24 stundir - 06.02.2008, Page 8
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Eldunartæki, kælitæki,
uppþvottavél og ljós
í eldhúsið þitt.
Sannarlega
góð hugmynd!
8 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
„Þegar til lengri tíma er litið er
ástæðan auðvitað sú að menn kjósa
að selja óunna fiskinn úr landi því
þeir fá fyrir hann hærra verð þar,“
segir Friðrik Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna.
Á forsíðu 24 stunda á laugardag-
inn gagnrýndi Gunnar Bragi Guð-
mundsson, formaður Samtaka
fiskframleiðenda og útflytjanda, að
íslensk fiskvinnslufyrirtæki fái ekki
tækifæri til að bjóða í óunninn fisk
sem seldur er úr landi á markaði
erlendis.
„Það er alkunna hverjir það eru
sem flytja hvað mest af þessum
fiski út og vilji íslenskar fisk-
vinnslur kaupa þennan afla þurfa
fiskverkendur ekki að gera annað
en að taka upp símann og bjóða í
aflann. Og ef þeir geta boðið sam-
keppnishæft verð, þá fá þeir fisk-
inn.“
Vigtun hérlendis rýrir verð
Friðrik segir Samtök fiskfram-
leiðenda reyna að gera útflutning-
inn á óunnum fisk óhagkvæman
með því að krefjast þess að allur afli
verði vigtaður hérlendis áður en
hann er sendur úr landi. „Með því
að taka aflann upp úr ísnum og
vigta hann verður til kostnaður og
fyrirhöfn og fiskurinn fer verr á því
og þar af leiðandi fæst fyrir hann
lægra verð,“ segir Friðrik.
Í frétt 24 stunda kom fram að
sala á óunninni ýsu hafi aukist um
tæp 32 prósent milli fiskveiðiára.
Friðrik segir hlutfall ýsu sem seld
hefur verið óunnin úr landi fyrstu
fjóra mánuði fiskveiðiársins rúm-
lega þrettán prósent af ýsuveiðinni
en hafi verið tæp fimmtán prósent
fyrstu fjóra mánuði síðasta fisk-
veiðiárs og því hafi útflutningur
dregist saman hlutfallslega á milli
ára.
Friðrik vísar því á bug að menn
stundi að flytja óunninn fisk út til
að græða á rýrnun hans. „Rýrnun á
fiskinum er óveruleg, menn senda
aflann út vegna verðsins.“
Geta boðið
í fiskinn
Framkvæmdastjóri LÍÚ segir óunninn
fisk standa íslenskum fiskvinnslum til boða
Ýsa Útflutningur á óunninni
ýsu hefur aukist um 32 prósent
á milli fiskveiðiára.
➤ Á síðasta fiskveiðiári voruflutt út 5925 tonn af óunnum
þorski og ýsu fyrstu fjóra
mánuði veiðitímabilsins.
➤ Fyrstu fjóra mánuði núver-andi fiskveiðiárs eru tonnin
orðin 7508 talsins.
ÝSAN TIL ÚTLANDA
24 stundir eru næstmest lesna
dagblað landsins, samkvæmt niður-
stöðum könnunar Capacent Gallup.
Mánuðina nóvember til janúar lásu
að meðaltali 45,8% landsmanna á
aldrinum 12-80 ára blaðið hvern út-
gáfudag, 3,7 prósentustigum fleiri
en í síðustu könnun.
Fréttablaðið heldur nokkurn veg-
inn sínu í könnuninni, með tæplega
62% meðallestur. Lestur Morgun-
blaðsins minnkar um 1,4 prósentu-
stig og er 41,7%.
Samtals lesa um 74% lands-
manna eitthvað í 24 stundum í viku
hverri. Sambærileg tala fyrir Frétta-
blaðið er 88% og 70,5% fyrir Morg-
unblaðið.
Gallup mælir lestur dagblaða
með daglegum símakönnunum.
Niðurstöður eru birtar á þriggja
mánaða fresti.
LESTUR DAGBLAÐA
jan.-feb.
2007
mars-apríl
2007
maí-júlí
2007
ágúst-okt.
2007
nóv. 2007
-jan. 2008
70%
50%
30%
Heimild: Capacent Gallup
udagur
2007
. árgangur. stundir24 45,80%
41,68%
61,79%
Könnun Gallup á lestri dagblaða
46% lesa 24 stundir
Haukur Hauksson heldur
fyrirlestur um stöðu og
horfur í rússnesku þjóð-
félagi og stjórnmálum í
kvöld. Verður aðalefnið
milljarðamæringar landsins
– hvaða brögðum þeir
beittu við að komast yfir
auðæfi sín og hvort þá megi
flokka sem glæpamenn.
Þá verða tilburðir Vla-
dimírs Pútíns og félaga
hans í aðdraganda for-
setakosninga 2. mars
næstkomandi skoðaðir.
Fyrirlestur Hauks er á
vegum félagsins MÍR síð-
degis. aij
Rætt um stöðuna í Rússlandi
Glitnir hefur sagt upp þremur
starfsmönnum í útibúi sínu við
Lækjargötu í Reykjavík og einum
starfsmanni við útibú bankans á
Akureyri. Sá hafði einungis gegnt
stöðu sinni hjá bankanum í átta
mánuði.
Már Másson, upplýsingafulltrúi
Glitnis, segir bankann leita leiða
til að lækka kostnað en segir
fjöldauppsagnir ekki fyrirhug-
aðar. Bankinn vinni að málunum
og það muni taka tíma.
Hann vildi hvorki staðfesta hvort
umræddar uppsagnir væru í
sparnaðarskyni né hvort eða hve-
nær fleiri starfsmönnum verði
hugsanlega sagt upp störfum.
Bankinn réði meira en þrjú
hundruð manns til starfa á síð-
asta ári og hefur nú verið dregið
verulega úr nýráðningum. Þá
sagði Már að ekki verði ráðið í
þær stöður sem losna hjá bank-
anum að svo stöddu. æþe
Glitnir segir upp
starfsfólki
Á VETRARHÁTÍÐ
NASA við Austurvöll
laugardaginn 9. febrúar kl. 21:00
Aðgangur ókeypis
www.vetrarhatid.is
Iva Nova flaug til Íslands með Icelandair
RÚSSNESKA STELPNAHLJÓMSVEITIN
IVA NOVA
AÐALFUNDUR HVERFISFÉLAGS SAMFYLKINGAR
Í VESTURBÆNUM 2008
Allir Vesturbæingar
eru velkomnir.
Veitingar í boði
Samfylkingarfélagið í Vesturbæ Reykjavíkur blæs til
aðalfundar fimmtudaginn 7. febrúar 2008. Fundurinn
verður haldinn í KR heimilinu við Frostaskjól kl. 18.00.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
1. Setning, Felix Bergsson,
formaður Hverfisfélags Samfylkingar í Vesturbæ
2. Ávarp utanríkisráðherra og formanns Samfylkingarinnar,
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
3. Ávarp borgarfulltrúa, Oddný Sturludóttir,
form borgarmálaráðs SF.
4. Venjuleg aðalfundarstörf
5. Framtíð KR. Forsvarsmenn KR kynna hugmyndir um
uppbyggingu félagsins. Í kjölfarið verða umræður
6. Almennt kaffispjall um Vesturbæinn