24 stundir - 06.02.2008, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@24stundir.is
Í arkitektúr sameinast fagurfræðin
hönnun bygginga og annarra
mannvirkja. Nútímabyggingarlist
hefur mismunandi stílbrigði og er
djörfum hugmyndum oftar en ekki
komið í framkvæmd líkt og mynd-
irnar á síðunni gefa til kynna.
Víða um heim má sjá fallegar og
skemmtilegar byggingar. Spenn-
andi arkitektúr gefur umhverfinu
aukið vægi og því frumlegri sem
byggingarnar eru því eftirtekt-
arverðari.
Þessi hús hafa risið víðs vegar
um heiminn en við hönnun þeirra
hefur sköpunargáfunni verið gef-
inn laus taumurinn og arkitekt-
arnir hafa verið óhræddir við að
feta ótroðnar slóðir.
Nordic-Photo/Getty
Fallegar byggingar gefa umhverfinu aukið vægi
Frumleg byggingarlist
víða um veröld
Tónleikahöll Walt Disney-
tónleikahöllin var teiknuð af
arkitektinum Frank Gehry.
Casbah Fjölbýlishús sem líkist sandkastala í Angers, Frakklandi. Húsið er teiknað af
Kalougine.
Kirkja Framhlið Pílagríma krikjunnar í Neviges, Þýskalandi eftir Bohm.
Blokk Var byggð samkvæmt forskrift
listmálarans Hundertwasser á árunum
1983-1985.Innsetning Listamaðurinn Richard Wilson hefur snúið hluta byggingar í Liverpool á
hvolf , en borgin er menningarborg Evrópu árið 2008.
iC N
Hin nýja ásýnd á loftræstiviftum
Smiðjuvegi 74 – 200 Kópavogur – Sími : 515 8700
• Hljóðlát, stílhrein, nett og fyrirferðalítil á vegg eða í loft
• Einstök blómlaga lokunarbúnaður, verndar innri búnað
og loftræsir án óþægilegs hávaða.
• Þrjár gerðir sem skila:
21 l./sek. eða 76 m3 klst.,
32 l./sek. eða 118 m3 klst.,
72 l./sek. eða 260 m3 klst.
• Þolir raka og auðvelt að þrífa.
• Þriggja ára ábyrgð.
HANNAÐ TIL AÐ SKILA AFKÖSTUM
BLIKKÁS –
Fr
um
Tunguháls 15
sími: 564 6070
www.kvarnir.is
Tröppur og stigar
Iðnaðartröppur