24 stundir - 06.02.2008, Síða 11

24 stundir - 06.02.2008, Síða 11
24stundir MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 11 Miðstjórn breska Verka- mannaflokksins íhugar að beita fjóra þingmenn sína aga- viðurlögum vegna baráttu þeirra fyrir því að bera Lissa- bon-sáttmála ESB undir þjóð- aratkvæði, þvert á vilja for- sætisráðherrans Gordons Browns. Þingmennirnir til- heyra þverpólitískum hópi sem berst fyrir því að stjórnin endurskoði afstöðu sína. Hyggst hópurinn kanna hug Breta með því að senda spurn- ingalista til hálfrar milljónar kjósenda, þar sem spurt verð- ur hvort fólk sé hlynnt því að þjóðaratkvæðagreiðsla verði um Lissabon-sáttmálann. aij Menntakerfi ríkja Mið- Austurlanda og Norður- Afríku hafa dregist aftur úr öðrum svæðum. Í skýrslu Al- þjóðabankans þar sem þetta kemur fram eru umbætur á þessu sviði sagðar mikilvægar í baráttu gegn atvinnuleysi. „Það er tímabært að lönd beini orku sinni að gæðum menntunar og tryggi að nem- endur séu búnir undir þarfir vinnumarkaðarins,“ segir Marwan Muasher hjá Al- þjóðabankanum. Segir hann þetta sérstaklega mikilvægt í arabaríkjum, þar sem allt að 60% fólks eru undir þrítugu. Samgöngur í Kína eru að komast í samt lag eftir vetr- arhörkur síðustu daga, en út- lit er fyrir að milljónir manna muni fagna nýju ári í raf- mangsleysi. Nýárshátíðin hefst í dag. Vatns- og rafmagnslaust hefur verið í fjölda borga. Til þessa hafa 11 rafvirkjar farist við að reyna að koma straumi á víðs vegar um landið. Þær 4 milljónir sem búa í borginni Chenzhou eru meðal þeirra sem finna fyrir ástand- inu. Þar var ellefti rafmagns- lausi dagurinn í röð í gær. aij Breskir þingmenn Skammaðir vegna ESB Arabaríkin Dragast aftur úr í menntun Veðrið í Kína Fagna áramót- um í myrkri Afgönsk stjórnvöld hafa farið þess á leit við alþjóðasamfélagið að það veiti meiri aðstoð í barátt- unni gegn ópíumrækt í landinu. Segja þau skorta úrræði fyrir bændur sem hætta eiturlyfjafram- leiðslu. Talið er að um 90% af ópíum- framleiðslu heimsins fari fram í Afganistan og að hagnaður af ræktuninni jafngildi um þriðjungi af landsframleiðslu. Féð er talið renna að mestu í vasa talibana. „Við þurfum stuðning alþjóða- samfélagsins, stuðning nágranna okkar, til að veita meira fé til að bæta lögregluna okkar, bæta eit- urlyfjasveitir lögreglunnar, auka bolmagn öryggissveita og loka landamærum okkar,“ segir Kho- daidad, ráðherra eiturlyfjavarna. Megnið af ópíumframleiðsl- unni er í suðurhluta landsins, þar sem Bretar leiða baráttuna gegn ópíuminu, auk þess að reyna að tryggja öryggi héraðsins. andresingi@24stundir.is Baráttan gegn eiturlyfjum í Afganistan Vilja meiri aðstoð utan frá Þúsundir manna mótmæltu verð- hækkunum á fargjöldum stræt- isvagna í Mósam- bík í gær. Minnst einn hefur látið lífið. „Þetta er ekki al- varlegt ástand enn sem komið er,“ segir Jóhann Pálsson, um- dæmisstjóri Þró- unarsamvinnustofnunar í Mó- sambík. „Það amar ekkert að þeim Íslendingum sem okkur er kunnugt um að séu í landinu.“ Verðhækkanir í Mósambík Einn fellur í mótmælum

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.