Morgunblaðið - 02.11.2004, Síða 43
VINCE VAUGHN BEN STILLER
www.laugarasbio.is
COLLATERAL
Fór beint á
toppinn
í USA!
Mbl.
Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal.Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.Sýnd kl. 8. B.i. 16 ára.
Kvikmyndir.is
DV
Kvikmyndir.is
JAMIE FOXXTOM CRUSE
Sýnd kl. 5, 8 og 10.30 B.i. 16 ára.
Bakvið martraðir hans leynist óhugnalegur sannleikur
DENZEL WASHINGTON MERYL STREEP
www.regnboginn.is
Nýr og betri
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID
ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...ENN BLÓÐÞYRSTARI!
KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR
HÁRIN TIL AÐ RÍSA.
Loksins mætast frægustu skrímsli
kvikmyndasögunnar í mögnuðu uppgjöri!
Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.50. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Bardaginn um framtíðina er hafinn og
enginn er óhultur
Hörkuspennandi ævintýramynd ólík
öllu öðru sem þið hafið séð áður.
Frá leikstjóra Silence of the Lambs
Þorirðu að velja á milli?
Fór beint á
toppinn USA!
Hverfisgötu ☎ 551 9000
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Snargeggjuð
gamanmynd
frá hinum
steikta
Scary Movie hóp
Gwyneth Paltrow l
Jude Law
Angelina Jolie
á allar erlendar myndir
í dag, ef greitt er með
Námukorti
Landsbankans
á allar erlendar myndir
í dag, ef greitt er með
Námukorti
Landsbankans
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 2004 43
Elton John segist ekki taka bræð-isköst viljandi – þau séu hluti af
því að vera skapandi manneskja.
Elton sagði í samtali við Sunday
Times að hegðun hans hefði breyst
frá því hann hætti vímuefnaneyslu
fyrir 14 árum.
„Reiðin og skapofsi eru enn til
staðar … en það er hluti af því að
vera skapandi,“ segir söngvarinn.
Hann er frægur fyrir bræðisköst
sín. Í síðasta mánuði gerði hann
hróp að taívönskum ljósmyndurum
sem tóku myndir
af honum þegar
hann lenti á flug-
vellinum í Taipei.
Sagði Elton þá
„dónaleg og ill-
gjörn svín“. Viku
síðar sagði hann
að Madonna léti
aðdáendur sína
greiða himinhátt
verð fyrir að fá að hlusta á varasöng
hennar. Elton segist vera að vinna í
því að ná betri stjórn á skapi sínu.
Leikkonan Lindsay Lohan, semsló í gegn í Freaky Friday,
þurfti að leggj-
ast inn á spít-
ala fyrir helgi
vegna þess að
hún var með
háan hita og
slæman höf-
uðverk. Fresta
varð tökum á
myndinni
Herbie: Fully
Loaded – end-
urgerð á gömlu Disney-myndinni –
vegna veikinda Lohans, sem er 18
ára. Síðustu fréttir af stúlkunni eru
þær að hún er nú komin heim af spít-
alanum en þarf að hafa hægt um sig
á næstu vikum.
Fólk folk@mbl.is
410 4000 | landsbanki.is
Banki allra námsmanna
Tilboðið gildir á allar erlendar myndir
í Smárabíói, Laugarásbíói, Regnboganum
og Borgarbíói Akureyri þegar þú greiðir
með Námukortinu. Góða skemmtun!
FRÆGA fólkið í Bandaríkjunum hef-
ur haft sig óvenjumikið í frammi nú á
síðustu dögum fyrir kosningar og er
almennt talið að langt sé síðan stjörn-
urnar hafi látið sig forsetakosningar
svo miklu varða.
Það er líka gamalt kosningabragð
að láta frambjóðendur slá sér upp
með eins mörgum og skærum stjörn-
um og mögulegt er, í þeirri von að
það hafi áhrif á einmitt þá sem síst
eru líklegir til að nenna á kjörstað,
unga fólkið.
