í tíma sé tekið.
19. nóvember 2006 mikilvæg
dagsetning fyrir Ísland
Hjálmar segir að það skipti miklu
máli að sterk liðsheild standi að fram-
boði sem þessu, ekki aðeins hjá fasta-
nefnd Íslands í New York heldur
einnig og ekki síður heima í ráðuneyti
og jafnframt í sendiráðum Íslands á
erlendri grundu og hjá alþjóðastofn-
unum í Genf og Vín. Þá sé mikilvægt
að samfella verði í mannskap hjá
fastanefndinni eftir því sem nær
dregur.
„Við vitum það til að mynda að á
bilinu 35 til 50 af 191 fastafulltrúa
ákveða einfaldlega sjálfir í kosning-
unum hvaða ríki þeir kjósa til setu í
öryggisráðinu. Að hafa samfellu, að
menn þekki andlitið á íslensku
fulltrúunum, er því mikilvægt,“ segir
Hjálmar.
Hjálmar tekur fram að enn séu
menn fyrst og fremst staddir á kynn-
ingarstigi vegna framboðsins, aukinn
þungi færist þó í starfið í haust þegar
Danir verði væntanlega kjörnir í ör-
yggisráðið (Danir og Grikkir eru
frambjóðendur Vesturlandahópsins í
tvö sæti sem falla í hans hlut fyrir
kjörtímabilið 2005–2006). Danir séu
síðasta Norðurlandaþjóðin til að fara
inn áður en það kemur að Íslending-
um að spreyta sig í kosningum og
eðlilegt hafi verið talið að bíða með
eiginlega kosningabaráttu þar til kjör
Dana væri afstaðið.
Hjálmar segir að ákveðinn stígandi
verði að vera í baráttu Íslendinga fyr-
ir sæti í öryggisráðinu og nefnir dag-
setninguna 19. nóvember 2006 sér-
staklega í þessu samhengi, segir þá
tækifæri til að vekja athygli á fram-
boðinu innan SÞ. Þá séu sextíu ár lið-
in frá inngöngu Íslands í SÞ og þar sé
komið gott tilefni til að minna ræki-
lega á sig í kosningabaráttunni. Hug-
myndir séu uppi um íslenska matar-
og listkynningu o.fl., bæði þann dag
og síðar.
Fylgist með starfi
sérfræðinganefndar
Hjálmar segir fastanefndina fylgj-
ast eftir megni með starfi nefndar
valinkunnra sérfræðinga sem Kofi
Annan setti á laggirnar í fyrra til að
leggja fram tillögur til umbóta á
starfi SÞ (sjá meðfylgjandi frétt).
„Auðvitað höfum við okkar tengsl inn
í þessa nefnd með því að hafa sam-
band við fastafulltrúa hér hverra
landar eru í nefndinni. Menn binda
miklar vonir við þessa nefnd í sjálfu
sér,“ segir hann.
„Segja má að það sé ákveðinn póli-
tískur meðbyr með því að reynt verði
til þrautar að ná samkomulagi núna.
Á næsta ári verður leiðtogafundur,
haustið 2005. Þá eru samtökin jafn-
framt 60 ára og það er ákveðinn póli-
tískur skriðþungi hér af þessum sök-
um sem gæti leitt til þess að menn
næðu niðurstöðu í þessum viðkvæmu
málum. En þetta er auðvitað flókið,
það eru ákveðnar geópólitískar jöfn-
ur í þessu dæmi sem alls ekki er búið
að leiða til lykta.“
Hér er Hjálmar að vísa til þess að
jafnan er rætt um, svo dæmi sé tekið,
að Pakistanar myndu eiga erfitt með
una því að sjá Indverja fá fastasæti í
öryggisráðinu ef þeir ekki fá slíkt
sæti sömuleiðis. Þá sé næsta víst að
Afríka fái eitt fast sæti en sú álfa
muni hins vegar þurfa að ná niður-
stöðu um það hvaða tiltekna Afríku-
ríki fari inn í ráðið. Sama sé að segja
um Rómönsku Ameríku. Svo er óljóst
hversu mörg viðbótarsæti koma fyrir
kjörna fulltrúa í öryggisráðinu.
Verða sett takmörk um
beitingu neitunarvalds?
Fimmtán ríki eiga sæti í öryggis-
ráðinu eins og staðan er núna, þar af
fimm fastaríki með neitunarvald.
Hjálmar bendir hins vegar á að þetta
kerfi miðist að miklu leyti við stöðuna
eins og hún var þegar af stað var far-
ið, fyrir sextíu árum. Þá hafi aðild-
arríkin verið fimmtíu en séu nú 191.
Kjörnum ríkjum var að vísu fjölgað
um fjögur í ársbyrjun 1966, úr sex í
tíu, en allir séu sammála um að nú-
verandi staða endurspegli því ekki
SÞ eins og þær líti út núna. Málið sé
þó ekki einfalt úrlausnar. Mikil and-
staða sé við það hjá tilteknum ríkjum
að nýir fastafulltrúar í öryggisráði fái
sömu réttindi og þau fimm ríki sem
þar eru fyrir og hafa neitunarvald.
