Morgunblaðið - 21.09.2004, Page 36
MENNING
36 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
CHICAGO Á LAUGARDAGINN!
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00
Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA?
e. E. Albee
Aðalæfing lau 25/9 kl 13 - Kr 1.000
Frumsýning su 26/9 kl 20 - UPPSELT
Fi 30/9 kl 20, Fö 1/10 kl 20
PARIS AT NIGHT e. Jacques Prévert
í samstarfi við Á SENUNNI
Fi 23/9 kl 20, Fö 24/9 kl 20,
Síðustu sýningar
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Su 3/10 kl 20, Fi 7/10 kl 20, Su 17/10 kl 20
Fi 21/10 kl 20, Su 31/10 kl 20
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 26/9 kl 14, Su 3/10 kl 14,
Su 10/10 kl 14, Su 17/10 kl 14
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Tvenn Grímuverðlaun: Vinsælasta sýningin
og bestu búningarnir.
Lau 25/9 kl 20, Lau 2/10 kl 20, Lau 9/10 kl 20
Lau 16/10 kl 20, Lau 23/10 kl 20
Aðeins örfáar sýningar í haust
ÁSKRIFTARKORTIN GILDA Á SEX SÝNINGAR:
ÞRJÁR Á STÓRA SVIÐI OG ÞRJÁR AÐ EIGIN VALI - AÐEINS KR. 10.700 (Þú sparar 5.500)
TÍU MIÐA AFSLÁTTARKORT - FRJÁLS NOTKUN - AÐEINS SELT Í SEPTEMBER -
AÐEINS KR. 18.300 (Þú sparar 8.700)
VERTU MEÐ Í VETUR
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
SVIK e. Harold Pinter
frumsýn. fös. 1/10 kl. 20 UPPSELT
2. sýn. sun. 3/10 kl. 20 UPPSELT
3. sýn. fim. 7/10 kl. 20 UPPSELT
4. sýn. fös. 8/10 kl. 20 UPPSELT
5. sýn. sun. 10/10 kl. 20 örfá sæti laus
4 sýningar
á aðeins 6.500 kr.
Áskriftarkort!
HÁRIÐ - sýnt í Íþróttahöllinni
fös 24/9 kl. 20 - örfá sæti laus
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20
Sun. 10. okt. kl. 20 • fös. 15. okt. kl. 20 • sun. 17. okt. kl. 20
ATH. Allar sýningar hefjast kl. 20
Miðasala á Netinu: www.opera.is
Rakarinn morðóði
Óperutryllir eftir Stephen Sondheim
Fös . 1 .10 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 2 .10 20 .00 NOKKUR SÆTI
Fös . 8 .10 20 .00 LAUS SÆTI
AKUREYRI
Íþróttahöllin
Fös . 24 .09 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
„Hár ið er rosa lega krö f tug og
orkumik i l sýn ing sem sner t i mig“
-K ja r tan Ragnarsson , le iks t jó r i -
MEÐAL þeirra listviðburða sem
verða áberandi í upphafshátíð ís-
lenskrar menningarkynningar í
París, 27. september næstkomandi,
má telja frumsýningu á nýju dans-
verki Ernu Ómarsdóttur ballett-
dansara við lag Jóhanns Jóhanns-
sonar tónskálds, sem hann samdi
sérstaklega fyrir Ernu.
Að sögn Jóhanns er lagið nokk-
urs konar „barnagæla“. „Ég samdi
í rauninni lag fyrir hana sem er
unnið upp úr texta við gamla
barnagælu,“ segir Jóhann, sem hef-
ur samið tónlist fyrir fjölda leikrita
og dansverka á Íslandi. Hann bætir
við að verkið sé nokkuð drungalegt
og dæmigert fyrir hinn gamla tíma
hér á landi. „Dansverkið fjallar um
dauðastríð lítils fugls. Þetta er lítil
vísa um fugl sem er að deyja úr
kulda og vosbúð úti í hríðinni. Tón-
listin, sem er frekar elektrónísk, er
líka að miklu leyti unnin á harm-
óníum, sem er gamalt og gott
hljóðfæri hér á Íslandi. Síðan er
einnig unnið með hljóðið úr harm-
óníuminu og rödd Ernu í tölvu. Þá
má segja að gamlir og nýir tímar
mætist, við erum að leika okkur
með mjög sterkar andstæður, bæði
í dansinum og tónlistinni.“
Þetta er ekki fyrsta samstarf
þeirra Jóhanns og Ernu, en verk
þeirra IBM 1401, notendahandbók,
hefur notið mikilla vinsælda um
alla Evrópu og eru þau bókuð með
verkið fram til ársins 2006.
Jóhann mun einnig leika sína
eigin tónlist í Pompidou-safninu 30.
september og hefur sér til full-
tingis Ethos-strengjakvartettinn
og Matthías Hemstock ásláttarleik-
ara.
Þá verður á opnunardaginn
frumsýnt nýtt myndband við lag
Bjarkar Guðmundsdóttur, „Who is
it“. Þar er um að ræða fyrsta
myndbandið sem gert er við lag af
plötunni Medulla, en hinn heims-
frægi leikstjóri Spike Jonze hélt
um taumana við gerð þess og var
það að mestu leyti tekið upp hér á
landi.
