Morgunblaðið - 21.09.2004, Síða 27
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2004 27
✝ Ágústa GuðrúnHalldórsdóttir
fæddist í Reykjavík
10. október 1934.
Hún lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 7. september
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Hall-
dór Eiríksson, verka-
maður í Reykjavík, f.
á Ósabakka í Skeiða-
hreppi í Árnessýslu 5.
apríl 1889, d. 28.
október 1968 og Guð-
rún Guðjónsdóttir, f.
á Dísarstöðum í
Sandvíkurhreppi í Árnessýslu 11.
maí 1904, d. 18. maí 1945.
Ágústa giftist 9. apríl 1953 Sig-
urði Bjarnasyni, f. á Eskifirði 5.
ágúst 1932. Börn þeirra eru: Hall-
dór Ómar, f. 9. sept. 1953, Laufey
Guðrún, f. 10. feb.
1955, Atli, f. 13. sept.
1960 og Hafrún, f.
10. maí 1963. Ágústa
og Sigurður skildu
árið 1981.
Ágústa réð sig sem
kaupakona að
Helgustöðum við
Reyðarfjörð um 17
ára aldur. Hún hóf
síðan búskap ásamt
Sigurði á Hauka-
bergi á Eskifirði.
Þau fluttu síðan bú-
ferlum til Reykjavík-
ur um 1962. Ágústa
starfaði lengst af hjá Pósti og Síma
sem afgreiðslustúlka í póstaf-
greiðslustöðinni í 101 Reykjavík.
Útför Ágústu fer fram frá Frí-
kirkjunni í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
Hún sagði mér af því þegar hún
var sett upp á brúsapall við bæ einn
fyrir austan fjall. Koffortið var sett
við hlið hennar og í því voru allar
veraldlegar eigur 10 ára gamallar
stúlku sem þá var nýbúin að missa
móður sína. Rútan hélt áfram í aust-
ur og hvarf í rykmekki sem rútan
þyrlaði upp og léttur vorvindur
feykti honum yfir gróskumikil tún
sem lágu meðfram veginum. Hún
sneri sér við á brúsapallinum og
horfði til hrörlegs bæjar og sá engin
merki um mannaferðir en dökkur
hundur skokkaði niður tröðina í átt-
ina til hennar. Þessi hundur átti eft-
ir að verða sálusorgari hennar um
sumarið og hjálpa henni að komast
yfir móðurmissinn sem markaði
djúp sár í sál hennar alla tíð. Þessi
stund hvarf henni aldrei úr minni og
hún gleymdi heldur ekki þeirri
hörku og skilningsleysi sem mættu
henni á þessum bæ. Gleði hennar
var því mikil þegar hún kom aftur
heim til sín í Laugarnesið um haust-
ið til systkina sinna og föður. Hún
hafði talið að þangað kæmi hún ekki
aftur nema sem gestur þar sem
óvíst var hvort faðir hennar gæti al-
ið önn fyrir börnunum þar sem
hann var orðinn einn í þeirri bar-
áttu.
Hún sagði mér líka af því að hún
hefði átt margar góðar stundir í
Laugarnesinu. Hún sagðist hafa
verið dálítil strákastelpa í sér og
leikið sér jafnt með stelpum sem
strákum, hoppað yfir girðingar í elt-
ingarleikjum ef því var að skipta.
Það lýsir líka vel þeim krafti sem
hún bjó yfir, krafti sem þó hafði far-
ið þverrandi hin seinni ár.
Hún sagði mér frá veru sinni sem
kaupakona á Helgustöðum við
Reyðarfjörð og hvað henni leið vel
þar. Vinnan í brattri hlíðinni var
stundum erfið og hún varð að sækja
vatn um langan veg, en henni var
tekið vel og góðhjartaðir ábúendur
þar héldu vinskap við hana alla tíð.
Sem barn eða unglingur þá hugs-
ar maður ekki mikið út í það hvort
það þurfi að þvo þvotta, baka, taka
til eða vinna tvöfalda vinnu. Maður
er einfaldlega of upptekinn af sjálf-
um sér og vinum sínum. Ég man
það samt að eftir að hafa verið
kysstur góða nótt að ég sofnaði oft
við hljómfall fótataks hennar frá
eldhúsinu. Hún var þá að „ganga
frá“ eða baka súkkulaðikökuna sem
alltaf var til í „efri skápnum“. Morg-
uninn eftir var hún farin til vinnu
áður en við systkinin vöknuðum.
