Morgunblaðið - 22.08.2004, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 22.08.2004, Qupperneq 21
22.8.2004 | 21 TÍSKA | ELÍNRÓS LÍNDAL HIPPAR OG VILLTA VESTRIÐ Í BLAND VIÐ HOLLÍVÚDDGLAMÚR Annars vegar eru pilsin afar stutt eða rétt fyrir neðan hné og þá með ,,pensil- sniði“ sem minnir á tísku seinni-stríðs áranna. Pils 11.990 kr., leðurtaska 17.990 kr. og skór 15.990 kr. Stutt gallapils 4.950 kr. og taska 15.990 kr. Kúltur, Kringlunni. Fyrir millifín tilefni þykir ómissandi að eiga teinótta dragt, helst dökkbrúna með bleik- um teinum, bleika silki- skyrtu og skó í stíl. Skórnir verða helst að vera úr efni sem minnir á krókódílaskinn og líta út eins og skór frá sjötta áratug síðustu aldar. Zara, Smáralind. Gallabuxur 9.900 kr., toppur 9.990 kr., bolur 4.590 kr. og loðfóðruð stígvél 15.990 kr. GK REYKJAVÍK. L jó sm yn di r: K ri st in n In gv ar ss on Þrátt fyrir einmuna veðurblíðu undanfarið bíða efalítiðmargir óþreyjufullir eftir því að hnausþykkar peysurog aðrar fylgiflíkur vetrarins komi í verslanir. Biðin er senn á enda því verslanir eru óðum að fyllast af vörum sem tilheyra hausttískunni. Eins og vera ber eru ákveðnar stefnur í gangi og nokkrir hlutir ómissandi í fatasafnið fyrir haustið. Fyrst má nefna fóðruð kulda- stígvél annars vegar og kúrekastígvél hins vegar. Fóðruðu kuldastígvélin eru ekki alveg ný af nálinni þar sem þau urðu mjög vinsæl í fyrravetur og hafa sést á einstaka konum í sumar. Ómissandi er að klæðast flottum þröngum galla- buxum við stígvélin og mikil- vægt að hafa buxnaskálmarnar ofan í þeim. Við þetta þykir svo flott að hafa slá yfir axlirnar og til þess að ná fram lokahnykknum, eins konar Siennu Miller eða Kate Hudson stíl, verður hárið að vera í stórum liðum og án efa skipt í miðju. Andstæður Það skemmti- lega við tískuna í haust eru miklar andstæður, þar sem hversdagsfatnaðurinn hefur yfir sér hippalegan kú- rekastíl í bland við smá rokk og ról, en spariklæðnaðurinn minnir á gamla góða Hollywood-glæsileikann (frá því á fjórða áratug síðustu aldar). Fyrir millifín tilefni er svo ómissandi að eiga teinótta dragt, helst dökkbrúna með bleikum teinum, bleika silkiskyrtu og skó í stíl. Skórnir verða helst að vera úr efni sem minnir á krókódílaskinn og líta út eins og skór frá sjötta áratug síðustu aldar. Brúni liturinn er áberandi í hausttískunni en einnig bleikur og drapplitur. Svart stendur alltaf fyrir sínu og eru litlir, stuttir svartir leðurjakkar með rennilás vinsælir. Mjaðmabuxurnar eru ennþá mjög heitar og þykir nauðsynlegt að skarta fallegu belti við þær. Dragtir eru með síðum buxum og þó skálmarnar séu víðar þá er kvenleikinn undirstrikaður með því að leggja áherslu á grannt mittið. „Pensil“-pils og loðfeldur á herðum Pilsin eiga annaðhvort að vera afar stutt eða rétt fyrir neðan hné í svokölluðu ,,pensil- sniði“ sem minnir á tísku seinni-stríðs áranna. Stuttu pilsin þykja mjög flott hversdags með kúrekastígvélum, en ,,pensil“ pilsin eru notuð fyrir fínni tækifæri og þá er við hæfi að vera í háhæluðum skóm, kvenlegri skyrtu, jafnvel sveipa loðfeldi yfir axlirnar (cape) eða tweed-jakka, en tweed-efnið hefur líkleg- ast aldrei verið vinsælla en einmitt núna. Klæðaburður og yfirbragð leikkvennanna Sienna Miller og Kate Hudson þykir í senn frjálslegt og hippalegt og eru þær því ágætis fyrirmyndir fyrir þær sem vilja tolla í tískunni í haust og vetur. elinros@simnet.is Fatnaður sem minnir á gamla Hollywood- glæsileikann. Toppur 10.990 kr., pils 10.990 kr., slá 10.990 kr. og gylltir skór 17.990 kr. Karen Millen, Kringlunni. Ómissandi fatnaður og fylgihlutir í fatasafnið fyrir haustið og veturinn Sienna Miller. Kate Hudson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.