24 stundir - 15.01.2008, Blaðsíða 23
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 23
Fyrirtækið Smákranar flutti ný-
verið inn kranann Unic Urw 506
sem er þriðji smákraninn sem
kemur hingað til lands, samkvæmt
Erlingi Snæ Erlingssyni fram-
kvæmdastjóra. „Þessi krani er
reyndar töluvert stærri en hinir
bræður hans. Samt sem áður
flokkast hann undir smákrana
vegna þess að þótt lyftigetan sé
umtalsvert meiri þá er hann til-
tölulega nettur. Hann er 140 cm á
breidd og kemst þar af leiðandi í
gegnum tvöfalda hurð á meðan
hinir minni eru ekki nema 60 cm á
breidd og komast í gegnum ein-
falda hurð. Lyftigetan, stærð og
lengd á bómu eru sem sagt um-
talsvert meiri. Það kemur sér mjög
vel fyrir okkur vegna þess að eftir
því sem viðskiptavinir okkar
kynnast tækjunum betur þá eykst
sá fjöldi og fjölbreytileiki verkefna
sem við þurfum að taka að okkur.“
Mikið seldir í Evrópu
Erlingur segir að kraninn geti
lyft þremur tonnum út í þrjá og
hálfan metra frá sér sem kemur sér
oft vel. „Til dæmis var hann not-
aður í verkefni hjá Íslenskum Að-
alverktökum í nýbyggingu á há-
skólatorginu þar sem hann var
notaður til að hífa upp stálein-
ingar í stálstiga. Það hefði annars
orðið mikið heilabrot að fram-
kvæma verkið ef þetta tæki hefði
ekki verið notað. Unic er mjög
gott merki og í fararbroddi í Evr-
ópu þar sem fleiri hundruðir
svona krana hafa verið seldir, um
fjögur hundruð minni kranar og
hátt í 150 stærri kranar. Þessar
tvær tegundir krana eru í röð fjöl-
skyldu krana þar sem minnsti
kraninn er eitt tonn og kemst inn í
lyftur og þess háttar upp í það að
stærsti kraninn er átta tonn að eig-
in þyngd og lyftir sex tonnum.“
Nýr krani hjá fyrirtækinu Smákrönum
Stór og sterkur smákrani
KYNNING
Smákrani Unic Urw 506 er 140 cm á
breidd og getur lyft þremur tonnum.
Ást fólks á skærrauðum slökkvibíl-
um er vel kunn og því kemur það
lítið á óvart að reynt sé að mark-
aðssetja vörur með því að notast
við slökkvibíla. Á nýafstaðinni CES
2008 sýningu í Las Vegas var til
sýnis þessi líka ágætis stafræni
myndarammi sem búið er að fella
snyrtilega inn í slökkvibíl. Ekki er
vitað hvort þessi tiltekni mynd-
arammi vakti mikla lukku meðal
sýningargesta.
Slökkvibíls-
myndarammi
Samtök sendibílstjóra í Bandaríkj-
unum hafa ráðið til sín ráðgjaf-
arfyrirtækið Chapman Capitol
Consulting Inc. til þess að leggja
þeim lið í hagsmunabaráttu sam-
takanna.
Ráðgjafarfyrirtækið mun meðal
annars beita sér fyrir úrbótum
stjórnvalda í öryggismálum, fjár-
mögnun hraðbrauta og fjölmörgu
öðru sem skiptir sköpum fyrir
starfandi sendibílstjóra.
Lobbýistar fyrir
sendibílstjóra
Ef veðrið er gott og sólin skín er
ágætt að bregða sér út úr pall-
bílnum öðru hverju og fá sér ferskt
loft. Þetta sniðuga sætasett er til-
valið til að nota í kaffinu eða há-
degismatnum. Á því geta tveir set-
ið þægilega og svo er hægt að
geyma kaffibrúsann eða aðra
drykki og matinn í hólfinu í miðj-
unni. Sérlega þægileg lausn þegar
verið er að starfa fjarri veit-
ingastöðum og annarri þjónustu.
Þægileg sæti í
pallbílinn