24 stundir - 22.12.2007, Page 42
42 LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2007 24stundir
bara að taka því og fá á sig skotin.
Ég játa það alveg hreinskilnislega
að ég tek gagnrýni inn á mig ef ég
upplifi hana sem útúrsnúninga og
illgirni.“
Um hver jól er talað um að efn-
ishyggjan sé að fara yfir strikið. Er
efnishyggjan of mikil eða er það orð-
um aukið?
„Nei, það er ekki orðum aukið.
Við horfum upp á skefjalausa
hlutadýrkun og eftirsókn eftir hlut-
um, tækjum og umbúðum. Á sama
tíma ríkir æ meira virðingarleysi
fyrir þessu öllu saman. Er það ekki
þetta virðingarleysi gagnvart lífinu
sem er að kollsigla heiminum? Í
fjölmiðlum var sagt frá því ekki alls
fyrir löngu að þriðjungur þeirrar
matvöru sem við kaupum til heim-
ilisins endar í ruslinu. Bakhliðin á
efnishyggjunni er virðingarleysi
gagnvart hinu efnislega. Í innsta
kjarna jólaboðskaparins felst að
Guð metur hið efnislega og jarð-
neska svo mikils að hann fæðist
sem mannsbarn. Um hver jól erum
við minnt á það hvað hið efnislega
og jarðneska er dýrmætt og hvað
við umgöngumst það af lítilli virð-
ingu.“
Trúhneigt barn
Faðir þinn er einn ástsælasti bisk-
up Íslandssögunnar. Sem biskup, lít-
urðu þá til hans sem fyrirmyndar?
„Já, að sjálfsögðu geri ég það. Ég
geri mér alveg grein fyrir því að ég
stenst engan veginn samanburð við
hann, sá yfirburðamaður sem hann
er.“
Fékkstu sterkt trúarlegt uppeldi í
æsku?
„Já, það held ég. Kvöldbæn og
kirkjugöngur, KFUM á sunnudög-
um. Ég var trúhneigt barn og þetta
orkaði allt sterkt á mig og ég naut
þess. Ég upplifði aldrei neina
þvingun í þessum efnum. Þetta var
bara sjálfsagður partur af tilver-
unni. Ég viðurkenni samt fúslega
að stundum geispaði ég og sofnaði
vært undir lestrinum, og ég vissi
líka upp á hár hvað ljósaperurnar
voru margar í kirkjunni okkar og
beið oft í ofvæni eftir því að prest-
urinn segði amen. Það skaðaði mig
ekkert, og ég skil vel hvað hann á
við kollega minn, danskur, sem
heldur því fram að einhver besta
gjöf sem maður geti gefið barni
sínu sé að leyfa því að láta sér leið-
ast! Það sé bráðnauðsynlegt til að
þroska innsæi og sköpunargáfu
manns.“
Hvernig eru þín jól?
„Á árum áður mótuðust þau af
miklu annríki alla jóladagana við
ótal messur og aðrar athafnir í
kirkjum, stofnunum og heimahús-
um. Sá taktur er með allt öðrum
hætti nú. Nú messa ég aðeins á
jólanótt í Dómkirkjunni. En okkur
finnst ómissandi að vera við aftan-
söng kl. 18 og syngja inn jólin. Það
er líka í Dómkirkjunni, vegna þess
að biskupinn nýtur þeirra forrétt-
inda að hafa þar frátekin sæti. Það
er ævagömul hefð fyrir því. Annars
líður aðfangadagskvöldið eins og
víða á heimilum. Við borðum góð-
an mat og setjumst svo við jólatréð
og lesum jólaguðspjallið og syngj-
um. Á jóladag sækjum við okkar
gömlu sóknarkirkju, Hallgríms-
kirkju, og svo safnast stórfjölskyld-
an saman. Það er ómissandi þáttur
í jólahaldinu hjá okkur.“
Í takt við eilífðina
Hvað segirðu um þá gagnrýni að
kirkjan sé íhaldssöm og ekki í takt
við tímann?
„Það er allt í lagi ef kirkjan er
ekki í takt við tímann, bara ef hún
er í takt við eilífðina. Taktur tímans
er svo margvíslegur og þar er ekki
allt jákvætt og geðfellt. Við erum
öll ólík og erum misjafnlega stödd
á vegi tímans en hvar sem við erum
og hver sem við erum og hverjar
svo sem okkar eigin forsendur eru
þá mætum við öll jólaboðskapn-
um. Kirkjan greiðir því veg að við
komumst í snertingu við þann
boðskap.“
Á jólaboðskapurinn alltaf sama
erindið?
„Hvað finnst þér?“
Já, mér finnst það.
„Það er svo merkilegt með jóla-
guðspjallið að það talar öðruvísi til
manns þegar maður er kominn á
efri ár en það gerði til barnsins og
unglingsins. En boðskapurinn um
frelsarann á alltaf sama erindi við
okkur öll, hvar sem við erum stödd
á lífsskeiðinu. Jólaguðspjallið er
svo yndislega látlaust. Einföld frá-
sögn sem er um leið svo djúp og
stór. Að því leyti er jólaguðspjallið
mjög dæmigert fyrir það hvernig
Biblían ber fram fegursta boðskap-
inn; í sögum sem á yfirborðinu eru
mjög einfaldar, jafnvel hversdags-
legar, en á bak við þær er mikil
dýpt og óendanlegar andlegar
víddir. Töfrar jólaguðspjallsins eru
fólgnir í þessu. Það er engin
skreytilist í gangi hjá höfundinum
en hugsaðu þér allt ímyndunaraflið
sem kviknar hjá þeim sem heyra
þessa sögu ár eftir ár og hún berst
einnig stöðugt til okkar í sögum og
söngvum og myndverkum. Það er
alltaf eitthvað nýtt og gott sem
vaknar til lífs í sálu manns við að
heyra jólaguðspjallið.“
Biskupsstarfið Maður í
þessi starfi lendir oft í því
að vera skotskífan. Þá er
bara að taka því og fá á
sig skotin.
a
Við horfum upp
á skefjalausa
hlutadýrkun og
eftirsókn eftir hlutum,
tækjum og umbúðum. Á
sama tíma ríkir æ meira
virðingarleysi fyrir þessu
öllu saman. Er það ekki
þetta virðingarleysi
gagnvart lífinu sem er að
kollsigla heiminum?
a
Það er svo
merkilegt með
jólaguðspjallið
að það talar öðruvísi til
manns þegar maður er
kominn á efri ár en það
gerði til barnsins og ung-
lingsins. En boðskapurinn
um frelsarann á alltaf
sama erindi við okkur öll,
hvar sem við erum stödd
á lífsskeiðinu.
VEL ÞRIFIÐ FYRIRTÆKI
– vellíðan á vinnustaðnum
Láttu okkur þrífa fyrirtækið þitt
Sólarræsting ehf. • Kleppsmýrarvegi 8
104 Reykjavík • Sími. 581 4000
Fax. 581 4000 • solarraesting.is
Við óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla