24 stundir - 06.02.2008, Blaðsíða 6

24 stundir - 06.02.2008, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir – á sparnaðinn þinn! SPRON Vaxtabót – allt að vextir*15,05% SPRON Viðbót – allt að vextir*7,95% SPRON Veltubót – allt að ársávöxtun*14,59% Þú getur stofna ð reikning á SPRON.IS Frábærir vextir Allt að 15,05% vextir *Samkvæmt gildandi vaxtatöflu SPRON 1. febrúar 2008. Eftir að reykingabannið gekk í gildi síðastliðið sumar anga föt þeirra sem sitja á börum um helgar ekki lengur af reykingum og þess vegna fara bar- gestirnir ekki jafnoft og áður með fötin sín í hreinsun. „Það er minna um að fólk komi eftir helgar með föt angandi af reykingafýlu,“ segir Bernharð Bernharðsson, starfsmaður hjá Efnalaug- inni Úðafossi. Óskar Frímannsson, eigandi efnalaugarinnar og þvottahússins Hreins, segir almennt mikið að gera vegna gríðarlegrar fjölgunar bankastarfsmanna sem komi oft með jakkafötin sín og skyrturnar í hreins- un. „En það getur verið að almenningur sem notar jakkafötin sín um helgar komi sjaldnar með þau í hreinsun nú en fyrir reykingabannið. Og konurnar koma þá sjaldnar með kjólana.“ Óskar bætir því við að viðskiptavinirnir komi í auknum mæli með allan heimilisþvottinn. „Fólk kemur líka með nærfötin sín. Það hefur bara ekki tíma í þetta,“ segir hann. Eigendur efnalauga í Bretlandi kenna meðal ann- ars reykingabanni um samdrátt í bransanum, að því er greint er frá í breska blaðinu The Guardian. Föt bargesta anga ekki lengur af reykingafýlu eftir helgarnar Fara sjaldnar í efnalaugina Reyklaust Bargestir koma sjaldnar í efnalaug en bankamenn. Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@24stundir.is Til þess að nýta Keflavíkurflugvöll betur þarf að fjölga ferðum utan háannatíma, að því er Friðþór Ey- dal, upplýsingastjóri hjá flugmála- stjórn vallarins segir. „Ætli flugfélög að fjölga ferðum um Keflavíkurflugvöll verða ferð- irnar að vera utan háannatíma þar til fleiri stæði með beinni tengingu hafa verið gerð einhvern tíma í framtíðinni. Það er hins vegar ekki endalaust hægt að fjölga land- göngubrúm,“ bendir Friðþór á. Ekki tilbúin til notkunar Landgöngubrýrnar 11 við flug- stöðina á Keflavíkurflugvelli eru ekki nógu margar á háannatíma. Stæði sem eru það langt frá flug- stöðinni að aka þarf farþegum út í vél verða ekki í boði í sumar, að sögn Friðþórs. „Þau verða ekki tilbúin til þeirrar notkunar,“ segir hann. Nýta annan tíma Friðþór getur þess að flugfélög séu nú þegar farin að nýta annan tíma en háannatímann sem er ein- ungis tvær klukkustundir á morgnana og tvær klukkustundir síðdegis. „En það er ekki nóg að eitthvert flugfélag taki ákvörðun um að fljúga héðan á ákveðnum tíma. Það verður líka að fá ákveð- inn stæðistíma á áfangastað. Það er ekki alltaf auðsótt. Héðan er flogið inn á flugvelli sem sumir eru miklu þéttar setnir en flugvöll- urinn hér.“ Fékk ekki aðstöðu Matthías Imsland, forstjóri Ice- land Express, segir fjölgun á ferð- um ferðaskrifstofunnar umtalsvert minni en hann hefði viljað. „Við fengum ekki aðstöðu á vellinum. Við vildum fjölga ferðunum miklu meira en menn voru ekki tilbúnir til þess að hliðra til. Við vorum til- búnir til þess að vera í stæði lengra frá þótt það hefði þurft að aka far- þegum í vélina en fengum þau svör að það væri ekki hægt,“ segir Matthías. Friðþór segir að óskir Iceland Express hafi ekki samræmst al- þjóðlegu stæðisúthlutunarkerfi. Nýta verður völlinn betur  Fjölga verður ferðum um Keflavíkurflugvöll utan háannatímans  Stæði sem aka þarf til ekki í boði fyrir farþegavélar í sumar ➤ Um háannatímann í fyrravoru nærri 300 ferðir á viku í áætlunarflugi og reglu- bundnu leiguflugi. ➤ Búist er við svipaðri aukninguí sumar og var á síðasta ári en þá jókst millilandaflug um 7,3 prósent. KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR Árvakur/ÞÖKFlugstöðin Landgöngubrýrnar 11 eru fullnýttar á háannatíma. Í þeim fimm fangelsum sem fangar eru vistaðir í á Íslandi eru 128 pláss í dag. Þeim mun fjölga um tíu þegar fangelsið á Akureyri verður opnað aftur á ný eftir end- urbætur í byrjun næsta mánaðar, en á móti kemur að hætt verður að vista tvo saman í klefa líkt og gert er í þremur tilvikum á Litla- Hrauni. Heildarplássin verða því 135 talsins eftir þá opnun. Næstum full nýting Meðalnýting íslensku fangels- anna á síðasta ári var 94,83 pró- sent. Þrjú þeirra; Kópavogsfangelsi, Litla-Hraun og Kvíabryggja voru með yfir 96 prósenta nýtingu. Árið 2006 var heildarnýting fangelsanna 85,94 prósent, eða tæplega níu pró- sentum minni. Heildarrefsitími í árum talið var 302 ár í fyrra. Árið 2006 var hann 220 ár og 203 ár að meðaltali áratuginn þar á undan. Heildarrefsitími jókst því um 82 ár milli ára og var 99 árum hærri í fyrra en að meaðltali áratuginn á undan. thordur@24stundir.is Samanlagður refsitími fanga lengist verulega milli ára 95% nýting á fangelsum 2007 Litla-Hraun Nýting plássa í fangelsinu var 99,79 prósent í fyrra.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.