24 stundir - 15.01.2008, Page 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 24stundir
„Þessi flottasti listamaður þjóð-
arinnar, er hundelt [...] við eigum
að standa með henni, enda hefur
hún ekki verið þekkt fyrir príma-
donnustæla [...] ég stend með
henni, og finnst ómaklegt að Ís-
lendingar séu að blogga um
breytingarskeið og annað því um
líkt.“
Jenný Anna Baldursdóttir
jenfo.blog.is
„Ég skil Björk vel, það hlýtur að
vera að flestir lendi í svona á viss-
um tímapunkti, að hafa stjórn á
skapi sínu og að hafa vald á eigin
tilfinningum getur ekki átt alltaf
við. En þar kemur á móti að ef þú
drekkur 1l af óblönduðum vodka
á hverjum degi, þá ætti nú allt að
geta gerst?“
María Magnúsdóttir
mariamagg.blog.is
„Það veit sá sem allt veit að ég
yrði BRJÁLUÐ ef ég fengi aldrei
stundlegan frið fyrir einhverju
fólki sem hefði það að atvinnu að
ljósmynda mig við allar kring-
umstæður til þess að hagnast á
því. Það getur engin manneskja
þolað þetta álag til lengdar.“
Ólína Þorvarðardóttir
olinathorv.blog.is
BLOGGARINN
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@24stundir.is
„Þau fengu ágætis frið. Það kvis-
aðist út að þau væru hérna þannig
að það var mun meira að gera en á
venjulegu sunnudagskvöldi,“ sagði
Jóhann Halldórsson, veitinga-
maður á Paddy’s í Keflavík.
Söngdívan Beyoncé Knowles og
kærasti hennar, rapparinn og við-
skiptajöfurinn Jay-Z, millilentu á
Íslandi á sunnudagskvöld. Jay-Z
mætti ásamt fríðu föruneyti á bar-
inn Paddy’s í Keflavík um klukkan
22 og sjálf drottningin Beyoncé
mætti um hálftíma síðar. Jay-Z og
félagar drukku bjór og vodkastaup
á meðan þeir fylgdust með leik
Dallas Cowboys og New York Gi-
ants í úrslitakeppni bandarísku
NFL-deildarinnar í amerískum
fótbolta. Beyoncé lét sér hins vegar
nægja glas af 7-up.
Áritaði síma og diska
„Það mátti ekkert trufla Jay-Z á
meðan leikurinn var. Hann lifði sig
rosalega inn í leikinn, öskrandi og
æpandi,“ segir Jóhann og hlær.
Hann var ekki á vakt í gærkvöldi
en var fljótur að drífa sig á staðinn
þegar hann heyrði hverjir voru á
leiðinni. „Ég sleppti ekki þessu
tækifæri að kíkja aðeins á drottn-
inguna. Ég talaði við Beyoncé þeg-
ar hún kom inn og bað um að fá að
taka myndir og svona með tveimur
af eldri krökkunum mínum. Hún
sagði að ég gæti komið með krakk-
ana og svoleiðis en vildi engar
myndatökur.“
Beyonce áritaði síma, geisladiska
og annan varning fyrir krakkana
og gesti staðarins og var hin alþýð-
legasta.
Engir stjörnustælar
Steinþór Jónsson, hótelstjóri
Hótel Keflavíkur, segir
Beyoncé og hennar fylgdarlið
hvorki hafa verið með sér-
þarfir né stjörnustæla.
„Hún var flott eins og
alltaf og klædd í flottan
pels,“ segir hann.
„Hún
heilsaði
öllum og
svona en
gaf sér
ekki tíma
í að gefa
eigin-
handaráritanir eins og gestirnir
báðu um. En hún var almennilegt
og vinkaði öllum.“
Mikill snjór var í Keflavík í
morgun en leigubílstjórarnir voru
búnir að koma sér vel fyrir við út-
gang Hótel Keflavíkur í morgun.
„Leigubílstjórarnir stjönuðu í
kringum hana og opnuðu allar dyr
fyrir hana,“ segir Steinþór, en hann
kvaddi Beyoncé með gjöf frá lista-
konunni Guðlaugu Helgu Jóns-
dóttur, systur
sinni.
Stórstjörnurnar Beyoncé Knowles og Jay-Z gistu í Keflavík
Laus við stælana
og sötraði 7-up
Keflvíkingar voru fljótir
að frétta af komu
Beyoncé Knowles og
Jay-Z til landsins og hóp-
uðust á barinn Paddy’s.
Þar sátu stjörnurnar og
horfðu á fótbolta.
Fóru á Paddy’s Beyonce og
Jay-Z mættu óvænt á pöbbinn.
Samsett mynd/Elli
Hittu stjörnurnar Stefán Karl og Tara Rós fengur
eiginhandaráritanir frá drottningunni. Til vinstri sést
samskonar disk og Beyonce fékk að gjöf.
