24 stundir - 06.02.2008, Side 17
24stundir MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 17
Mennirnir eru jafn misjafnir og
þeir eru margir svo og smekkur
þeirra en þó hefur Svisslending-
urinn Alain De Botton sett fram
áhugaverðar kenningar um hvað
skuli skilgreint sem fegurð í arki-
tektúr og skipulagi. Ein þeirra er sú
að fegurð sé víðtækt skipulag í
bland við víðtæka óreiðu. Þessi
skilgreining er ekki ný af nálinni,
því átjándu aldar heimspekingar
höfðu þessa sömu skoðun og segir
Alain að enn í dag sé mikið til í
þessu. Ennfremur þurfi bygging að
vera á réttum stað á réttum tíma til
að geta talist falleg. Annars stingi
hún í stúf við umhverfi sitt og
verði því ekki jafn aðlaðandi. „Fólk
nú til dags má oft ekki heyra upp-
byggingu nefnda á nafn, en þar er
frekar um að kenna slæmum arki-
tektúr en uppbyggingunni sjálfri,“
segir hann.
Góður arkitekt sálfræðingur
Alain De Botton veltir upp
heimspekilegum spurningum um
arkitektúr í nýútkominni bók sinni
The Architecture of Happiness.
Þar veltir hann fyrir sér fegurð um-
hverfis okkar og áhrifum þess á
sálina. Í bókinni leitast De Botton
við að skilgreina fegurð í bygging-
arlist og hönnun og segir fjölmarga
þætti liggja þar að baki. Í fyrirlestri
De Botton fyrir skömmu sagði
hann meðal annars að „góður arki-
tekt þyrfti einnig að vera góður sál-
fræðingur“ og það bæri að hafa í
huga að slæmur arkitektúr fyrntist
ekki, líkt og t.d. illa skrifaðar bæk-
ur.
Höfundurinn
De Botton hefur gefið út fleiri
bækur á sálfræðilegum nótunum,
meðal annars Essay in Love. De
Botton fæddist árið 1969 í Sviss en
er nú búsettur í London. Hann
heldur fyrirlestra tengda bókum
sínum víðs vegar um Evrópu.
Víðtækt skipulag í bland við óreiðu
Fegurð í arkitektúr er afstæð
Fegurð eða ei Byggingar þurfa að vera á réttum stað til að þær stingi ekki í
stúf við umhverfi sitt.
Skemmtilegir
nestispokar
Skólabörnin fara með nesti í skól-
ann og getur slíkt orðið leiðigjarnt
eins og annað. En með þessum
skemmtilegu pokum er t.d. hægt
að lífga upp á samlokurnar á ein-
faldan hátt. Í hjartapokann má líka
setja smáköku handa elskunni
sinni eða vini sem þarfnast hug-
hreystingar. Pokarnir geta líka ver-
ið sniðugir undir nammi eða popp
í barnaafmælum. Eða til að taka
með sér afganga af ávöxtum eða
snarli í bílinn. Það er bandaríska
fyrirtækið Mobi sem framleiðir
pokana en hönnuðir þeirra eru
Sandra Campos og Michael Isa-
acman, sem eru þekkt á hönn-
unarsviðinu í New York. Þau eiga
þrjú ung börn sem taka virkan þátt
í rekstrinum, þau Grace, 8 ára, sem
sér um að allar vörurnar séu nógu
skemmtilegar, hinn 5 ára gamla
Luke, sem sér um umhverfisvænu
hliðina og kemur á framfæri skila-
boðum um nauðsyn þess að end-
urvinna og loks er það hin 4 ára
gamla Julia sem sér um gæða-
stjórnun. Ef poki flýgur yfir her-
bergi tryggir hún að innihaldið sé
óskaddað við lendingu. Pokarnir
eru seldir á sölustöðum víða í og
utan Evrópu, til að mynda í Dan-
mörku, Kanada og Frakklandi.
Heimasíða fyrirtækisins er á slóð-
inni http://mobi-usa.com/
index.html.
CP
lo
ft
ve
rk
fæ
ri
fy
ri
r
er
fi
ði
ð
Skútuvogi 1c
104 Reykjavík
Sími 550 8500
Fax 550 8510
www.vv.is
Vélar og verkfæri hafa tekið
að sér einkadreifingu á
vörum CP (Chicago
Pneumatic), sem er leiðandi
fyrirtæki á heimsmarkaði
fyrir hágæða loftverkfæri.
CP hefur að bjóða mikið
úrval öflugra og öruggra
loftverkfæra sem sérhönnuð
eru fyrir iðnfyrirtæki,
verkstæði, verktaka og aðra
fagmenn á öllum sviðum
iðnaðar.
Vanti þig og fyrirtæki þitt
afburða verkfæri og annan
búnað, sem stenst allar
kröfur þínar og skilar þeim
afköstum og endingu sem til
er ætlast, leitaðu þá til
okkar.
CP loftverkfæri