24 stundir - 06.02.2008, Page 10
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Ráðherra í sænsku ríkisstjórninni
vill koma á fót skólum til að
mennta ímama, trúarleiðtoga
múslíma. Tilganginn segir hann
vera að berjast gegn því að rót-
tæklingar noti trúna sem skjól.
Samtök múslíma fagna áformun-
um, en vilja tryggja hugmynda-
fræðilegt sjálfstæði skólanna.
Óttast neikvæð erlend áhrif
Hugmyndirnar koma frá Lars
Leijonborg, sem er ráðherra æðri
menntunar og rannsókna. Vill
hann að ríkið styðji sænska músl-
íma til að mennta fólk innan sinna
raða, eða hjálpi aðfluttum ímöm-
um að kynnast sænsku samfélagi
og læra tungumálið.
Hefur Leijonborg áhyggjur af
því að öfgaöfl geti misnotað nú-
verandi ástand, þar sem trúarleið-
togar eru flestir aðfluttir.
„Það er talið að sádiarabískir
öfgamenn bjóðist til að leggja til
ímama endurgjaldslaust, og pen-
ingaskortur þýðir að hófsamir
múslímar sem vilja opna mosku
hafa varla um neitt annað að velja.
Þannig stuðlum við með opnum
augum að því að róttækni skjóti
hér rótum, sem er afar, afar
óheppilegt,“ segir Leijonborg.
Nýtur víða stuðnings
Hugmyndir Leijonborgs eiga
upp á pallborðið hjá meðlimum
ýmissa annarra flokka. Sósíal-
demókratinn Luciano Astudillo
hefur lengi hvatt til þess að sænska
ríkið fylgi fordæmi Dana og Breta
og styðji menntun ímama heima
fyrir.
„Það er fyrst þegar leiðtogar ísl-
amska samfélagsins eiga náttúru-
legt innlegg í sænskt samfélag sem
við getum brotið niður þá tilfinn-
ingu sem margir múslímar finna
fyrir – að vera utangarðs og ein-
angraðir,“ segir Astudillo.
Ríkið má ekki seilast of langt
Mahmoud Khalfi, sem er ímam
við moskuna í Stokkhólmi, fagnar
því að ríkið vilji veita fé til að
styðja samfélag múslíma í Svíþjóð.
Hann varar þó við því að afskipti
ríkisins nái of langt inn í trúar-
brögðin sjálf.
„Þetta er spurning um trúverð-
ugleika. Hver myndi sig sætta sig
við ímam sem hefur verið kennt af
ríkinu? Jafnvel í íslömskum ríkjum
er það mjög viðkvæm spurning
hvort ríkið eigi að blanda sér í
spurningar sem snerta trúmál sér-
staklega,“ segir Khalfi við Svenska
Dagbladet.
„Við styðjum að ríkið löggildi
menntun ímama, en viljum sjálfir
vera með og útfæra hana,“ segir
Omar Mustafa, talsmaður ungra
múslíma í Svíþjóð, við Dagens
Nyheter. „Það er ekki hlutverk rík-
isins að skilgreina hvað er róttækt
íslam.“
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á 24@24stundir.is
Sænska ríkið
mennti múslíma
Óttast að erlend öfl reyni að hafa áhrif á samfélag múslíma
Vonast til að auðvelda múslímum lífið í Svíþjóð
➤ Áætlað er að 300.000 til350.000 múslímar búi í Sví-
þjóð. Svíar eru röskar 9 millj-
ónir.
➤ Moskan í Malmö er sú elsta íSkandinavíu. Hún var tekin í
notkun árið 1984.
➤ Brennuvargar hafa þrívegisráðist á moskuna í Malmö.
ÍSLAM Í SVÍÞJÓÐ
AFP
Moskan í Malmö Elsta
moska Norðurlanda
10 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir
24 stunda
Auglysingasimi
Kolbrun S.510 3722 / kolla@24stundir.is
Katrin s.510 3727 /kata@24stundir.is
Serblad
12.februar 2008
vinnuvelar
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Kólumbíumenn hafa flykkst út á
götur í hundraða þúsunda tali til
að mótmæla uppreisnarmönnum
FARC. „Ekki fleiri mannrán, engar
lygar meir, ekki fleiri dauðsföll,
ekki meira FARC,“ stendur á borð-
um sem mótmælendur bera. Áætl-
að er að á milli 500.000 og tvær
milljónir manna hafi fyllt götur
höfuðborgarinnar Bógóta, auk þess
sem mótmælt var víðs vegar annars
staðar um landið og í borgum víða
um heim.
