Morgunblaðið - 02.11.2004, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ELDGOS HAFIÐ
Eldgos hófst í Grímsvötnum í
Vatnajökli í gærkvöldi í kjölfar mik-
illar skjálftahrinu. Almannavarna-
nefnd var þegar kölluð saman til að
skipuleggja viðbrögð. Hringveg-
inum var lokað og flugumferð beint
suður fyrir land.
Hóta viðræðuslitum
Ef ekki fást svör frá fulltrúum rík-
isins um leiðréttingar á tekjustofnun
ríkisins á næsta fundi tekjustofna-
nefndar munu sveitarfélögin slíta
viðræðum við ríkið. Þetta kom fram
á fjármálaráðstefnu sveitarfélag-
anna í gær.
Varð konu sinni að bana
Tæplega þrítugur karlmaður ját-
aði við yfirheyrslur í gær að hafa
orðið eiginkonu sinni að bana í fyrri-
nótt í íbúð þeirra í Hamraborg í
Kópavogi. Virðist maðurinn hafa
þrengt að öndunarvegi konunnar
þar til hún lést.
Kosið vestra í dag
Forsetakosningar fara fram í
Bandaríkjunum í dag. Stjórn-
málaskýrendur þora ekki að spá um
sigur í kosningunum en skoð-
anakannanir sýna að þeir George W.
Bush og John Kerry hafa nánast
sama fylgi. Metþátttöku er spáð í
kosningunum og fylgjast menn sér-
staklega með því hvað gerist í
nokkrum ríkjum, þar sem mjög
mjótt er á mununum. Nefna menn
ríki eins og Ohio, Pennsylvaniu og
Flórída sérstaklega í því sambandi.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 26
Viðskipti 12/14 Bréf 28
Erlent 15 Umræðan 26/28
Höfuðborgin 17 Minningar 29
Akureyri 17 Dagbók 36/38
Suðurnes 18 Kvikmyndir 40
Landið 18 Fólk 42/45
Daglegt líf 20/21 Bíó 42/45
Listir 39/41 Ljósvakar 46
Forystugrein 24 Veður 47
* * *
Morgunblaðinu fylgir auglýsingablað-
ið Í hjartastað.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
TÖLVUPÓSTUR fór eins og eldur
um sinu í gær milli fólks þar sem
neytendur voru hvattir til að snið-
ganga stóru olíufélögin; Esso,
Skeljung og Olís, með önnur vöru-
kaup en bensín. Af póstinum má
ráða að tilefnið sé skýrsla Sam-
keppnisstofnunar um meint ólög-
mætt samráð félaganna.
Markaðsstjórar og talsmenn ol-
íufélaganna, sem samband náðist
við í gærkvöldi, sögðust ekki hafa
orðið varir við áhrif af dreifipóst-
inum á viðskipti á bensínstöðvun-
um, „ekki enn sem komið er,“ eins
og einn þeirra orðaði það.
Í tölvupóstinum stóð meðal ann-
ars: „Olíufélögin stálu af okkur
peningum í mörg ár. Það liggur
skýrt fyrir í niðurstöðum Sam-
keppnisstofnunar. Þeir viðurkenna
það en segja að málið sé fyrnt.
Þeir vilja ekki borga sektir eða
skaðabætur, vegna þess að það er
svo langt síðan þeir stálu frá okk-
ur. Við getum svarað fyrir okkur.
Það þýðir ekkert að hafa bensín-
lausan dag. Það er bara rugl því
þá verslum við bara meira á morg-
un. Við refsum þeim með budd-
unni og kaupum BARA BENS-
ÍN!“
Fólk hvatt til
að kaupa ein-
ungis bensín
Olíufélögin hafa ekki orðið vör við
áhrif af dreifipóstinum á Netinu
FERMINGARBÖRN úr 54 sóknum um allt land gengu í
hús í gær og söfnuðu fé til verkefna Hjálparstarfs
kirkjunnar í Afríku, og var þetta í sjötta sinn sem ferm-
ingarbörn hjálpa til við söfnunina. Í fyrra söfnuðu
fermingarbörnin 5,4 milljónum króna og nam söfnunin
um 13% af heildarsöfnunarfé stofnunarinnar. Á mynd-
inni eru fermingabörnin í Grensássókn að taka við
söfnunarbaukum sem þau gengu um með.
Fermingarbörn safna fé
Morgunblaðið/Golli
LÖGREGLAN í
Reykjavík lýsir
eftir fimmtán ára
gamalli stúlku,
Elfu Maritu
Ágústsdóttur,
fæddri 30. desem-
ber 1988. Síðast
spurðist til henn-
ar 26. október.
Elfa er 168 cm á hæð og um 52 kg að
þyngd. Ekki er vitað um klæðnað.
