24 stundir - 06.02.2008, Síða 19
24stundir MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 19
Útflutningsráð Íslands í sam-
ráði við sendiráð Íslands í Japan
hefur hug á að styðja íslenska
hönnuði og standa fyrir þátttöku
í hönnunarsýningu í Tókýó í júní
2008. Berglind Steindórsdóttir
hjá útflutningsráði segir að ekki
hafi enn verið valdir hönnuðir til
að taka þátt í sýningunni en þeir
verða 4-8 talsins. „Við eigum eft-
ir að skoða plássin sem við fáum
úthlutað og getum þá tekið
ákvarðanir eftir því,“ segir Berg-
lind. „Sýningin heitir Interior
Lifestyle og verður haldin dagana
11.-13. júní í sumar. Hún er
haldin í stóru og glæsilegu sýn-
ingarsvæði sem kallast Tokyo Big
Sight, sýningin er í raun rótgróin
og því gott að komast að á henni
en þetta er í 18. sinn sem hún
verður haldin.
Þetta verður í fyrsta sinn sem
Íslendingar taka þátt í þessari
sýningu en tvö undanfarin ár
hafa íslensk fyrirtæki verið þátt-
takendur í annarri svipaðri sýn-
ingu og fengið mjög góðar við-
tökur.“ Berglind segir vonir
standa til að móttökur verði enn
betri á Interior Lifestyle.
Nytjahönnun og gjafavara
Árið 2007 sýndu um 600 sýn-
endur frá 29 löndum og voru
gestir 26.000 frá 36 löndum. Á
sýningunni er nytjahönnun, gja-
favara, eldhús- og baðherberg-
isvörur og önnur vara almennt
til nota á heimili og skrifstofu,
svo eitthvað sé nefnt. Sýningar
sem þessar eru mikilvægar fyrir
hönnuði. „Það þarf að þreifa fyr-
ir sér á markaðnum og sjá hvað
aðrir eru að gera. Mynda sam-
bönd við aðra hönnuði, fram-
leiðendur og söluaðila.“
Interior lifestyle, 11.-13. júní 2008 í Tokyo
Fjórir Íslendingar fara utan
Interior lifestyle Nokkrir af þeim hlutum sem voru til sýnis á
sýningunni á síðasta ári.
Meira er stundum minna! Þessi
mynd er tekin úr bandarískri borð-
stofu árið 1957. Burknar, og jurtir
meðfram veggjum, mynstraðir
veggir, allskyns litir og skilrúm
marka af rýmið. Þeir sem búa í
litlum íbúðum geta íhugað að gera
borðaðstöðuna og jafnvel eldhúsið
frábrugðna stofunni með þessum
hætti enda oft erfitt að gera lítil
rými aðlaðandi án þess að þau
virki ofhlaðin.
Burknar og
mynstur
Hitapokar eru voða kósí, sér-
staklega nú á dimmustu og köld-
ustu vetrarmánuðum. Þeir eru til-
valdir til að smeygja undir sængina
til að ylja sér eftir langan dag í
vinnunni. Þeir geta líka verið snið-
ugir þegar börnin eru með flensu
og vantar eitthvað notalegt. Kaupa
má hitapoka í alls konar útgáfum
og jafnvel hægt að sauma eða
prjóna utan um þá fóðrið. Hér
sjást tveir sætir og rómantískir.
Sætir og kósí
hitapokar
Veggfóður kemst í og fer úr tísku
eins og klæðnaður og hártíska. Það
má þó nota víðar en á veggina ef
þú ert ekki nógu djarfur/djörf til
að taka slíka áhættu. Þú getur t.d.
notað veggfóður til að fóðra með
innréttingar á baði eða í eldhúsinu.
Eða notað það sem gardínur með
því að líma það á tréramma.
Leyfðu hugmyndafluginu að njóta
sín og notaðu veggfóðrið þar sem
það síst tíðkast.
Litríkt og fallegt
veggfóður
Með hlýnandi veðurfari hækkar
yfirborð sjávar og ljóst má vera að í
löndum eins og Hollandi, sem er
mjög láglent, er hætt við að mörg
heimili hverfi undir vatn ef jörðin
heldur áfram að hlýna á þeim
hraða sem hún hefur gert undan-
farin ár. En það verður seint sagt
um hollenska arkitekta að þeir deyi
ráðalausir því að nú hefur þeim
tekist að hanna hús sem hafa þann
eiginleika að þau geta flotið á vatni
ef flóð verður í nærliggjandi á eða
sjó. Við ána Maas stendur bær sem
heitir Maasbommel og þar hafa
þegar risið nokkur hús af því tagi. Í
þeim liggur húsgrunnurinn á ár-
botninum og upp frá honum kem-
ur kjallari. Ef flóð verður í ánni
flæðir vatn hennar þó ekki inn í
húsið heldur lyftist það og flýtur.
Sérstök rammger rör halda húsinu
á sínum stað svo það fljóti ekki
niður ána, og í þessum rörum eru
vírarnir sem tengja rafmagn inn í
heimilið þannig að starfsemi þess
fer ekki úr skorðum þótt áin flæði
yfir bakkana.
Hollenskir arkitektar útsjónarsamir
Fljótandi heimili
Allt á sinn stað!
ANTONIUS hirslur
Það skiptir ekki máli hversu mikið
pláss þú hefur. Með ANTONIUS
hirslum getur þú nýtt hvern krók og
kima - bæði á breiddina og dýptina
og hátt sem lágt. Einingin
samanstendur af grindum sem má
festa ofan á hverja aðra, vírkörfum,
hillum, veggstoðum og borðplötum.
Í stuttu máli: Allt sem þig vantar til
að koma skipulagi á fataskápinn,
þvottahúsið eða forstofuna.
Sérsmíðaðu þína eigin heildarlausn
sem hentar þér.
▲
Þessi samsetning af ANTONIUS hirslum
22.810,-
Opið 10-20 virka daga │ Laugardaga kl. 10-18
Sunnudaga kl. 12-18 │ www.IKEA.is