„Ég held að þessi mótmælaganga
setji fordæmi í Kólumbíu vegna
þess að þetta er í fyrsta sinn sem
Kólumbíumenn mótmæla allir sem
einn,“ hefur fréttamaður BBC eftir
konu á götum Bógóta.
Tæpur mánuður er síðan mót-
mælahreyfingin fæddist. Þá stofn-
aði verkfræðingurinn Oscar Mor-
ales hana á heimasíðunni
Facebook. Innan skamms tíma
höfðu 250.000 manns skráð sig hjá
Morales og baráttan náði athygli
fjölmiðla heima fyrir og erlendis.
Þykir hreyfingin til marks um
mátt netsins til að afla stuðnings
fólks um allan heim.
„Samlandar okkar sem búsettir
eru erlendis og hafa í dag sameinast
félögum sínum eiga þakkir okkar
skildar,“ segir Alvaro Uribe forseti.
andresingi@24stundir.is
Fjöldahreyfing sem fæddist fyrir mánuði á netinu
FARC mótmælt í Kólumbíu
AFPMótmæli Fólk ber borða gegn FARC í Bógóta, höfuðborg Kólumbíu
Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Pól-
lands, hefur brugðist við beiðni kanadísks
kollega síns um að auka liðstyrk í Afganistan.
Gagnrýnir hann aðrar aðildarþjóðir NATO
fyrir að tregðast við að fjölga hermönnum.
„Þegar bandamaður biður þig um aðstoð,
reynir þú að liðsinna honum. Þetta verkefni
verður að ganga upp og getur aðeins gengið
upp með samvinnu,“ sagði Sikorski í heim-
sókn sinni til Ottawa, höfuðborgar Kanada.
1.200 pólskir hermenn eru í Afganistan, og
verður þeim fjölgað um 400 á árinu.
Stutt er síðan Kanadamenn vöruðu við því að
þeir myndu ekki framlengja dvöl hermanna sinna í Afganistan nema
önnur NATO-ríki fjölguðu hermönnum sínum þar. andresingi@24stundir.is
Pólland átelur bandamenn
Ísraelski þingmaðurinn Tzachi
Hanegbi, sem er flokksbróðir for-
sætisráðherrans Ehud Olmerts,
hefur hvatt til þess að brugðist
verði við sjálfsmorðsárás í bæn-
um Dimona með því að ráða
æðstu menn Hamas-samtakanna
af dögum. Segir hann árás sam-
takanna á mánudag hina fyrstu
sem þau hafa staðið á bak við síð-
an árið 2004, vera til marks um
breytta stefnu þeirra.
„Vegna þessa ætti ríkisstjórn Ísr-
aels líka að breyta sinni stefnu og
við ættum ekki að leyfa forystu
Hamas að njóta friðhelgi,“ sagði
Hanegbi í útvarpsviðtali. aij
Hvatt til
blóðhefnda
Kaþólsku kirkj-
unni gengur illa
að fylla í skörð
þeirra nunna,
munka og presta
sem falla frá eða
ganga af trúnni.
Á milli áranna
2005 og 2006
fækkaði þeim um 10% og eru nú
tæp milljón.
Í hópi vígðra eru nunnur í mikl-
um meirihluta, eða rúm 750.000.
Prestsvígðir eru um 136.000 og
fer meðalaldur þess hóps stöðugt
hækkandi, þannig að stefnt getur
í óefni, aukist nýliðun í hópnum
ekki.
Á sama tíma styrkist kaþólska
kirkjan stöðugt, en innan hennar
er nú 1,1 milljarður sóknarbarna.
Nunnum fækkaði um fjórðung í
tíð Jóhannesar Páls páfa og sýna
þessar nýjustu tölur að ekki hefur
tekist að snúa þeirri þróun við. aij
Vígðir týna
stöðugt tölunni