Sunnudagsblaðið - 11.04.1965, Page 7

Sunnudagsblaðið - 11.04.1965, Page 7
iHHHttHWWHWWWHWMHW*1 HWttWWWWWMWtWMMWMMWWWWMWWWt WWWMMttWWWWtWHltWWWWWWtWWHtHM Efst frá hærum ofan í tær unaðsblær á taugar slær; mér eru glæru glösin kær, glaðlynd mær og úfinn sær. Mettuð friði morgunstund magnar úr heli Baldur. Varlega styður gómi á grund grái héluvaldur. t Tru, von og kærleikur: Trúin yndis tendrar bál. 1 Trúin synda brúar ál. Trúin bindur tæknimáL Trúin myndar öryggð sál. Vonin byggir virðum hrós. Vonin tryggir straumum ós. Vonin hyggju-vökvar -rós. Vonin skyggi snýr í ljós. Hugur léttist manni og mey, mögn ífléttast blæinn, þegar á Spretti sporar fley spegilsléttan sæinn. Skuggar troða í skjól við strönd. skýjastoðir brunnu, skreyta roða röðulbönd rekkjuvoðir sunnu. Margir gengi glæstu ná á götum ósvífninnar, heimsku fjöldans fljóta á í fjöru velgengninnar. Að mér streyma lilýtt og hljótt hugðar kæra efnin, 1 svo að virðist vökunótt verðmætari en svefninn. Fuglinn illa fiðraður í felur getur smogið. Segjum það sé sannleikur, sem er óvart logið. Ljóðagandur geysar minn, gneipur í handanblaki. Hraun og sanda htigurinn lileypur í andartaki. ★ Eg vil einatt ást við fást, ást í leyni funda; lengst mér treinist Ástu ást, ástin meinum bundna. ★ Brosveig þrátt að botni rennd bar mér sátt til vífsins. Ást er máttug unaðskennd, æðasláttur lífsins. LAUSAVÍSUR OG FASTAGESTIR eftir Björn Leví Gestsson, húsasmið frá Björnólfsstöðum í Langadal. Ýfast hjarta undirnar illsku narti og gnáuði. Leikur hart við lundirnar lífsins Svarti-dauði. Hátt sér fleytir hugur manns, hættum fær ei lotið, þegar sálna-samrunans sælunnar er notið. Neðst á bréf til dóttur höf.: Reyndu að skilja heimsins háttu hlaðna töpunum. Varlega fljúga vonir láttu, ver þær hröpunum. Viljaþrótt og vitið láttu vaka í snilldunum. sífellt beygja andann áttu eftir skyldunum. Ást er heimi alls til góðs. Ást því gleymir skuggum hnjóðs. Ást er streymi unaðsflóðs. Ást er dreymi manns og fljóðs. ★ Lóu hrjáða hópinn minn hýrgar náðugt veður, gleði fjáði flokkurinn frónið bráðum kveður. Öllum mæla mun ég fullt; mín eru alfrjáls kynni hvorki fyrir fylli eða sult farga ég sálu minni! KJARTAN HJÁLMARSSON TÓK SAMAN HWMMMWMMMtMMMiMMMWWtMtMMMWTlWMWMWWWMMMMMMMMWMMMMMMMMW ALÞÝBUBLAÐia w 6UNNUDAGSBLA9 279

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.