Menningarkynning | Dansverk og myndband frumsýnd í París
Dimm og drungaleg
barnagæla
Morgunblaðið/Jim Smart
Erna Ómarsdóttir
Morgunblaðið/Kristinn
Jóhann Jóhannsson
Úrslitin í enska boltanum
beint í símann þinn
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
JÓNSI
SVEPPI
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
Söngleikurinn FAME þakkar fyrir sig
og kveður Smáralindina
Fim. 23. sept. kl. 19.30 LOKASÝNING
Stærstu og jafnframt áhrifa-mestu tískusýningarnar íheimi eru haldnar tvisvar á
ári í New York, London, Mílanó og
París. Á haustin er sumartískan
sýnd og á vorin vetrartískan. Til
viðbótar eru hátískusýningar og
fleiri sýningar en fyrrnefndar
„ready-to-wear“ eða beint af
slánni-sýningar eru það sem hvað
mest er horft til varðandi komandi
strauma og stefnur. Tískuvikan í
New York er einmitt nýliðin og
voru nokkrar myndasyrpur frá
henni birtar í Morgunblaðinu.
Tískuvika í London er tekin við og
verður líka fylgst með henni á síð-
um blaðsins.
Þegar
kaupendur
frá stærstu
verslunum í
heimi setjast
við sýningarpallinn á tískusýning-
unum á tískuviku í New York lítur
svo út fyrir að þeir séu að sjá nýju
línuna, lögunina og litina í fyrsta
skipti. Ekki er þó allt sem sýnist, að
því er New York Times afhjúpaði í
nýlegri grein. Aðrar sýningar á
sömu tísku hafa þá þegar farið
fram. Helstu vöruhús eru búin að
kaupa 60–80% af tískuvarningi
sumarsins 2005 frá nákvæmlega
sömu hönnuðum en markaðurinn í
kringum þetta kallast forsýningar.
Þessar forsýningar fara fram í her-
bergjum við eina helstu tískugöt-
una í New York, Seventh Avenue,
einhverjum mánuðum eða vikum
fyrir tískuviku. Fötin koma í versl-
anirnar í nóvember til janúar,
a.m.k. þremur mánuðum á undan
hefðbundnum pöntunum eftir
tískuviku.
Stærstu magnkaupendurnir hafaþví séð þetta flest áður þó
tískublaðamenn og lesendur þeirra
séu að sjá sumar- eða vetrartískuna
í fyrsta sinn á tískuviku.
Stóru tískusýningarnar eru
ennþá mikilvægar en hlutverk
þeirra er að breytast, frá því að
vera markaður í markaðstól. Þær
eru ætlaðar til að hafa áhrif á neyt-
endurna frekar en kaupendur hjá
verslunum og gerðar til að skapa
spennu meðal almennings í gegnum
birtar myndir, sjónvarpssýningar
og netumfjöllun.
Þessar forsýningar hafa orðið til
vegna kröfu viðskiptavinarins að
kaupa ný föt oftar en tvisvar á ári.
Krafan er ný og hefur þetta þróast
hratt síðustu ár. Hjá Calvin Klein
keyptu verslanir 20–30% fatnaðar-
ins snemma fyrir fimm árum en
núna eru þær búnar að festa kaup á
um 50–60% fatnaðarins fyrir stóru
tískusýningarnar.
Þetta virkar líka þannig að ef vel
er tekið í eitthvað ákveðið útlit á
forsýningu er það þróað áfram og
skreytt fyrir tískuviku. Hönnuðir
spara líka séstökustu hönnunina,
sem líklega er að vekja athygli, fyr-
ir tískusýningarnar.
Evrópskir hönnuðir, þeirra á
meðal Dolce & Gabbana og Chanel,
eru farnir að halda þessar forsýn-
ingar, ekki þó fyrir Evrópumarkað
heldur Bandaríkjamarkað. Evr-
ópubúar kaupa enn vorföt á vorin
o.s.frv. en hönnuðirnir neyðast til
að taka þátt ef þeir vilja vera á
Bandaríkjamarkaði.
Mikið af þessu er gert fyrir fjöl-miðlana,“ sagði Tom Murray,
framkvæmdastjóri Calvin Klein, í
samtali við New York Times. Sýn-
ingarpallarnir hafa annað hlutverk.
Þar breyta hönnuðirnir og stílist-
arnir fötunum örlítið og bæta við
fylgihlutum til að leggja áherslu á
skilaboð sköpunarinnar
„Stefnurnar verða fastmótaðri á
sýningarpöllunum. Síðasta haust
var mikið um nælur, flata skó,
slaufur og loðfeldi en það allt gerð-
ist bara á tískuviku,“ sagði Robert
Burke, tískustjóri vöruhússins
Bergdorf’s
Hönnuðir eru oft alla vikuna fyr-
ir sýningu að breyta röðuninni,
skipta um skartgripi, töskur og
skóna sem setja punktinn yfir i-ið.
Þannig gera þeir fötin söluvænni,
myndavænni og þar með líklegri til
að komast á forsíður tímaritanna.
„Hönnuðir byrja að bæta við
skreytingum fyrir sýningu, breyta
pilsasíddum og þess háttar,“ sagði
Burke. „Og það ætti alveg að halda
sér. En það er ekki hægt að byggja
traust viðskipti á slíku.“
Hlutverk tískusýninga
’Stóru tískusýning-arnar eru ennþá mikil-
vægar en hlutverk
þeirra er að breytast,
frá því að vera mark-
aður í markaðstól.‘
AF LISTUM
Inga Rún
Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is Reuters