Þeir sem kynnu að vita um dvalar-
stað Elfu, eða ferðir hennar síðast-
liðna daga, eru beðnir um að hafa
samband við lögregluna í Reykjavík í
síma 444 1100.
Lýst eftir 15
ára stúlku
SÁ óvenjulegi atburður átti sér stað
í Grafarvogskirkju sl. sunnudag að
tugir gesta á tónleikum Óperukórs-
ins og Karlakórsins Þrasta
streymdu burt í hléi. Ekki er álitið
að skýringin sé sú að fólkinu hafi
mislíkað flutningurinn á hinni miklu
óratóríu Mendelssohns, Elía, enda
var klappað mikið og lengi, heldur
hitt, að því hafi ekki verið ljóst að
hann var aðeins hálfnaður.
Ríkarður Ö. Pálsson, tónlistar-
gagnrýnandi Morgunblaðsins, ljær
máls á þessu í umsögn í blaðinu í
dag.
Hann getur sér þess til að við tón-
leikaskrána geti verið að sakast en í
henni var í engu getið 42 þáttanúm-
era verksins „og kann það sam-
bandsleysi að hafa ruglað ókunnug-
ustu áheyrendur svo í ríminu að
nokkrir tugir hurfu á brott í hléi,
sennilega í þeirri góðu trú að verk-
inu væri lokið, enda var þá klappað
mikið og lengi“, segir Ríkarður.
Var Elía
ekki öllum
lokið?
Með spámann/19
Ljósmynd/Hrafn Óskarsson
DÓMPÁPAR (pyrrhula pyrrhula)
heimsóttu Tumastaði í Fljótshlíð
um hádegisbil í gær og dvöldu þar
fram í myrkur, að sögn Hrafns Ósk-
arssonar garðyrkjufræðings og
fuglaáhugamanns. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem dómpápar heim-
sækja Tumastaði, en síðast sást
þessi tegund þar veturinn 1995–96.
„Þeir eru frekar sjaldgæfir,“
sagði Hrafn. „Nú sáust tvær kerl-
ingar og einn karl. Hann er meira
áberandi enda eldrauður.“
Fuglaáhugamenn í Vestur-
Evrópu hafa fylgst með miklu
dómpápafari austan úr Síberíu und-
anfarið. Sagt er að auðveldast sé að
greina þá frá vestrænum ættingjum
á hljóðunum, sem þykja helst minna
á bílflaut. Hrafn treysti sér ekki til
að fullyrða hvaðan dómpáparnir á
Tumastöðum væru komnir. „Hinir
flauta nú líka, en ég þori ekki að
greina þarna á milli. Ég heyrði
heldur ekki svo mikið í þeim.“
Skógurinn á Tumastöðum laðar
að marga flækingsfugla. Hrafn
sagði að þetta haust hefði reynst
fremur gjöfult. Hann er búinn að
sjá silkitoppur, hettusöngvara,
rósafinku, hauksöngvara og garð-
söngvara. Sá sjaldgæfasti er líklega
næturgali sem kom um daginn.
Söngurinn
minnir á
bílflaut
FORRÁÐAMENN Viðskiptahá-
skólans á Bifröst hafa sýnt því áhuga
að þar verði reist kirkja. Á Bifröst er
risið þorp þar
sem búa meira en
600 manns. Sam-
kvæmt skipulagi
Steves Christers,
arkitekts og
hönnuðar bygg-
inga á Bifröst, er
gert ráð fyrir
kirkju á fallegum
stað ofan við nú-
verandi skólahús
og við hlið vænt-
anlegs grunnskóla.
Nýlega heimsótti Karl Sigur-
björnsson, biskup Íslands, staðinn
ásamt sr. Þorbirni Hlyni Árnasyni
prófasti, sr. Brynjólfi Gíslasyni,
sóknarpresti í Stafholti, og Steve
Christer. Skoðuðu þeir aðstæður og
ræddu við forsvarsmenn Við-
skiptaháskólans. Að sögn biskups
hefur komið til tals á liðnum árum að
flytja niðurlagða kirkju að Bifröst. „Í
samtali okkar og Runólfs Ágústsson-
ar rektors og Magnúsar Árna Magn-
ússonar aðstoðarrektors fannst mér
áhugavert að kanna að reisa þarna
kirkju sem væri í samræmi við það
nútímalega og tæknivædda samfélag
sem þarna er að rísa,“ sagði Karl.
Að sögn biskups er málið enn á
frumstigi. Bifröst er í útjaðri
Hvammssóknar í Norðurárdal og
hefur málið ekki verið rætt innan
sóknarinnar. Eins er eftir að kanna
umfang verksins og fjármögnun.
Hugmynd
að reisa
kirkju á
Bifröst
Karl
Sigurbjörnsson
♦♦♦