Sunnudagsblaðið - 24.01.1965, Síða 10

Sunnudagsblaðið - 24.01.1965, Síða 10
Hún gerði kónginn viti sínu fjær af hræðslu 42 SUNNUBAGSBLAS — ALÞÝÐUBLAÐIÖ „r ÐINA VINHOVER var fædd í Kaupmannahöfn, en foreldrar hennar voru þýzkir. Hún giftist ung skósmið frá Holtsetalandi, en skóarinn dó eftir fárra ára hjóna- band, og þá fluttist Dína fljót- lega aftur til Kaupmannahafnar. Þar varð hún kunn undir nafn- inu Dína skóarans. Hún virðist hafa verið stúlka, sem gekk í augun á karlmönnum, og það orð komst fljótt á, að hún væri ekki fastheldin á blíðu sína, enda •gerðust ýmsir danskir aðalsmenn til að létta henni ekkjustandið. Þegar saga þessi þefst var Dína komin um þrítugt. Friðrik 3. var þá fyrir tveimur árum tekinn við konungdómi í Danmörku, en enn hafði honum ekki tekizt að draga til sín þau völd, sem hann æskti eftir. Háaðallinn var voldugur og réð miklu, og einna hæst aðals- mannanna bar mág konungsins, Corfitz Úlfelt. Hann var kvæntur Leónóru Kristínu, eftiriætisdótt- ur Kristjáns 4. og hálfsystur Friðriks konungs, og því er ekki að leyna, að tignarstöðu sína átti Friðrik 3. Danakonungur. Ú)felt að verulegu leyti þeim tengslum að þaltka. Friðrik konungur átti þýzka drottningu, Soffíu Amalíu af Braunscliweig. Henni höfðu fylgt ýmsir Þjóðverjar til dönsku hirð- arinnar, og meðal þeirra var ung- ur hirðmaður að nafni Jörgen 'Walther. Hann var sagður enginn gáfumaður, en hann var vopn- djarfur og framgjarn og fyrir þær sakir hafði konungur gefið hönum aðalstign. í Kaupmannahöfn komst Walther í kynni við Dínu Vinhofer og gerðist hún frilla hans. í árslok 1650 kom Walther að máli við kónung og hafði heldur betur sögu að segja. Hann kvaðst hafa komizt að því, að Úlfelt sæti um líf konungs pg hefði ákveðið að myrða hann á eitrí. Þetta kvaðst Walther hafa eftir góðri heimild, því að vinkona sin, Dína, hefði verið ástmær Úlfelts, og eitt sinn er hún lá falin i lok- rekkju hans, hefði hún heyrt á tal þeirra hjónanna, Úlfelts og Leónóru Kristínar, um þetta mál. Friðriki konungi varð mikið um þessi tíðindi. Hann lét óðara kalla Dínu fýrir sig, og hún staðfesti allt sem Walther hafði sagt, og það þótti konungur tæki það skýrt fram, að ósannindi myndu kosta hana lífið. Hún bætti því meira að segja við, að Úlfelt væri fað- •irinn að ;því barni, sem hún gengi með, og hún kvaðst vita, hvar hann geymdi það eitur, sem ætlunin væri að nota. ■ Konungur virðist hafa trúað þessari frásögn, en hann var var- færinn maður og lét engan gruna, hvað hann hefði komizt á snoðir um, allra sízt Úlfelt sjálfan. —

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.