Morgunblaðið - 21.09.2004, Page 41
Reuters
Hjónin Britney og Kevin Federline
ásamt hinni tveggja ára Kori.
um síðar að ekki bjó mikil alvara
þar að baki heldur var þetta gert í
ölæði, af mikilli fljótfærni. Hjóna-
bandið var því ógilt 55 tímum síðar.
Um leið og Spears, sem er 22 ára,
gekk í hjónaband með Federline
varð hún stjúpmóðir tveggja
stúlkubarna hans, sem hann á með
leikkonunni Shar Jackson. Eldri
stúlkan er tveggja ára en sú yngri
aðeins nokkurra vikna gömul.
Spears lýsti því yfir í júní að hún
hygðist giftast Federline. Að sögn
fréttamiðilsins ET ljómaði brúðurin
af gleði á brúðkaupsdaginn.
BANDARÍSKA poppstjarnan
Britney Spears gifti sig í annað sinn
á sunnudag. Sá heppni – að þessu
sinni – er að sjálfsögðu unnusti
hennar, dansarinn Kevin Federline,
og fór athöfnin fram á heimili vina
ungu hjónanna í Studio City í Kali-
forníu. 20–30 gestir voru viðstaddir
athöfnina og gæddu brúðhjónin og
gestir þeirra sér á kjúklingabitum
og svínarifjum.
Það vakti mikla athygli í janúar
þegar Spears og æskuvinur hennar,
Jason Alexander, giftu sig í Las
Vegas. Kom í ljós nokkurum stund-
Fólk í fréttum | Britney Spears gifti sig
Orðin stjúpmóðir
Morgunblaðið/Árni Torfason
Gestir Austurbæjar sáu Blonde Redhead í bleikrauðum ljóma.
TÓNLISTARUNNENDUR ís-
lenskir lifa á góðum tímum. Geta
hreinlega valið úr áhugaverðum og
fjölbreyttum tónleikum í viku
hverri, jafnt með innlendum sem
erlendum listamönnum í háum
gæðaflokki.
Tónlistin sem boðið var uppá í
Austurbæ á sunnudag var í þeim
hæsta, og á það við öll þrjú böndin
sem stigu á svið.
Hljómsveit Skúla Sverrissonar
hóf leikinn. Skúli naut þar stuðn-
ings einvala tólistarfólks; Hilmars
Jenssonar gítarleikara, Jóhanns Jó-
hannssonar hljómborðsleikara,
Hildar Guðnadóttur á selló og Ólaf-
ar Arnalds á fiðlum og öðrum
strengjahljóðfærum – en segja
mætti að Ólöf hafi að vissu leyti
leyst það hlutverk sem Eyvind
Kang hefur á stundum gegnt með
þeim Skúla, Hilmari og Jóhanni og
gerði hún það vel. Sköpuðu þau
saman einkar áheyrilegar hljóm-
afléttur, svo samofnar að á stund-
um fannst manni maður vera að
hlýða á eitt hljóðfæri. Afar spenn-
andi verður að heyra plötu með
þessu efni, sem ku vera í burð-
arliðnum.
Slowblow, huldusveit þeirra Orra
Jóns og Dags Kára, á eina mögn-
uðustu plötu sem út hefur verið
gefin á árinu og lék nokkur lög af
henni, vel studdir múmliðunum
Örvari Þóreyjarsyni Smárasyni og
Kristínu Valtýsdóttur, Ólöfu Arn-
alds – enn og aftur – og Ólafi Birni
Ólafssyni. Þá kom Þorgeir
„Singapore- og Funeralsliði“ Gunn-
arsson eilítið við sögu. Þetta voru
þriðju tónleikar Slowblow síðan
hún vaknaði úr dvala og báru svo-
lítil merki þess. Ekki hefur enn
tekist að laða fram þá dæmalausu
töfra sem tónlistin á plötunni er
gædd, og er ég reyndar ekkert of
viss um að það eigi nokkru sinni
eftir að takast. Lögin virka nefni-
lega á mann sem einstæð sköpun,
lög sem nostrað var við á upptöku-
tímanum, svo róleg og of-
urbrothætt, lög augnabliksins, lög
sem verða ekki endurtekin. En góð
eru lögin og flutningurinn var hríf-
andi þrátt fyrir hnökrana.
Eymdin er unaðsleg, alveg un-
aðsleg – í meðförum Blonde Red-
head. Nýja platan Misery Is a
Butterfly er uppfull af þessari un-
aðslegu eymd, hádramatískum lög-
um og kolsvörtum; ofurtilfinn-
inganæmri naflaskoðun. Rétt eins
og bandið hafi drukkið í sig arfleifð
frá nýja útgáfufyrirtækinu 4AD,
skuggasveitum á borð við This
Mortal Coil og Cocteau Twins.
Platan er þannig talsvert íburð-
armeiri og um margt hefðbundnari
en síðustu plötur. Um leið ber
minna á naumhyggjunni, tilrauna-
mennskunni og „hljómanýtninni“
sem fylgdi hinni takmörkuðu hljóð-
færaskipan, tveimur gíturum og
bassa, sem gerði Melody of Certain
Damaged Lemons svo heillandi.
Þannig að þótt Misery is A Butt-
erfly innihaldi mörg ægifögur og
kynngimögnuð lög er ekki laust við
að hún sé ögn einhæf á köflum og
á það til að fara yfir strikið í
dramatíkinni.
