24 stundir - 06.02.2008, Síða 21

24 stundir - 06.02.2008, Síða 21
24stundir MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 21 Það er lítið mál að gera heimilið að fallegum griðastað jafnvel þó að fjárhagurinn sé bágur. Það þarf ekki dýra hönnun eða mörg hús- gögn, heldur er oftast nóg að nota ímyndunaraflið. Hér koma nokkur góð ráð sem allir geta nýtt sér: Hafið hreint í kringum ykkur Hreint, snyrtilegt og vel skipu- lagt heimili er huggulegt heimili. Ekki safna að ykkur drasli og gætið þess að hver hlutur eigi sinn stað. Verslið í lágvöruverðsverslunum sem bjóða fallegar vörur á góðu verði. Þar er hægt að fá glös, diska, bolla og önnur búsáhöld sem lífga upp á heimilið. Hafið baðherbergið alltaf hreint Kaupið falleg handklæði og sáp- ur og hafið vel raðað í skápana. Búið um rúmið á hverjum morgni. Eyðið í smekklegt rúmteppi og hafið fallega lýsingu. Gangið frá fötum jafnóðum þannig að fata- hrúgur myndist ekki hér og þar. Ekki láta óhreint leirtau gera eldhúsið að sóðalegum stað. Vaskið upp jafnóðum. Hafið fal- legar skálar undir ávexti og græn- meti. Ekki hafa aragrúa af eldhús- tækjum á víð og dreif, frekar má geyma þau inni í skápum. Ekki hafa of mikið af skóm og útifatnaði í borðstofunni. Gangið frá fatnaði sem er lítið notaður á ákveðnum tímum og komið öðru skipulega fyrir. Nú má fá geymslu- kassa og box á góðu verði í ódýr- um húsgagnaverslunum þar sem vel má koma fyrir húfum, ull- arsokkum og vettlingum. Kerti, kertastjakar, pottablóm og annað punt gerir heilmikið fyrir heimilið. Eins getur góð lýs- ing gert gæfumuninn sem og myndir í flottum römmum. Per- sónulegar myndir gefa alltaf hlýjan tón. Nokkur góð ráð fyrir heimilið Heimilið gert huggulegt Snyrtilegt Búið um rúmið á hverjum morgni. Það virðist vera sama hversu stórt eldhúsið er, alltaf er skortur á skápaplássi. Með þessari nýju hönnun frá Aleksey Belyalov gæti þetta sígilda vandamál horfið. Skálarnar sem nefnast 2Side eru í raun tvær skálar í einni. Dýpri hliðina er hægt að nota fyrir súpur, kássur og salat en flatari hliðin er fullkomin fyrir kökur, kjöt, osta og annað þess háttar. Skálunum má stafla hverri ofan á aðra og spara þannig enn meira pláss. Skálar sem spara pláss Það er ekki alltaf nauðsynlegt að fela fötin á bak við luktar dyr held- ur má nota þau til að færa lit inn í herbergið, eins og sjá má hér að of- an. Með því að hafa glerhurð á fataskáp verða fötin sjálf ekki síður til að skreyta herbergið. Þá er jafn- vel gott að raða fötunum eftir lit eða hafa einhverju reglu í skápnum svo allt líti snyrtilega út. Eins geta fallegir skór allt eins verið prýði á gólfi og vasar eða blómapottar. Leyfið fötunum að njóta sín Áhugafólk um hönnun ætti að geta fundið sitthvað við sitt hæfi á Vetr- arhátíð í Reykjavík. Fimmtudaginn 7. febrúar klukkan 21 opna Him- neskir herskarar hönnunarsýningu í Handverki og hönnun við Að- alstræti 10. Þá verða hönnuðir dagsins útnefndir á sama stað dag- lega, fyrst Guðný Hafsteinsdóttir, þá NOSTRUM og síðast Fjóla María Ágústsdóttir. Hönnun á Vetrarhátíð Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is Gler-rennibrautir Hawa Junior 80 eru glæsilegar rennibrautir fyrir 8-10-12 mm hert gler eða timburhurðir. Eigum einnig rennibrautir frá fyrir skápa og tréhurðir. Útvegum hert gler eftir máli..

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.