Sunnudagsblaðið


Sunnudagsblaðið - 10.10.1965, Qupperneq 9

Sunnudagsblaðið - 10.10.1965, Qupperneq 9
í Rússlandi fyrir f jórum áratugum Sir Robert Hodgson var fyrsti sendimaður Breta í Moskvu, og dvaldist þar árin 1921—27. Hann ritaði fyrir nokkrum árum endurminningar sínar frá Rúss- landsdvöljnni, og birtist í/íx flyrrfi hiuti þeirra. í næsta blaði mun síðari hluti endurminninga hans birtast, og segir þar einkxun frá Tsjitsjerín utanrík- isráðherra. 16. janúar 1920 rauf æðsta ráð- i8 einangrun Kússlands. „Látið Rússland í friði” varð vinsælt víg- orð í Englandi, og sú stefna Lloyds Georges að koma Rúss- iandi aftur inn í samfélag þjóð- anna, varð framkvæmanleg. Undir lok ársins heimsótti Kamenév, hiágur Trotzkys og meðlimur í Politburo, sem ræður stefnu Sov- etríkjanna inn á við sem út á við, London, ásamt Leonid Krassin, sem varð fyrsti fulltrúi Sovétríkj- anna i Bretlandi, til þess að semja nm viðskipti milli landanna, en þáð skyldi verða undanfari stjórn- •nálasambands. En brezkt almenn- 1J;igsáIit var mjög andvígt vissum þáttum í fari hinnar nýju stjórn- ar Rússlands, og það var erfitt starf, sem beið fulltrúa Sovétríkj- anna. Bandamenn litu á heimför Hússa frá vígstöðvunum af bylting- arástæðum á örlagaríkum tímum °S friðarsamninga landsins við Ljóðverja sem svívirðilega brigð- mælgi, en keisarastjórnin hafði lofað að styðja Bandamenn „til fullnaðarsigurs.” Brezkir kaup- sýslumenn voru heldur ekki á- fiáðir i að hefja viðskipti við stjórn, sem hafði að áliti þeirra br°tið grundvallarreglur alls við- skiptasiðferðis með því að þjóð- nýta öll verzlunar- og iðnaðarfyrir- tæki, sem voru rekin fyrir erlent fjármagn, og neitað að láta bæt- ur koma fyrir. Á hinn bóginn var það líklegt til að auðvelda þeim Kamenév og Krassin hlutverk sitt, að „nýja efnahagsstefnan” hafði verið hafin í Rússlandi. Til að sigrast á efnahagsörðugleikum, sem engin leið var að snúast gegn nema láta undan síga, hafði Lenin ákveðið að hörfa — um stundar sakir — og taka eitt skref aftur á bak og síðan tvö áfram, eins og hann orðaði það. Einkarekstri var aftur komið á í sumum iðngrein- um; söiubúðir í einkaeign voru opnaðar á ný og bændurnir skyldu aftur fá frjálsa verzlun. Auk þess var leitað til kapítalistískra landa um þann stuð'ning, sem var nauð- synlegur, ef „fyrsta sósíalistarík- ið” átti að lifa erfiðleikana af. Þessi fúsleiki Sovétstjórnarinnar til að kasta fyrir borð kenning- um, sem auk þess að vera and- styggilegar í sjálfum sér, reyndust óframkvæmanlegar og sú von, — sem þó ekki rættist, — að þessl fráhvörf frá eigin stefnuskrá þýddi, að þeir myndu hafna kenn- ingunum í heild; og sú staðreynd að Bretar, sem bjuggu við erfið kjör eftir fyrri heimsstyrjöldina, töldu sig hagnast á allri aukningu útflutningsverzlunar; allt þetta átti þátt í því, að viðskiptasamn- ingur Breta og Rússa var undir- ritaður 16. marz 1921. Með þeim samningi hófu þessi tvö iönd samskipti, þótt þau væru aðeins á de facto grundvelli. — Rússland hafði fyrir sitt leyti allt að vinna við það að ná samkomu- lagi við Breta og opna þannig leiðina til samninga við önnur lönd, en það gat dregið úr efna- hagsörðuglcikum landsins eftir sex ára styrjöld, byltingu og hernaðar- íhlutun erlendra ríkja. Þannig rættist draumur Lloyds Georges um að koma Rússum aftur inn i samfélag þjóðanna. Öðrum ráð- herrum, og þá sérstaklega utanrík- isráðherranum, Curzon lávarði, féll miög miöur, að brezka stjórnin skyldi vinna að þessu. í augum eftir Sir Robert Hodgson ALÞÝÐUELABIt) - EUNNUDAGSBLAO 4g9

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.