Sunnudagsblaðið - 13.03.1960, Side 9

Sunnudagsblaðið - 13.03.1960, Side 9
Smásaga eftir Graham Greene hver horfir á þá. Bjarmi frá götuljósi féll á andlit hans og frú Salmon sá, að augu hans voru óttaslegin og villt, eins og augu dýrs, þegar maður lyftir svipunni. Seinna talaði ég við frú Sal mon. Það var skömmu eftir að hinn óvænti dómur hafði ver- ið felldur í málinu. Hún var þá mjög hrædd um líf sitt. Og ekki kæmi mér á óvart, þótt svipuðu máli hafi gegnt um hin vitnin: Henry MacDougall, sem seint um nóttina hafði komið akandi í bíl heim frá Bent- fleet, hafði nærri því ekið yf- ir Adams á horninu á North- wood Street. Adams hafði gengið á miðri götunni, eins og hann gengi í svefni. Og Wheeler gamli, sem bjó í hús- inu við hliðina á litla rauða húsinu hennar frú Parkers, hafði vaknað við hávaða. Það var eins og stóll hefði fallið á gólf. Hann heyrði hljóðið mj ög greinilega. þar sem hús- in voru samliggjandi og að- eins þunnur veggur á milli þeirra. Hann hafði farið á fæt- ur og horft út um gluggann á sama hátt og frú Salmon. Hann hafði séð aftan á Ad- ams, en þegar hann sneri sér við, sá hann blóðhlaupin og útstæð augu hans. í Lauerel Avenue hafði enn eitt vitni séð Adams umrædda nótt. — Hann hafði vissulega verið ó- heppinn eða öllu heldur und- arlega ónærgætinn. Hann hefði allt eins getað framið glæp sinn um hábjartan dag! — Eftir því, sem ég bezt veit, sagði saksóknarinn, hef- ur verjandi ákærða í hvggju að færa sönnur á, að í máli heiðarleg útlits, varkár og sköruleg. Saksóknarinn fékk hana með góðu móti til þess að segja, það, sem hún vissi. Hún talaði hratt og ákveðið. Það var engin iilgirni í framburði hennar og ekkert, sem gat bent til þess, að málið hefði neina þýðingu fyrir hana sjálfa. Hún stóð hnarreist í vitnastúkunni fyrir framan dómara í rauðri skikkju, sem hlustaði með athygli á mál hennar og blaðamenn, — sem skrifuðu hvert orð niður eftir henni. Hún kvaðst hafa farið niður á fyrstu hæð og hringt á lögregluna. — Getið þér séð manninn hér í réttarsalnum? Hún leit yfir salinn og í átt- ina að stúku hins ákærða. —>• Hann sat þar hinn stóri og þrekvaxni maður og starði hörkulega á hana með sínum tilflnningalausu og voveiflegu augum. — Já, sagð hún. Hann er þarna. — Þér eruð vissar um, að þetta sé hann? — Já, hann er þannig útlits, að það er ekki líklegt, að menn villist á honum. Svona einfalt virtist málið vera. — Takk fyrir, frú Salmon. 'Verjandinn stóð nú á fætur til þess að spyrja vitnið í þaula. Ef þér hefðuð fylgzt með jafn mörgum morðmál- um og ég, munduð þér líka hafa vitað fyrirfram, hvernig hann tæki málinu. Og ég hafði á réttu að standa, að vissu marki þó. — Frú Salmon! Gerið þér yður Ijóst, að á vitnisburði yð- ÞETTA var undarlegasta morðmál, sem ég hafði komizt í kynni við. Þeir kölluðu það Peckinghammorðið í stórletr- uðum fyrirsögnum blaðanna, enda þótt Northwood Street, þar sem gamla konan hafði fundizt, með mölbrotið höfuð, væri strangt tekið ekki í Peck ingham. Þet.ta var ekki eitt af þeim málum, þar sem allt byggist á líkindum og þegar maður finnur óöryggi kvið- dómenda.Þeim hefur júskjátl azt, og þá finnst mér alltaf eins og knýjandi, dauðakyrrt og loftþétt rúm hvíli yfir rétt- arsalnum. Nei, þessi morðingi hafði beinlínis fundizt við hlið ina á líkinu. Þegar saksókn- arinn lagði fram málið, var ekki einn af viðstöddum, sem fullyrti að ákærði væri hinn seki. Hann var stór og þrekvax- inn maður með blóðhlaupin okg útstæð augu. Það var eins og allir vöðvarnir væru saman- komnir í lærunum á honum. Hann var allur þannig í hátt, að sá sem einu sinni sá hann, hlaut að þekkia hann aftur og gleyma honum ekki fyrst um sinn. Þetta var mergurinn málsins að dómi saksóknar- ans, Hann lýsti því yfir, að hann mundi leiða fram fyrir réttinn fjögur vitni, sem ekki hefðu gleymt þessum manni, sem hefðu séð hann hraða sér frá gamla rauða húsinu í Northwood Street. Klukkan var þá nákvæmlega tvö að næturlagi. Frú Salmon í Northwood Street númer 15 hafði ekki getað sofið þessa umræddu nótt. Hún hafði heyrt smell, sem hún hélt að væri í sínu elgin garðshliði. Þess vegna gekk hún að glugganum og sá Adams (en svo hét ákærði) standa á tröppunum á litla, rauða húsinu hennar Parkers gömlu. Hann var auðsjáanlega nýkominn út og hafði hanzka á höndunurri. Hann hélt á hamri í annarri hendinni og hún sá, að hann fleygði hon- um í runnann við hliðið. Áð- ur en hann hvarf hafði hann litið upp, — og beint upp í gluggann til frú Salmon. Það hefur sennlega verið að kenna hinni undarlegu eðlisávísun, sem segir mönnum, þegar ein- þessu hafi verið farið manna- villt. Eiginkona herra Adams mun bera vitni um, að hann var heima hjá henni klukkan tvö aðfaranótt hins 14. febrú- ar. En eftir að hafa heyrt framburð vitnanna hér á eftir og athugað andlitsgerð og út- lit ákærða, vænti ég þess, að sannast megi, að hér hafi ekki verið um misskilning að ræða. Þegar hér var komið sögu virtist málið ekki getað farið nema á einn veg. Menn bjugg ust semsagt við dauðadómi. Eftlr að lögregluþjónninn, sem fann líkið, og læknirinn, sem rannsakaði það, höfðu gefið skýrslu, var frú Salmon kölluð fram. Hún var fvrsta flokks vitni, — talaði með ör- litlum skozkum hreim, mjög ar getur líf og dauði annars manns oltið? — Ég geri mér það ljóst. — Hafið þér góða sjón? — Ég hef aldrei þurft að nota gleraugu, — Þér eruð fimmtíu og fimm ára? — Fimmtíu og sex. —- Og maðurinn, sem þér sáuð var hinum megin við göt una? — Já. — Og klukkan var tvö að næturlagi. Þér hljótið að hafa mjög góða sjón, frú Salrrion. — Nei. Það var tunglsljós og þar að auki féll bjai’mi frá götuljósi á andlit hans, þegar hann leit upp í gluggann. — Og þér eruð ekki eitt and Framhald á 10. síffu. SunnudagsbJaðið 9

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.