Margar stjörnur telja þó enn að
ekki sé ráðlegt fyrir frama þeirra að
ljóstra upp stjórnmálaskoðunum, að
þær bendli sig við einn frambjóðanda
fremur en annan. Betra sé að hafa
allar dyr (á Hvíta húsinu) opnar.
Áberandi fleiri stjörnur hafa fylkt
sér á bak við frambjóðanda demó-
krata, John Kerry. Fræga fólkið slóst
t.a.m. um að komast að á fjáröfl-
unarsamkomu fyrir framboð Kerrys
fyrir helgi og mátti þar sjá söngv-
arann Neil Diamond og leikarana
Ben Stiller, Robert De Niro og Leon-
ardo DiCaprio.
Færri hafa stutt Bush forseta op-
inberlega, utan líklegra kandídata
eins og ríkisstjórans og repúblík-
anans Arnold Schwarzenegger, en þó
nokkrir hafa hafa lýst yfir stuðningi
við stríðsyfirlýsingar forsetans gegn
hryðjuverkamönnum.
Breski söngvarinn Morrissey –
sem nú býr í Los Angeles – hefur lát-
ið hafa eftir sér að „eina vitið“ sé að
kjósa Kerry því forsetinn hafi gert
bandarísku þjóðina að þeirri tauga-
veikluðustu í heimi því fólk sé heltek-
ið af hryðjuverkavánni.
Kjósið breytingar
Það hefur loðað við listamenn og
skemmtikrafta að vera hallari undir
vinstri-hugsjónir í pólitík og því ber
mjög á hatrammri andstöðu gegn
Bush forseta í þessum röðum.
Hópur heimsfrægra tónlistar-
manna fór þannig í 11 daga tónleika-
ferð til ríkja þar sem tvísýnt þykir
hvernig akvæði munu falla, í því
skyni að leika tónlist og hvetja menn
til að kjósa Kerry. Einn ötulasti
stuðningsmaðurinn úr röðum stjarn-
anna var þar í fararbroddi, Bruce
Springsteen, en með honum léku m.a.
Pearl Jam, REM og The Dixie
Chicks. Yfirskrift tónleikaferð-
arinnar var „Kjósið breytingar“.
Springsteen kom síðan fram með
Kerry á kosningasamkomu í Wisc-
onsin og Ohio, þar sem hann lék lagið
„No Surrender“ fyrir framan 80 þús-
und stuðningsmenn Kerrys. Þá kom
söngkonan Sheryl Crow fram á kosn-
ingasamkomu Kerrys í Las Vegas og
söng mótmælasöngva sem ákölluðu
breytingar.
En Bush forseti á sína stuðnings-
menn úr röðum stjarnanna. Þannig
lýsti grínistinn Dennis Miller því yfir
hjá Jay Leno að hann væri „aðdáandi
Bush“, einkum vegna framgöngu
hans í Íraksstríðinu. Fred Thompson,
leikari í sjónvarpsþáttunum Law and
Order og fyrrum öldungadeild-
arþingmaður fyrir repúblíkana kom
fram í stuðningsauglýsingu fyrir
Bush.
Frasier er stuðningsmaður forset-
ans, eða réttara sagt Kelsey Gram-
mer leikari, og þá hefur Reba
McEntire kántrísöngkona og leik-
kona látið fé af hendi rakna í kosn-
ingasjóð Bush.
Á meðan stuðningsmenn Bush for-
seta kjósa að láta fara minna fyrir sér
halda stuðningsmenn áfram allt fram
á kosningadag að ákalla þjóðina til að
„kjósa breytingar“. Springsteen kom
þannig fram á stuðningssamkomu
fyrir Kerry í Cleveland í gækvöldi,
nokkrum stundum áður en kjörklef-
arnir voru opnaðir.
Stjórnmál | Forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum
Stjörnurnar
safna fylgi
Reuters
Bush forseti hefur reitt sig mjög á
stuðning ríkisstjóra Kaliforníu,
Arnold Schwarzenegger.
Reuters
Springsteen og Kerry sneru bökum
saman á kosningasamkomu í Ohio
fyrir helgina.