24 stundir - 06.02.2008, Side 18

24 stundir - 06.02.2008, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is Í vesturbænum ríkir meiri sam- hugur en í flestum hverfum höf- uðborgarsvæðisins og menningin á Melunum er lífleg. Í vesturbæj- arlauginni er rædd heimspeki og þjóðmál og þangað mæta fasta- gestir hvern morgun, sérstæðir ýsuborgarar fást í pylsuvagninum fyrir utan. Miðja hverfisins virðist síðan vera hverfisverslun sem er athygl- isvert í tíðarandanum í dag þar sem stórmarkaðir og versl- unarkjarnar eru fremur miðdepill nýrra hverfa. Í vesturbænum hefur Melabúð- in verið starfrækt á sama stað í rúm 50 ár eða við Hagamel 39. Verslunina mætti vel kalla miðju hverfisins. Þar má fá heitt slátur og grillaðan kjúkling jafnt og fram- andi hitabeltisávexti og sælkera- vörur fyrir vandláta matgæðinga. Menningarstarfsemi Friðrik Guðmundsson, einn Melabúðarfeðga, segir um 2000 manns fara í gegnum búðina á hverjum degi. „Það mætti líkja rekstrinum við menningar- starfsemi,“ segir hann og hlær. „Þetta er jú kúltúr. Við leggjum mikið upp úr persónulegri og vandaðri þjónustu, hingað á að vera gott að koma. Það finnst flest- um ekki gefandi og gott að fara í stórmarkaði. “ Torfi Ólafsson, Melhaga 4, er sammála Friðriki. „Ég fer aldrei í stórmarkaði nema brýna nauðsyn beri til. Ég hef verslað við Guðmund og Frið- rik í Melabúðinni síðan Guð- mundur tók við rekstrinum. Það er sérstakur og góðviljaður andi er ríkir í versluninni og Guðmundur hefur verið laginn við að finna rétta starfsfólkið. Þegar ég slasaðist fyrir nokkrum árum var hann Guðmundur boðinn og búinn að skrifa hjá sér vörur. Hann spurði ekki einu sinni hvenær ég gæti borgað honum aftur. Hann treysti mér. Ég borgaði honum að sjálf- sögðu fljótt og örugglega.“ Sakna hverfisapótekanna Torfi segist ekki kunna vel við keðjumenninguna sem hefur tekið yfir heilu hverfin. „Ég sakna hverf- isapótekanna sem hafa verið gleypt af Lyfjum og Heilsu og líkum keðj- um. Þessar keðjur hafa gleypt öll apótekin. Ég versla við apótekið á horninu hjá mér, en það er af þurft fremur en að ég kunni við búð- irnar. Og ég kann sérlega illa við 10-11 og 11-11 verslanirnar. Það er hreinlega niðurdrepandi að stíga inn í þær.“ Ekki slopplaus stund Spurður um mikilvægi hverf- isverslana, segir Friðrik marg- breytileikann verða að fá að lifa. „Rekstur verslunar eins og Mela- búðarinnar og keðjuverslunar eins og 11-11 eða Bónus er ólíkur. Munurinn felst fyrst og fremst í persónulegri þjónustu.“ En ætlar Friðrik nokkuð að skipta út kjötsloppunum góðu sem þeir feðgar eru frægir fyrir að klæðast í versluninni? „Nei, ég lofa að fleygja þeim ekki. Kann vel við þá. Það er varla sú stund sem ég er slopplaus,“ bætir hann við og hlær. Eftirsótt að búa í grennd við Melabúðina og Vesturbæjarlaug Sönn vesturbæjar- stemning á melunum Hvaða galdur er það sem virkar í Vesturbænum svo fólk sækist eftir að búa þar vegna þess samhugar og stemningar sem þar ríkir? Leitar sér jafnvel að íbúð í grennd við Mela- búðina! Hvað er sönn vesturbæjarmenning? Friðrik í Melabúðinni og Torfi Ólafsson, Melhaga, voru teknir tali. Stemning á Hagamel Á árlegri götuhátíð; Hoppikastalar, harm- onikkuspil, sykurfrauð og pylsur, innblásnar ræður og almennt stuð. Melabúðarfeðgarnir Snorri, Pétur, Friðrik og Guðmundur. Heitt slátur! Í Mela- búðinni fæst besti skyndibíti landsins. Morgunstundin hefst rétt rúmlega 6. Þá streyma að fastagestirnir til að taka sprett í laug- inni. SAN Cable Kit Rafmagns gólfhitakerfi Einföld uppsetning. Lagt í flísalím eða flotað Án skaðlegra efna • Fitu- og kýsilleysandi Húðvænt • Náttúrulegt • Mjög drjúgt Hentar vel til þrifa á blöndunartækjum, vöskum, ryðfríu stáli, áli, kopar, messing, gleri, plasti, lökkuðum flötum, kristal, keramiki, postulíni ofl. ofl. Fix töframassinn Hreinsar, fægir og verndar samtímis. Svampur fylgir með Ótrúlegur árangur Húsasmiðjan - Byko - Fjarðarkaup - Tengi - Melabúðin - Verkfæralagerinn - Eyjatölvur - Miðstöðin Vestmannaeyjum - Pottar og prik Akureyri - Rafsjá Sauðárkróki - Áfangar Keflavík - Skipavík Stykkishólmi - Nesbakki Neskaupsstað - Vélaleiga Húsavíkur - Verslanir Rönning - Litabúðin Ólafsvík - Tengi - Byggt og búið - SR byggingavörur Siglufirði - Núpur Ísafirði. Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.