Dugnaði hennar er vel lýst með
því að segja frá því þegar hún fór
með okkur systkinin í berjamó bæði
í Heiðmörk eða út í Hafnarfjarð-
arhraun. Við vorum bíllaus en það
var engin hindrun, í berjamó skyldi
haldið. Með nesti og box undir berin
var arkað af stað og Hafnarfjarð-
arvagninn tekið suðureftir og stefn-
an tekin út í hraun. Þetta var laut-
arferð þar sem hún móðir mín bar
mest allan búnaðinn langan veg og
jafnvel litlu systur mína líka. Hún
hvatti okkur áfram þegar við fórum
að þreytast og lofaði okkur verð-
launum ef við næðum settu marki
og hún stóð við það.
Guð blessi móður mína og veri
henni náðugur alla tíð.
Starfsfólki hjartadeildar 14G á
Landspítala við Hringbraut þakka
ég kærleiksríka og fagmannlega
umönnun móður minnar.
Atli Sigurðarson.
,,Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og
trúið á mig.
Í húsi föður míns eru margar vistarverur.
Væri ekki svo, hefði ég þá sagt yður,
að ég færi burt að búa yður stað?
Þegar ég er farinn burt og hef búið yður
stað, kem ég aftur og tek yður til mín,
svo að þér séuð einnig þar sem ég er.
Veginn þangað, sem ég fer, þekkið þér.“
Tómas segir við hann: ,,Herra, vér vitum
ekki, hvert þú ferð, hvernig getum vér
þá þekkt veginn?“
Jesús segir við hann: ,,Ég er vegurinn,
sannleikurinn og lífið. Enginn kemur
til föðurins, nema fyrir mig.“
(Jóhannesarguðspjall 14:1-6)
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Ó, sólarfaðir, signdu nú hvert auga,
en sér í lagi þau, sem tárin lauga,
og sýndu miskunn öllu því, sem andar,
en einkum því, sem böl og voði grandar.
Þín líknarásján lýsi dimmum heimi,
þitt ljósið blessað gef í nótt mig dreymi.
Í Jesú nafni vil ég væran sofa
og vakna snemma þína dýrð að lofa.
(Matthías Jochumsson.)
Innileg samúð til barna og fjöl-
skyldna þeirra.
Systkini hinnar látnu.
Elsku Rúna mín.
Nú hefur þú fengið hvíldina,
pabbi var búinn að hringja í mig til
Danmerkur og segja mér frá því að
þú værir komin á spítala og við
hverju mætti búast. En alltaf kem-
ur kallið manni í opna skjöldu þegar
sjálfur dauðinn bankar upp á.
Nú hefur þú kvatt þessa jarðvist
og ert komin í faðm foreldra þinna,
þú hafðir oft talað um afa og ömmu
og nú veit ég að þau hafa tekið vel á
móti þér. Minningarnar hrannast
alltaf upp á stundum sem þessari,
sérstaklega þær góðu og þeirra vil
ég minnast. Þú varst sterk og dug-
leg kona, Rúna mín, og þegar við
komum í heimsókn til þín þá varstu
óðar komin með einhverjar kræs-
ingar á borð. Mér eru mjög minn-
isstæðar heimsóknir okkar mömmu
á Kleppsveginn og oft áttir þú
heimabakaðar kleinur eða Prins
Polo í skápnum þínum. Einnig
fannst mér alltaf gaman að koma til
hans Halldórs og við sátum oft og
horfðum á videó saman á meðan þið
mamma töluðuð inni í eldhúsi. Þú
varst mjög stolt af börnunum þínum
og myndir af þeim prýddu veggina
hjá þér. Í hvert skipti sem ég kom í
heimsókn til þín frá Danmörku,
byrjuðum við á því saman að skoða
nýjustu myndirnar þínar af börn-
unum, barnabörnum og langömmu-
börnunum og þú sýndir mér þær
með bros á vör og stolti í hjarta.
Seinustu árin skrifuðumst við á,
þú sendir mér alltaf falleg póstkort
af íslenskri náttúru þar sem þú
sagðir mér frá fjallgöngum þínum
og gömlum tímum. Einnig sagðir þú
mér frá fallegum stöðum á landinu
sem ég ætti að sýna Morteni. Þá eru
mér mjög minnisstæðar allar þínar
frásagnir af göngunum upp í Þórs-
mörk. Daginn áður en pabbi hringdi
í okkur hafði ég keypt póstkort
handa þér af danska krónprinsa-
parinu og ætlaði að senda það til
þín. En maður veit aldrei hvað ger-
ist á morgun.
Elsku Halldór, Gurra, Atli, Haf-
rún og fjölskyldur, ég, Morten og
Daníel sendum ykkur okkar dýpstu
samúðarkveðjur. Megi góður Guð
blessa minninguna um hana Rúnu
frænku.
Björk Brynjólfsdóttir
og fjölskylda, Álaborg.
Mig langar að minnast stór-
frænku minnar Ágústu Guðrúnar
Halldórsdóttur eða Rúnu eins og
hún var alltaf kölluð af fjölskyld-
unni.