Tónleikar Blonde Redhead í
Austurbæ endurspegluðu það upp
að vissu marki, enda lagði sveitin
mesta áherslu á þessa nýju plötu –
eðlilega. Ég var í fámennum hópi
sem sá sveitina leika á hreint
ógleymanlegum tónleikum í Laug-
ardalshöll sumarið 2001. Þá voru á
efnisskránni lög af Melody of
Certain Damaged Lemons og
fannst mér lifandi flutningur á
þeim töluvert meira spennandi en
flutningur á lögunum Misery is A
Butterfly. Tvennt veldur; auðvitað
er upplifunin alltaf sterkari þegar
maður sér góða tónleikaleikasveit í
fyrsta sinn, en svo held ég að lögin
af Misery is A Butterfly séu líka
mun vandmeðfarnari á sviði enda
eru útsetningar eins og fyrr segir
íburðarmeiri. Fór maður þannig að
sakna ýmissa hljóðfæra, eins og
strengjanna í „Elephant Woman“,
„Doll is Mine“ og titillaginu frá-
bæra. Sterkari urðu því í einfald-
leika sínum hráu rokkuðu lögin
„Falling Man“ – Rush-legt í meira
lagi – og „Eqvvs“ – sem er það lag
sem vex hvað mest við lifandi flutn-
ing.
Um frammiðstöðu þeirra þre-
menninga verður hinsvegar ekki
deilt. Á sviði eru þau engum lík,
hvert með sinn frábæra afgerandi
stíl, heillandi. Kazu dansandi með
gítar sinn eins og í upphafskynn-
ingu á gamalli Bond-mynd,
Amedeo í leiðslu með gítarinn sinn
og Simone, já Simone dáleiðir
mann fullkomlega með lygilega
fjölbreyttum trommuleik. Hlýtur að
teljast með þeim bestu og kraft-
mestu en verulega sértæður stíll
hans minnir mann einna helst á
Sigtrygg Baldursson í Kuklinu, eða
Tóta úr Risaeðlunum í trans.
Blonde Redhead hélt fullum sal í
Austurbæ hugföngnum í vel á ann-
an tíma, með leik sínum, og þakk-
aði uppklappið með langri, næstum
of langri, en áhrifamikilli músík-
orgíu. Þau sögðu lítið, Kazu þakk-
aði fyrir sig að kurteisum jap-
önskum sið og hrósaði íslensku
listamönnunum. Létu svo tónlistina
tala. Tónlist sem maður vonast til
að heyra aftur – og aftur – á ís-
lensku sviði.
Tónlist
Austurbær
Blonde Redhead
Tónleikar í Austurbæ sunnudaginn 19.
september. Fram komu Blonde Redhead,
Slowblow og hljómsveit Skúla Sverr-
issonar.
Skarphéðinn Guðmundsson
Fljúga
eymdarinnar
fiðrildi
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2004 41
Fréttasíminn
904 1100
18.09. 2004
Tvöfaldur
1. vinningur
í næstu viku
16
7 1 6 6 5
9 6 0 2 1
18 19 24 33
36
15.09. 2004
15 17 24 27 28 29
18 26 30
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4539-8618-0017-6940
4507-4300-0029-4578
4507-4500-0033-0693
4543-3700-0047-8167
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50. Ísl tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 Ísl tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.20.
SÝNIÐ ALDREI SLÆMA LITINN
ÞVÍ ÞAÐ VEKUR ATHYGLI ÞEIRRA.
I I I I
Í I I .
G.E.
Ísland í bítið/Stöð 2
Kvikmyndir.com
S.K., Skonrokk
ÁLFABAKKI
4, 6, 8 og 10.10. B.i. 14 ára
KRINGLAN
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.20. b.i. 14 ára
KRINGLAN
Sýnd kl. 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8. B.i 14 ára.
Ein steiktasta grínmynd ársins
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. B.i. 14 ára.
AKUREYRI
Sýnd kl. 10.20.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
Lífið er bið
Frábær og eftirminnileg kvikmynd eftir
meistaraleikstjórann, Steven Spielberg.
Með Óskarsverðlaunahöfunum Tom
Hanks og Catherine Zeta Jones.
r r ftir i il i ftir
ist r l i stj r , t i l r .
r r l f
s t ri t J s.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8.
S.V. Mbl.
DV
Ó.H.T. Rás 2
Tom HanksT s Catherine Zeta Jonesi
THE
BOURNE
SUPREMANCY
GEGGJUÐ GRÍNMYND
Kvikmyndir.comvi y ir.c
Rómantísk spennumynd
af bestu gerð
í
Ástríða sem deyr aldrei
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP
KL. 5.40, 8 OG 10.20.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50 og 10.
ThePrince
and me
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
skipuð þeim Magnúsi Eiríkssyni sem
leikur á gítar og syngur, og Pálma
Gunnarssyni sem spilar á bassa og
syngur. Þeim til fulltingis verða þeir
Benedikt Brynleifsson á trommur og
Agnar Már Magnússon á hljómborð.
Svo má búast við að þeir fái til sín
góða gesti upp á svið. Zonet-útgáfan
stendur fyrir útgáfutónleikunum.
Miðaverð: 2.200 kr. Sími í miðasölu er
5 700 400. Miða-
sala Salarins er
opin virka daga
kl. 9.00–16.00 og
klst. fyrir tón-
leika.
Einnig er hægt
að kaupa miða á
Netinu á vefsíðu
Salarins,
www.salurinn.is.