Sunnudagsblaðið - 11.04.1965, Blaðsíða 6

Sunnudagsblaðið - 11.04.1965, Blaðsíða 6
Teinæringrurinn Ormur frá Skarði í Breiðafirði. Teiknínguna gerði Sigurður málari Guðmundsson 1858. samfélagsins, berjast fyrir friði og sáttum, siðuðu samfélagi við lög og rétt. Og þeirra vandi er okkar vandi enn í dag, bara í stærri stíl. Þetta kann nú að vera alveg rétt. En hins er að gæta, að þá hefði heldur ekki 'orðið nein Njála. Að Njála er um ánnað og meira en pólitík — þó vissulega sé hún um pólitík líka. ' .WWí: t AÐ kann að koma spánskt fyr- ir sjónir að lesa Njálu sem póli- tíska allegóríu og herma hana upp á nútíðina. Þó má það allt eins og lesa hana sem pólitískt deilu- rit frá 13du öld, til dæmis. Eða lífsreynslusögu frá þeirri lOdu. Skiiningur Balchins stenzt að sínu leyti; hvort sem hann gerir Njálu fullnægjandi skil með þessu móti; og þótt sjálfsagt megi hafí enn betri not hennar með öðru lestr- arlagi. Það má lesa sögurnar á marga vegu, hagnýta sér þær til margra hluta; en það er veruleiki sjálfra þeirra, orðsins á bókinni, sem stendur undir þeirri notkun. Bærinn brennur enn yfir Njáli, og þeir sigla enn Leifur og Eiríkur. Þetta er mergur málsins; hitt er okkar mál, hversu við notfærum okkur þessa staðreynd. 278 SUNNUDAGSBLAÐ - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.