Rúna ólst upp í Laugarnesinu
ásamt fjölskyldu sinni. Hún byrjaði
ung að vinna eins og títt var á þeim
tíma. Alla tíð var hún dugnaðarfork-
ur til vinnu, athafnasöm og gaf ekk-
ert eftir. Hvort sem var í kaupa-
vinnu, vinna með sjúku fólki á
Kleppsspítala eða á póstinum. Þó að
hún hafi átt við veikindi að stríða
seinustu árin, kemur dauðinn manni
alltaf í opna skjöldu. Það var svo
margt sem átti eftir að spjalla og
þakka. Minningarnar eru ófáar frá
Kleppsveginum sem sveima um
hugann nú. Þá var oft droppað í
heimsóknir enda mamma og Rúna
báðar sjómannskonur og miklar
vinkonur. Þá var nú ekki amalegt að
fá kleinurnar eða hafrakexið og fæ
ég vatn í munninn af tilhugsuninni
og hafa þær hvergi fundist betri.
Ofarlega er líka í huga mér þegar
við krakkarnir fórum með mömmu
og Rúnu að keyra Halldór upp í
Tjaldanes og yfirleitt þá með fullan
innkaupapoka af poppi. Reyndum
við að gera þessar ferðir spennandi
fyrir Dóra.
Rúna var mikil fjölskyldumann-
eskja og var afar stolt af börnum
sínum og barnabörnum og fylgdist
vel með öllum af mikilli hlýju og
umhyggju. Hún fylgdist einnig vel
með okkur systkinunum og okkar
börnum og hefur aldrei mátt neitt
aumt sjá. Sérstaklega fylgdist hún
vel með öllum stórum og smáum
sigrum hans Pálma. Fannst henni
gleðilegt að geta upplifað nýja tíma
í málefnum fatlaðra. Sérstaklega að
Pálmi gæti farið í almennan skóla
og fengið kennslu við sitt hæfi eins
og önnur börn. En það stóð þeim
ekki einu sinni til boða fyrir 45 ár-
um. Rúnu tókst það sem hún ætlaði
sér, það að koma börnum sínum til
manns og það gerði hún sannarlega
með glans. (Ekki ætlaði hún heldur
að halda upp á afmælið sitt nú í
október en þá hefði hún orðið sjötug
en ekki bjuggumst við samt við
þessu.) Það var alltaf gaman að
hitta Rúnu og áttum við margt sam-
eiginlegt, þó að kynslóð væri á milli
okkar, hvort sem voru ljóð eða mál-
efni minni máttar. Elsku Halldór,
Gurra, Atli og Hafrún, ég sendi
ykkur mínar innilegustu samúðar-
kveðjur, missir ykkar er mikill, en
einnig er stórt skarð höggvið í fjöl-
skylduna á Nesinu og ekki síst hjá
mömmu og pabba.
Elsku Rúna mín, nú ber einhver
annar með þér þína bagga, en við
hin höldum áfram. Það er vel við
hæfi að enda þetta á ljóðinu sem þú
gafst mér og hafðu þökk fyrir allt
og allt.
Vertu alltaf hress í huga
hvað sem kann að mæta þér.
Lát ei sorg né böl þig buga.
Baggi margra þungur er.
Treystu því að þér á herðar
þyngri byrði’ ei varpað er
en þú hefir afl að bera.
Orka blundar næg í þér.
(Erla.)
Guðrún Brynjólfs.
ÁGÚSTA GUÐRÚN
HALLDÓRSDÓTTIR
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
www.mosaik.is
LEGSTEINAR
sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
UNNUR ALDÍS SVAVARSDÓTTIR,
Stóragerði 19,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grensáskirkju fimmtu-
daginn 23. september kl. 13.30.
Blóm afþökkuð.
Hermann Þorsteinsson,
Sigurbjörg Hermannsdóttir,
Guðjón Hermannsson, Ying Xing Wang,
Þorsteinn Hermannsson, Sarah M. Valle
og ömmubörn.
Elskuleg móðir okkar og amma,
JÓHANNA ÁRNÝ RUNÓLFSDÓTTIR,
Sunnuhlíð,
Kópavogi,
sem lést fimmtudaginn 16. september, verður
jarðsungin frá Borgarneskirkju fimmtudaginn
23. september kl. 14.00.
Fyrir hönd ættingja,
Björn Á. Þorbjörnsson,
Ólafur Á. Þorbjörnsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUNNAR H. SIGURÐSSON
stýrimaður,
Hjallalandi 7,
sem lést mánudaginn 13. september, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
23. september kl. 13.30.
Ólöf Þór,
Jón Þór Gunnarsson, Sigríður Ólafsdóttir,
Gróa Gunnarsdóttir, Pétur Jóhannesson,
Gunnar Gunnarsson, Valva Árnadóttir,
Jóhanna Gunnarsdóttir, Pétur Ásgeirsson
og barnabörn.