Sunnudagsblaðið - 29.05.1960, Blaðsíða 3

Sunnudagsblaðið - 29.05.1960, Blaðsíða 3
ÞEGAE prestssetrið á Borley brann, sendi bandaríska stórblaðið Life einn af ljósmynd- urum sínum, David E. Shermann, yfir til Eng- lands til þess að taka myndir, ef hæ-gt væri, af hinum frægu rústum. ,Áralngun:nn varð ein- hverjar ævintýralegustu myndir, sem nokkru sinni hafa verið teknar. Meðan hinn frægi ljós- myndarj leyndist í kolsvörtum rústunum, þaut stór steinn beint í loft upp, eins og sjá rná af myndunum hér að neð'an. Myndin til hægri er stækkað brot úr m.ynd o-g sýnir hinn fljúgandi stein í myrkrj dyragættinni. DIMMT febrúarkvöld um níu leytið árið 1939 var hrópað „Eldur“ í litla þorpinu Bor- ley, fimm kílómetra frá Sud- bury í Suffolk í Englandi. Þorpsbúar sáu logana frá hinni alræmdu byggingu, þar sem meira en heila öld höfðu gerzt atburðir, sem voru ofar mannlegum skilningi. Ef til vill létti íbúunum við að sjá þessa voldugu hálfgotnesku byggingu með turnum og draugum standa í ljósum log- um. En jafnvel logarnir megn- uðu ekki ag koma fyrir katt- arnef hvorki myrtum nunn- um, sem ganga aftur, né hin- um fjörugu vofum, sem í mörg ár herjuðu þetta hús. Það er stöðugt reimt í prests setrinu Borley og vísindin standa ráðþrota gagnvart þessu furðulega fyrirbæri. Þar að auki höfðu hinir ár- vöku miðlar andanna, sem stjórnað var af brezka sálar- rannsóknarfélaginu, séð þenn an eldsvoða fyrir. Árið áður hafði sá boðskapur komið í andaborð, að saga Borleys væri öll og bláklædd kona á- samt leiðsögumanni mundi birtast í hinu gamla húsi. Þáverandi eigandi þess, Gregson, stóð í anddyrinu og var að sýsla við bækur og skjöl, þegar lampi, sem stóð skammt frá, valt skyndilega um koll. Steinolían flaut yfir skjölin og bækurnar og Greg- son varð að flýja. Á örstuttri stundu var húsið umlukt sindrandi eldtungum, og þeir, sem fyrstir komu að, segjast hafa séð tvær dularfullar ver- ur hverfa í garðinn. Hvað var það, sem olli þess- um skrípaleik í hinu skugga- lega húsi, sem byggt var 1863 á rústum gamals klausturs, og sem í mörg ár var bústaður mikilsvirtra andans manna, sem þjónuðu litlu Borley- kirkjunni, þar sem aðalsfjöl- skyldan Waldegrave átti í- burðarmikla hvelfingu með ríkulega útskornum líkkist- um? Það hafa verið skrifaðar margar og þykkar bækur um Borley og frægir miðlar hvar- vetna að úr heiminum heim- sótt húsið til þess að revna að varpa ljósi á þetta dular- fulla mál. Það eru til háir pappírshlaðar í skjalasöfnum, og hraðritaðar frásagnir af samtölum við andana í Bor- ley. Augu alheimsins hafa beinzt að þessari byggingu, en enn hefur ekkert gerzt, sem afhjúpar hinar athafna- sömu vofur. Borley er ein stærsta og dularfyllsta gáta okkar tíma á þessu sviði. Og sagan um Borley hefur að geyma auk venjulegra lýs- inga af atvikum, þar sem að- dráttarafl jarðar er yfirunnið, frásögnina um hina nítján ára gömlu nunnu, Mary Laire, sem árið 1667, samkvæmt eig- in lýsingum gegnum miðla og andaborð,var myrt af elskhuga sínum, grimmum Waldgrave, sem hafði numið hana á brott úr klaustri í Le Havre. Þessi nunna og tryggur fylginautur hennar — lítill api — leikur aðalhlutverkið í Borley mál- inu. í gamla daga gátu menn séð hana eigra eirðarlaust alltaf sömu leið við múrinn, sem er umhverfis húsið. Hún gekk frá nokkrum furutrjám bak við húsið og niður að lít- illi