HEYRST HEFUR …
Gerður Kristný og Katrín Jakobsdóttir hafa séð
um menningarumfjöllun í þáttunum Mannamál
með Sigmundi Erni á sunnudagskvöldum í vetur.
Gerður og Katrín voru báðar óléttar þegar þættirnir
hófu göngu sína en Katrín eignaðist dreng á gaml-
ársdag. Gerður beið örlítið lengur og mætti í
Mannamál á sunnudagskvöld og eignaðist loks
dreng undir mánudagsmorgun. afb
Haraldur Freyr Gíslason, trommuleikari Botn-
leðju, var ferskur andblær í stundum of jákvæðan
álitsgjafahóp Laugardagslaganna um helgina. Sagði
hann meðal annars að honum fyndist eitt laganna
„ömurlegt“. Haraldur var samt „bullandi van-
hæfur“ eins og Gísli Einarsson benti á enda bróðir
Arnars, trommuleikara Dr. Spock, sem flutti hið
frábæra Hvar ertu nú? og komst í úrslit. afb
Knattspyrnuhetjan Helgi Sigurðsson skorar víðar
en á knattspyrnuvellinum því um liðna helgi gerði
hann sér lítið fyrir og vann tæpar 100 þúsund krón-
ur á Lengjunni. Helgi gerir lítið af því að tippa, en
þykir getspakur með eindæmum þegar sá gállinn er
á honum. Lokaleikurinn á seðlinum var viðureign
Bolton og Blackburn, en þar kom sigurmarkið á
síðustu mínútu leiksins. bba
„Það er gömul lumma og fyrir
mína tíð,“ segir Óttar Hrafnkels-
son, forstöðumaður ylstrandar-
innar í Nauthólsvík um meint
bann á berum brjóstum á strönd-
inni.
Sænskar og danskar konur berj-
ast nú fyrir breyttum baðfata-
reglum á sundstöðum en þær vilja
fá að synda bera að ofan – rétt eins
og karlmenn. Í 24 stundum á
föstudag kom fram að íslenskar
konur njóta mun meira frelsis en
engar reglur virðast banna þeim að
flagga berum barminum í sund-
laugum landsins.
Í lagi ef það truflar ekki
„Þetta voru ómótaðar reglur,“
segir Óttar. „Það er ekki bannað að
vera berbrjósta á ylströndinni. Í
öllum sínum einfaldleika er þetta
þannig að ef kvenmaður kýs að
vera berbrjósta á ylströndinni þá er
það allt í lagi, svo lengi sem það
truflar ekki aðra gesti.“
Kvenfólk má ekki vera ber-
brjósta í Bláa lóninu en ástæðan
fyrir því er einföld að sögn Magn-
eu Guðmundsdóttur kynningar-
fulltrúa. „Við fáum til okkar gesti
af svo ofboðslega mörgum þjóð-
ernum. Það sem okkur á Íslandi
þætti sjálfsagt getur sært blygð-
unarkennd annarra gesta.“
70% gesta Bláa lónsins eru er-
lendir að sögn Magneu. „Við höf-
um ekki orðið vör við mótmæli
eða óánægju íslenskra gesta varð-
andi þetta. Það hefur verið
skemmtileg baðfatatíska á Íslandi
og ég held að konum þyki gaman
að spóka sig í bikiní.“
atli@24stundir.is
Beru brjóstin eru ekki leyfð alls staðar
Bannað í lóninu,
í lagi á ylströndinni
Frelsi Íslenskar konur mega bera
brjóstin í Nauthólsvík.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
6 2 7 8 1 4 9 3 5
5 3 8 2 6 9 1 4 7
9 1 4 7 3 5 8 2 6
1 6 5 3 7 8 2 9 4
7 9 2 6 4 1 5 8 3
4 8 3 5 9 2 6 7 1
2 5 1 4 8 3 7 6 9
8 4 6 9 5 7 3 1 2
3 7 9 1 2 6 4 5 8
Atli minn! Ætlaðir þú ekki annars
á blint stefnumót?
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Það er spurning en af því
að ég lék alla strumpana
þá gæti það verið erfitt að leika
þá alla á sviði.
Þarftu ekki að setja upp aðra afmælissýningu?
Strumparnir fögnuðu í gær fimmtíu ára afmæli sínu. Laddi, sem
talaði fyrir alla strumpana í hinum vinsælu teiknimyndum og er
því nátengdur vinsældum strumpanna, setti upp sérstaka
afmælissýningu í tilefni sextugsafmælis síns og ætti því að hug-
leiða að gera slíkt hið sama fyrir hina bláu vini sína.
SELFYSS-
INGAR!
Það er enginn skítamórall að 658 Selfyssingar hafi
fengið vinning í Happdrætti Háskólans á síðasta ári.
– Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni.
TIL HAMINGJU