24 stundir - 22.12.2007, Síða 4
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Vinnudagurinn hjá Hreini S. Há-
konarsyni, fangapresti þjóðkirkj-
unnar, lengist gjarnan mjög í báða
enda á jólum og í aðdraganda
þeirra. „Þessa dagana er ég mikið
að sendast á milli með gjafir í fang-
elsin, bæði handa föngunum sjálf-
um og börnum þeirra. Svo leita að-
standendur gjarnan til mín með
áhyggjur sínar, ekki síst ef fanginn
er að afplána yfir sín fyrstu jól,“
segir hann.
07.00 Fer á fætur, helli uppá kaffi og fæ mér
ristað brauð með osti og agúrku í
morgunmat ásamt því sem ég færi
konunni kaffi í rúmið.
08.00 Legg af stað fráheimili mínu á Kjal-
arnesi og keyri í vinnuna. Ég byrja
daginn á skrifstofunni minni í
Grensáskirkju. Þar bíða mín gjafir
við Englatréð, en það var sett upp í
kirkjunni með spjöldum með
nöfnum barna sem fangar eiga. Svo
kom fólk með pakka og setti
spjöldin á og lagði þá undir tréð.
Fangarnir afhenda börnum sínum
gjafirnar þegar þau koma í heim-
sókn.
12.00 Tók á móti aðstand-anda sem kom á
skrifstofuna í viðtal til mín. Hann
hafði áhyggjur af syni sínum af því
að þetta verða fyrstu jól hans í
fangelsi.
13.30 Fór í Kópavogsfang-elsið og átti fund
með föngum þar, en þeir voru
reyndar að vinna þegar mig bar að
garði. Ég hvatti þá til að mæta í
guðsþjónustu á aðfangadag.
15.30 Fór í Hjálpræðisher-inn að ná í jólagjafir
frá honum og fangahjálpinni
Vernd handa föngunum sjálfum.
Síðar um daginn fer ég í Hegning-
arhúsið og aftur í Kópavogsfang-
elsið. Það má segja að ég sé hálf-
gerður jólasveinn þessa dagana.
17.30 Náði í konuna ívinnuna og við fór-
um í Kringluna að kaupa jólagjafir
og svo að borða á Kaffi París.
21.00 Skjólstæðingurhringdi og bað mig
um að biðja fyrir sér í símann, sem
ég og gerði.
21.30 Kom heim, horfði ákvöldfréttirnar og
leit í bók. Loks viðraði ég hundinn
aftur og fór svo að sofa.
Þétt dagskrá
fyrir jólin
24stundir með Hreini S. Hákonarsyni, fangapresti þjóðkirkjunnar
➤ Þetta eru fimmtándu jólinhans í röð sem starfandi
fangaprestur þjóðkirkjunnar.
Hann verður með guðsþjón-
ustur í fangelsunum á að-
fangadag.
➤ Hann gefur út fréttabréfið Afleiðinni einu sinni í mánuði
sem fjallar um málefni fanga
og hann dreifir í fangels-
unum. Hann heimsækir hvert
fangelsi minnst einu sinni í
viku.
HREINN
Hálfgerður jólasveinn „Ég er alltaf
að sendast á milli með gjafir,“ Hreinn
S. Hákonarson fangaprestur.
24 stundir/Brynjar Gauti
4 LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2007 24stundir
Nora Roberts á fastan sess á metsölulistum um allan heim.
taraforlag@internet.is
Kvennabókin í ár!
Spenna, örlög og ástir að hætti Noru Roberts.
Opið 08-18 - laugard. 10-20 - sunnud. 11-20
Skútuvogi 6 - Sími 570 4700 - www.eico.is
Vekjandi jólagjafir
Laserklukka
Vekjaraklukka sem varpar tíma á
vegg eða loft.
4.990 kr.
Laserklukka
Vekjaraklukka sem varpar tíma
og útihita á vegg eða loft.
11.900 kr.
Laserklukka
Vekjaraklukka sem varpar tíma á
vegg eða loft. Sillanlegur geisli.
4.990 kr.
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Kannað var hvað kílóið af skötunni kostar í nokkrum
fiskbúðum og matvöruverslunum. Um helmings-
munur er á lægsta og hæsta verði, þar sem Nóatún er
ódýrust og Gallerí Fiskur er með hæsta verðið. Ekki er
tekið tillit til gæða eða styrkleiks á skötunni í þessari
könnun.
50% munur á skötunni
Þuríður
Hjartardóttir
NEYTENDAVAKTIN
Kílóverð á skötu
Verslun Verð Verðmunur
Nóatún 999
Fjarðarkaup 1.198 19,9 %
Fiskisaga 1.290 29,1 %
Melabúðin 1.298 29,9 %
Fiskbúðin Hafberg 1.390 39,1 %
Gallerí Fiskur 1.498 49,9 %
Exorka og Hekla Energy, dótt-
urfélag Jarðborana í Þýskalandi,
hafa gengið til samstarfs um bor-
framkvæmdir í Þýskalandi. Um er
að ræða borun á sex jarðhitahol-
um. Um er að ræða mjög djúpar
holur, en dýpt þeirra verður allt að
5000 metrum og er búist við að
hitinn í þeim verði á bilinu 125-
130 gráður. Hekla Energy mun
hefja framkvæmdir við borun á
fyrstu þremur holunum skammt
suðurvestur af München strax eftir
áramót. Þar hefur Exorka í hyggju
að reisa sitt fyrsta raforkuver og
mun það nýta svokallaða kalina-
tækni. ejg
Samstarf Exorku og Heklu En. í Þýskalandi
Framkvæmdir
hefjast eftir áramót
Tíu þúsund skammtar af bóluefni
gegn fuglainflúensu eru nú
komnir til landsins. Ákvörðun
um hvenær og hverjum bóluefnið
verður gefið verður tekin af sótt-
varnalækni. Íslensk heilbrigðisyf-
irvöld hafa tryggt sér kauprétt á
300.000 skömmtum af bóluefni
gegn heimsfaraldri inflúensu, að
því er segir á fréttavef landlækn-
isembættisins. ibs
Bóluefni komið
gegn fuglaflensu