á, sem lá þvert fyrir garð- inn. En sumir íbúanna, meðal annars gamall og hraustur prestur að nafni Bull, sáu nunnuna einnig við glugga hússins. Bull varð meira að segja að láta múra fyrir glugg ann á borðstofunni, því að stundum stillti nunnan sér upp fyrir utan hann og horfði á, meðan fjölskyldan sat að snæðingi. Hið eirðarlausa eigr nunn- unnar lagðist niður, en í stað- inn komu orðsendingar, sem hún sendi íbúunum, einkan- lega konunum. Það skildist af þessum orðsendingum, að hún var mjög ung og mjög óham- ingjusöm þegar hún lézt hin- um óhugnanlega dauðdaga. Hún skrifaði með spegilskrift á móðu og sömuleiðis skildi hún eftir sig litla bréfmiða og miðunum var svarað af prests fiúnum. Kona nokkur að nafni Glanville, sem var bú- sett í Borley um tíma, átti langt eintal við nunnuna gegn um hina svokölluðu „plan- cette“aðferð. Plancette er sam kvæmt leksikonum þunn þrí- hyrnd plata, sem hv.ílir & grannri undirbyggingu. En Glanville komst einnig í sam- band við nunnuna með því að falla í trans. Af þessum sam- tölum er vitað, að nunnan var myrt 17. maí 1667, og að síð- asta orðið sem leið fram af munni hennar var ,,vatn“. Aðrar heimildir skýra hins vegar svo frá, að hún hafi ver- ið kyrkt og þá fær þessi skýr- ing ekki staðizt. Kannski er skýringin sú, að hinn ungi Waldegrave hafi kastað henni í ána. Hún var í fylgd með apa og þessi api á að hafa varið hana fyrir „elskhugan- um“. Seinna hafa menn fund- ið dálítið neðar í garðinum beinagrind af apa. Samtalið var annars á bessa leið: Hver er Mary? Mary Mary Laire, 19 ára, 19 ára, 19 ára, þegar hún lézt. Hvar liggur þú grafin? Við enda múrsins. Hvað viltu, að við gerum? T.átið ljós loga við altarið. Hvers vegna? Eg er svo óhamingjusöm. Nunnan frá Borlev á að hafa verið mjög sorgmædd á svip. Þeir, sem voguðu sér í áttina til hennar eins og til dæmis landbúnaðarverkamaðurinn Cartwright, hafa sagt svo frá, að hún hafi runnið saman við múrinn og trén og horfið. Annars hafa hinir ýmsu and- ar og vofur í Borley oft. gert vart við sig með undarlegum hætti. Ein af prestfrúnum, frú Foyster, fékk eitt sinn hnefa- högg frá vofu beint í andlitið og gekk í marga daga með glóðaraugu. Sápustykki, pipar og salt-baukar og vínflöskur þutu um loftið. Á ákveðnum tímum hevrðust undarlegar klukknahringingar. Stólar og borð voru flutt til. Það fund- ust ókennileg fótspor og und- arlegir dynkir hevrðust. Mynd ir á veggium skekktust í tíma og ótíma, viðarbútum úr kam- ínukassanum var þeytt um stofuna. blekbyttum var velt um koll, Ijós slokknuðu, hurð- um var læst án lykla og svo mætti lengi telja. Stundum heyrðist úr garðinum hófadyn ur og vagnaskrölt. Sumir draugfróðir menn tala um tvær gerðir drauga, góða °g vonda drauga. Þegar hinir vondu hafa grasserað og sett allt á annan endann. bá koma hinir góðu til skjalanna og reyna að færa hlutina í samt lag aftur ellegar bæta fyrir unninn skaða. Þannig bar það við, að áð- Framh. á bls. 9. „SKRIFTIN á veggnum“. Blýantsskrifaðar upplýsingar í „Bláa herberginu“ í prest- setrinu í Borley. Eru þetta bænir frá hinni myrtu nunnu? Það má greina orðin „prayers“ (bænir) og „get light“ (sækið ljós). Margar og þykkar bækur hafa verið skrifaðar um hina dularfullu atburði í Borley, en gátan er enn í dag óráðin Sunnudagsblaðið 3

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.