Hugmyndir um fyrsta og annan
flokk hjá fastaríkjum í ráðinu eigi
hins vegar alls ekki hljómgrunn alls
staðar heldur, t.d. hjá ríkjum sem
vonast til að fá fast sæti í ráðinu.
Rætt hefur verið um að til greina
komi að sett verði einhvers konar al-
menn takmarkandi ákvæði á neitun-
arvaldið, þ.e. um beitingu þess og
segir Hjálmar að slíkar hugmyndir
njóti stuðnings ríkisstjórnar Íslands,
svo dæmi sé tekið. Markmiðið sé að
tryggja að neitunarvaldi sé aðeins
beitt í undantekningartilfellum.
Hjálmar segir að eftir sem áður
verði ekki auðvelt að leiða þessi mál
til lykta. „Þó má ekki gleyma þessum
skriðþunga sem ég nefndi áðan, þess-
um áhuga sem margir hafa á því að
tryggja að á 60 ára afmælinu end-
urspegli samtökin raunveruleikann
eins og hann er 2005. Við skulum ekki
gera lítið úr því að kannski opnast
þessi möguleiki skyndilega, að það
verði vilji hjá þátttökuríkjunum að ná
fram þessu markmiði. Það tala nán-
ast allir um að það þurfi að endur-
skipuleggja, það eru bara skiptar
skoðanir á því hvaða leiðir á að velja.
Ýmsir kollegar mínir, fastafulltrúar,
hafa haft á orði að ef þetta næst ekki
núna þá muni líða nokkuð mörg ár
þangað til að jafnmikill skriðþungi
verði aftur.“
Breytingar hafa ekki
áhrif á framboð Íslands
Fari svo að hið ótrúlega gerist, að
samkomulag náist um breytingar á
öryggisráði SÞ myndu þær líklega
taka gildi áður en Ísland færi mögu-
lega inn í öryggisráðið. Hjálmar er
spurður að því hvort einhverjar vara-
áætlanir séu fyrir hendi í utanríkis-
ráðuneytinu ef svo færi að þessar að-
stæður breyttust.
„Nei, ekki er mér kunnugt um
það,“ segir hann. „Ef fjölgun yrði í ör-
yggisráðinu myndi að mínu mati ekki
verða erfiðara fyrir Ísland að ná
kjöri, en hugsanlega léttara. Hug-
myndir um að fjölga kjörnum sætum
í öryggisráðinu ganga fyrst og fremst
út á það að þróunarríkin fái þau sæti
þó að hugsanlegt sé að eitt kjörið sæti
detti til Vesturlandahópsins. Það er
þessi möguleiki sem myndi gera það
að verkum að þetta léttist hjá okkur.
En hann er mjög fjarlægur því að ég
held að þessi sæti fari til þróunarríkj-
anna,“ sagði Hjálmar W. Hannesson.
Samningar um gagnkvæm-
an stuðning liggja fyrir
Morgunblaðið/Davíð Logi
Hjálmar W. Hannesson á skrifstofu sinni í New York.
david@mbl.is
Aukinn þungi mun færast í kynningarstarf vegna
framboðs Íslands til setu í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna á næstu mánuðum. Davíð Logi Sigurðs-
son hitti Hjálmar W. Hannesson, fastafulltrúa Ís-
lands hjá SÞ, að máli í New York.
RÓTTÆKAR breytingar verða gerðar á skipan
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna ef tillögur starfs-
hóps sem Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, skip-
aði í nóvember í fyrra ná fram að ganga. Starfshóp-
urinn er skipaður sextán sérfræðingum frá jafn
mörgum löndum, m.a. þeim Brent Scowcroft, fyrr-
verandi þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna,
Jevgení Prímakov, fyrrverandi forsætisráðherra
Rússlands, og Gro Harlem Brundtland, fyrrver-
andi forsætisráðherra Noregs og framkvæmda-
stjóra Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO). Sérfræðinganefndin fundar í þessari viku
til að leggja síðustu hönd á skýrslu sína til Annans
og mun skila endanlegum tillögum sínum fyrir 1.
desember nk. En ljóst er að hópurinn hefur orðið
sammála um tiltölulega róttækar hugmyndir sem
hann telur að geti fyrirbyggt að SÞ hætti að skipta
máli, verði áhrifalaust málfundafélag. Mesta at-
hygli vekja tillögur hópsins að því er varðar skipan
öryggisráðsins. Núverandi fyrirkomulag miðast
við stöðuna í heimsmálunum eins og hún var við
stríðslok 1945, árið sem SÞ voru stofnaðar. Lengi
hafa því verið gerðar kröfur um að breytingar yrðu
gerðar, til að endurspegla betur stöðu mála eins og
þær eru nú. Starfshópurinn var sammála, að því er
The Economist greindi frá fyrir nokkru, að fjölga
bæri ríkjum í öryggisráðinu úr 15 í 24 og þau yrðu
síðan hér eftir flokkuð í þrjá hópa:
Ríkin fimm sem nú eru fastafulltrúar með
neitunarvald (Bandaríkin, Bretland, Kína, Frakk-
land og Rússland) myndu tilheyra einum flokki.
