Sunnudagsblaðið - 04.07.1965, Blaðsíða 15

Sunnudagsblaðið - 04.07.1965, Blaðsíða 15
an Johnstons krána og fór inn á karinn. Rétt á eftir kom Jói, að- stoðarmaður hr. Johnstons, út og Setti hjólið hennar inn fyrir. Ekki leið á löngu þar til það kvisaðist, að skömmu eftir komu fröken ^illespie hefði frú O’Hagan fætt annan son. Hún var lengur í krónni en VcnJulega þetta kvöld, og þegar ^ún kom steig hún hjólið ákaf- leSa upp brekkuna framhjá hús Ji1u> másandi og blásandi, og leit ekki einu sinni í áttina til okkar. Pn nokkrum metrum utar á vegin- Uin stanzaði hún skyndilega, sneri Ser hikandi við á milli snjóveggj- anna og kom hjólandi til baka. Hún stoppaði fyrir utan þögult húsið, þar sem dauft gulleitt ljós Sast í eldhúsglugganum. Hún stóð annan fótinn á veginum og ÖJnn á pedalanum og steig ekki al baki. »Heyrðu, þú þarna, O’Hagan*’, haHaði hún. „Komdu út, O’Hagan. iv°rndu út og ég skal segja þér hvað mér finnst um þig. Ertu ekki fai'inn ennþá, þinn skítugi hund- lJr’ Hversvegna hunzkastu ekki bur'tu og tekur gjammandi hvolp- an3 þína með þér? Við kærum °kkur ekki um ykkur hér, meðal úciðarlegs, kristins fólks. Farðu burt og taktu kerlinguna þína og afsprengi hennar með þér“. Hún byrjaði að gráta og hrista stýrið á hjólinu sínu i máttvana bræði. „Heyrirðu til mín skítuga kvik- indið þitt?” ýlfraði hún. „Farðu burt, þangað sem þú átt heima og þið öil”. Hún þagnaði, eins og hún biði svars, byrjaði síðan að snökta og stynja miður sín. „Ó, guð fyrirgefi mér!“ kveinaði hún. „Guð fyrirgefi mér þessa nótt; að ég skyldi nokkurn tíma rétta hjálp arhönd við að koma kaþólikka- krakka í heiminn. V. S. þýddi. * VONLEYSI Framhald af bls. 471. hvers vegna var jafnvel „Haust- ganga í skógi“ gegnsýrð af þung- lyndi? Það væri jafnóverjandi að láta sér sjást yfir heildarblæ stíl- anna og það væri að ætla sér að vinna tölfræðilegar upplýsingar úr þeim. Persónulega þekki ég engan fullorðinn mann, sem minnist gelgjuskeiðsáranna öðru vísi en langvarandi píslar, og ég þekki engan 16 ára ungling, sem segir, að það sé dásamlegt að vera 16 ára. En fullorðna fólkið er á hinn bóginn sannfært um að það hafi- verið undantekning, og það sé allt annað að vera unglingur nú á dögum. „Nú spila krakkarn- ir bitlalög og sofa saman“. Kannski þyrfti að gera eitthvað fyrir full- orðna fólkið, sem ber ábyrgðina á æskunni. Kenna þeim, að ógæfan er ekki í því fólgin að eignast börn of snemma, lesa sorprit eða lenda í slæmum félagsskap. Ógæf- an er fólgin í því að vera ungur, og aðstoðar er þar alltaf þörf. (Aktuelt)., Ritstjóri: Kristján Bersi Ólafsson Útgefandi: AlþýSublaðið Prentun: Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Dante pi'amh. af bls. 469. íerno á hraðbergi. Óneitanlega sjást slíkar tilvís- anir stundum í ólíklegasta samhengi. Hún kennir Jómantískri hjátrú lesenda þetta dálæti á víti sem lefur verið landlægt síðan á öldinni sem leið; þeir, Sem farnir eru að þekkja vel til kvæðisins sjálfs ala samsvarandi mætur á miðhluta þess, Purga- °rio> segir hún enn; Dante vex ásmegin meðan ann ypjý^ kvæðið eflist allt fram í himnasýnirnar j lokin. Engu að síöur er það staðreynd að mörgum Csendum þykir kvalastaðurinn aðgengilegastur og 0rvitnilegastur, og Inferno er enn í dag langsamlega °kktasti hluti, eða cantica, kvæðisins. hú heyrði eg grátnið líkt sem brimhljóð bylja, Því nú eg kom í kvalafylgsnið grimma °g harmatölur heyrði sálir þylja. •H-'& bar að stað, er kefur kolsvört dimma, Þar drynur gnýr, sem úfinn öskri græðir Þegar gagnstæðra geysar veðra rimma. Stormbylur vítis þar án afláts ymur, í hvirfilvindi illra þrífur anda, sveiflar þeim harðan, hrekur, lýr og mæðir; bornir í kvala súgi sidynjanda þeir tönnum gnísta, grenja, hljóða, veina, og bölva gæzku guðs hins allsvaldanda, segir í þýðingu Steingiúms á 5tu kviðu, og fleiri en hann hafa fyrr og síðar hei-llazt af hinum helga hrolli vítislýsinganna umfram fagnaðarljóma himna- hymnanna. Jónasi Hallgrímssyni hefur kannski fundizt þvílíkur kveðskapur fólskugys; það fer> víst ckki miklum sögum af Dantelestri hans; en hann varð til þess að innleiða terza rima Dantes á ís- lenzku í ódauðlegu kvæði og fleiri ítalskættaða hætti, sonnettu, ottave rima. „Hvílíkt undur að hitta þá Dante, Petrarca og Tasso endurborna í íslenzku meistaraljóði á nítjándu öld,” segir Halldór Laxness. En á 700 ára afmæli Dantes eru þetta nokkurn vcginn einu kynnin sem við höfurn liaft af honum á íslenzku, þeirri þjóðtungu sem á lians öld átti einna rishæstar bókmenntir í Evrópu, ALÞÝÐUBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBLAÐ 479

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.