24 stundir - 15.01.2008, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 24stundir
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Þorsteinn Björnsson vöruflutn-
ingabílstjóri hefur verið í brans-
anum áratugum saman. „Ég er nú
ekki viss hvernig ég datt inn í þetta
starf enda ákvað ég aldrei að ég
ætlaði að vera bílstjóri. Það má
eiginlega segja að ég hafi bara
slysast inn í þetta og þar sem ég á
góða félaga í bransanum hef ég
haldist í starfinu öll þessi ár,“ segir
Þorsteinn.
Starf flutningabílstjóranna hef-
ur breyst töluvert í áranna rás en
álagið er alltaf að aukast. „Þegar ég
var að byrja að keyra á milli
Reykjavíkur og Akureyrar og Eg-
ilsstaða var ekki mikil pressa á
okkur að komast sem fyrst á milli
staða. Viðskiptavinirnir voru þol-
inmóðir og biðu rólegir eftir okk-
ur. Það er allt annað en í dag þar
sem við erum undir stöðugri
pressu um að komast sem fyrst á
milli staða.“
Meira álag vegna vökulaga
Lagabreytingar hafa einnig gert
það að verkum að bílstjórarnir
eiga erfiðara um vik með að slaka
á í vinnunni. „Vökulögin breyttu
starfinu heilmikið enda þekktist
það áður að bílstjórar keyrðu í 20
tíma á sólahring og sváfu í 4 tíma.
Það var að sjálfsögðu ekki gott en
nú má segja að öfgarnar séu
komnar í hina áttina. Lögin krefj-
ast þess að við keyrum ekki lengur
en fjóra og hálfan tíma í einu.
Þessar kröfur fara mjög illa saman
við hraðann í nútímasamfélagi þar
sem allir eru á nálum ef vörurnar
eru ekki komnar í hús á réttum
tíma. Afleiðingin er sú að bílstjór-
arnir keyra mun hraðar á vegum
sem engan veginn eru hannaðir til
þess að þola slíkt álag. Hættan í
umferðinni hefur því aukist tölu-
vert síðan lögin voru sett.“
Vantar aukinn sveigjanleika
Þeir sem vanir eru að keyra ut-
anbæjar kannast við óttann sem
fylgir því að mæta risatrukki á full-
um hraða enda er þá oft eins og
litli fólksbíllinn ætli út af veginum.
„Aukinn sveigjanleiki myndi létta
álaginu af bílstjórunum og veg-
unum. Það er til dæmis alltaf ves-
en þegar við erum að keyra frá Ak-
ureyri og erum þá hjá
Hvalfjarðargöngunum eftir fjóra
og hálfan tíma. Lögum samkvæmt
ættum við þá að stoppa og bíða í
45 mínútur sem er auðvitað fárán-
legt þar sem við eigum ekki eftir
nema hálftímaferð í bæinn. Hrað-
inn veldur því líka að við höfum
minni tíma til að aðstoða fólk sem
lent hefur í vandræðum á leiðinni
en áður fyrr gerðum við mikið af
því að hjálpa fólki að skipta um
dekk o.þ.h. en nú fer áætlunin öll
úr skorðum ef við stoppum.“
Árvakur/Skapti Hallgrímsson
Vökulögin gerðu meira illt en gott
Stórhættulegur hraði
á vegum landsins
➤ Hefur keyrt vörubíla síðan árið 1971.
➤ Starfar hjá Samskipum og ermjög ánægður þar.
➤ Segir að leiðin á milli Reykja-víkur og Egilsstaða hafi styst
um helming á þeim tíma sem
hann hefur starfað. Hún var
eitt sinn um sólarhringur en
er nú 10 tímar.
ÞORSTEINN BJÖRNSSON Vöruflutningabílstjórar
vita best hvernig ástand-
ið er á vegunum á lands-
byggðinni og því væri
sniðugt ráð að spyrja þá
álits á því hvað má betur
fara í samgöngumálum.
Þá skortir sannarlega
ekki hugmyndirnar.
Reynslubolti Þorsteinn er
öllu vanur í umferðinni.
Nýlega hóf Merlo framleiðslu á
Merlo 38.13 og 38.14 skotbómu-
lyftara en þeir eru einir stærstu
framleiðendur þessara lyftara.
Merlo lyftararnir eru styttri en
gengur og gerist, hafa meira hjól-
haf og minni snúningsradíus. Að-
gengi að vélinni er einstaklega
gott en vélin liggur langsum í
tækinu, sem gerir aðgengi að loft-
og olíusíum, kælum og vökva-
dælu auðvelda.
Hydrostatic sjálfskipting gerir
skotbómulyftarann nákvæman,
auðveldan og öruggan í keyrslu
og í jafnvel 50% halla hefur öku-
maður fullkomna stjórn á tækinu.
Þar sem hydrostatic sjálfskipting
er notuð við að bremsa tæki nið-
ur eru notkun og slit á hefð-
bundnum bremsum í lágmarki.
Vökvastýrð stöðubremsa er á út-
gangsöxli við sjálfskiptingu en
stöðuhemill fer sjálfvirkt á þegar
drepið er á vél. Með skriðpedal er
hægt að keyra tækið á mjög
litlum hraða en hafa fullt afl í
stjórnun á bómu. Samsetning á
bómu er á þeim hluta sem álag
erminnst. Auk þess eru L laga
slitklossar notaðir
Tækið er jafnframt útbúið með
afréttingu (frame levelling) sem
gerir það að verkum að ávallt er
rétt staða á bómu og ökumanns-
húsi. Eins er hliðarfærsla einstök
á Merlo, en Merlo er einn skot-
bómulyftaraframleiðanda sem
býður skekkingu á bómu. Skekk-
ing á bómu 38.14 er +/- 345 mm.
Söluaðil Merlo á Íslandi er Íslyft í
Kópavogi.
Íslyft selur lyftara frá Merlo með hliðarfærslu og afréttingu
Nákvæmur og öruggur skotbómulyftari
Merlo er einn stærsti
framleiðandi skotbómu-
lyftara í heimi.
KYNNING
Bíldshöfði 14 - Sími 553 1244 – ljosboginnehf@simnet.is
Mikið úrval af:
störturum og alternatorum fyrir
flestar gerðir fólksbíla, vörubíla og
vinnuvéla. Einnig varahlutaþjónusta
24 stunda
Auglysingasimi
Kolbrun S.510 3722 / kolla@24stundir.is
Katrin s.510 3727 /kata@24stundir.is
Serblad Born
og
uppeldi
16.januar 2008