Öðrum flokki tilheyrðu sjö til átta ríki sem
segja má að yrðu því sem næst fastafulltrúar, kosið
yrði um viðkomandi ríki í hverjum heimshluta fyrir
sig á fjögurra til fimm ára fresti (Brasilía, Þýska-
land, Japan, Indland og Suður-Afríka myndu
hugsanlega tilheyra þessum flokki).
Í þriðja flokki yrði síðan kosið, líkt og nú er
gert, um 11–12 fulltrúa úr öllum heimsálfum sem
sætu tvö ár í senn í öryggisráðinu. Aðeins ríkin
fimm sem tilheyra fyrsta flokknum myndu hafa
neitunarvald í ráðinu.
„Ólíklegt að sátt náist“
Sérfræðinganefndin hefur ekki aðeins fjallað um
hvernig breyta megi skipan öryggisráðs SÞ, henni
var falið að fjalla um úrbætur á stofnanakerfi SÞ í
heild og leggja fram tillögur um hvernig gera
mætti starfsemina markvissari. David Malone,
fyrrverandi fastafulltrúi Kanada hjá SÞ og núver-
andi forseti Alþjóða friðarakademíunnar í New
York, sjálfstætt starfandi samtaka sem vinna sam-
hliða SÞ, segir í samtali við Morgunblaðið að
áherslan hafi þó verið á öryggisráðið. Það sé miður.
„Ríkin sem vilja fá fastasæti í ráðinu, einkum
Þýskaland, Japan og Indland, hafa barist hart fyrir
því að koma í veg fyrir að tillögur vinnuhópsins nái
fram að ganga. Það væri betri minnisvarði um
framkvæmdastjóratíð Kofis Annans ef hann legði
áherslu á það á síðustu árum sínum í embætti að
breyta og betrumbæta afstöðu SÞ til öryggismála í
heiminum og þeirra ógna sem að steðja. Sem fyrr
er ólíklegt að sátt náist um umbætur á örygg-
isráðinu.“
Leggja til róttækar breytingar á öryggisráðinu
AP
Frá frægum fundi öryggisráðsins í febrúar 2003
þegar Colin Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, kynnti gögn sem Bandaríkjamenn
töldu sanna að Írakar ættu gereyðingarvopn.
Annað kom á daginn.
ndi búinn við að velja úr miklum fjölda
rka sem Louisa lét eftir sig. Reynt hafi
rið að draga fram helstu einkenni og sýna
fnt fyrstu verk sem hin síðustu á sextíu
a listferli. Þá hafi t.d. verið gaman að geta
egið fram myndskreytingar og mynstur-
kningar, sem Louisa vann snemma á ferl-
um og sýna færni hennar á því sviði en
uisa sótti upphaflega menntun í grafískri
nnun í Kaupmannahöfn þó að hún hafi
ar helgað sig málaralistinni.
Einnig er á sýningunni bronsafsteypa af
mmu frá árinu 1960 en að sögn Temmu
nn móðir hennar um tíma gifsmyndir í
rðinum heima í New York á sumrin þegar
ýtt var í veðri, verk sem hafi verið gerð
l skil enn sem komið er. Þó að málverkið
í aðalhlutverki bregður sýningin því ljósi
ríka sköpunargleði Louisu og það hversu
ðvelt hún átti með að finna ástríðu sinni
rás. Úlla segir um verk ömmu sinnar að
r komi svo skýrt fram ást hennar á mynd-
ni sínu. „Öll viðfangsefni verkanna stóðu
nni nærri, fjölskyldan, gæludýrin, lands-
gið og umhverfið heima á Íslandi, allt var
álað af svo mikilli ást og alúð,“ segir Úlla.
Jú, það var svona grænt
Varðandi litanotkun í verkum Louisu
nnist Temma bílferðar um Ísland með
reldrum sínum eitt sinn þar sem móðir
nnar hafi lengi setið þögul í framsætinu
allt í einu sagt stundarhátt. „Jú, það var
ona grænt. Grasið var svona grænt.“ Það
fi komið henni þægilega á óvart hversu
ærri raunverulegum litum íslenskrar nátt-
u hún var í vinnustofu sinni í stórborginni.
fjarlægðin geri fjöllin blá, en þó ekki svo
ja blárri en þau séu.
uð í dag í Norræna húsinu
hins vegar haldin nk.
rmálaráðherra. Hulda
astamikils listmálara sem
ldrei verið fjarri.
ldastefansdottir@yahoo.com