24 stundir - 06.02.2008, Síða 23
24stundir MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 23
Kettir og hundar eru yndisleg
gæludýr eins og eigendur þeirra
vita manna best. En þótt þeir séu
hvers manns hugljúfi fylgir sá
böggull skammrifi að flestar teg-
undir þeirra fara mikið úr hárum,
ekki síst þegar sólin hækkar á lofti
og sumarið nálgast. Snyrtipinnar
sem eru með teppi á gólfum og
gróf áklæði á húsgögnum hafa því
í nógu að snúast við að halda hí-
býlum sínum hreinum á þessum
tíma árs ef þeir eiga hunda eða
ketti. En þrátt fyrir að mörgum
vaxi vinnan, sem fylgir því að
hreinsa burtu katta- og hundahár,
í augum er það alls ekki óvinnandi
verk. Margir gæludýraeigendur
kjósa að hafa frekar parket á gólf-
um og leðuráklæði á húsgögnum,
enda alla jafna létt verk að ryksuga
gæludýrahár af þeim. En þeir sem
frekar kjósa að hafa teppi og gróf
húsgagnaáklæði gætu þurft að
miða við að ryksuga oftar á vorin
og á sumrin þegar dýrin fara mest
úr hárum. Stundum getur þó ver-
ið erfitt að ná hárunum af með
hjálp ryksugunnar, ekki síst af
stólum og húsgögnum þar sem
dýrin halda sig löngum stundum.
Þar sem ryksugan dugar ekki get-
ur þó verið auðvelt að dusta hárin
af með því einu að setja á sig
gúmmíhanska og bleyta hann að-
eins með vatni og strjúka svo
hendinni yfir, en með því móti
nást hárin næsta örugglega af. En
hvernig sem gólfefni og áklæðin
eru á heimilinu og hversu oft sem
er ryksugað er aðalatriðið að vera
duglegur að greiða dýrunum með
þar til gerðum gæludýraburstum.
Þannig er hægt að ná miklu af
þeim hárum sem þegar hafa losn-
að áður en þau enda á húsgögn-
unum, og svo finnst þeim flestum
þægilegt að láta eigendur sína
greiða sér. Svo er rétt mataræði
líka mikilvæg fyrir heilsu þeirra og
gjarnan góð vörn gegn óeðlilegu
hárlosi.
Gæludýr sem fara mikið úr hárum
Vel hægt að ráða
við gæludýrahár
Í umferðaröngþveiti borgarinnar
kemur sér vel að komast ferða
sinna á hjóli. Þetta skemmtilega
hannaða hjól frá Yamaha hefur
slegið í gegn hjá borgurum úti í
heimi en hjólið þykir afar hent-
ugur fararskjóti þar sem það má
pakka því saman og hafa það með
sér hvert sem er. Þessi hjól er einn-
ig hægt að fá rafknúin og svo þykja
þau hið mesta stofustáss þegar þau
eru ekki í notkun.
Þægilegur
fararskjóti
Fallegar veggklukkur geta lífgað upp
á rýmið líkt og flottar ljósmyndir og
málverk. Stórar klukkur í anda
sjötta og sjöunda áratugarins hafa
verið vinsælar undanfarið og litríkar
veggklukkur líkt og þessi eftirlíking
skjámyndar sjónvarpsins eru orðnar
áberandi. Klukkan er úr gleri og
málmi og fer afar vel á hvítum vegg
þar sem hún fær að njóta sín. Grip-
inn má panta á vefsíðunni
www.corvusweb.co.uk.
Lífgar upp
á rýmið
Þessi skemmtilega græja er til-
valin fyrir þá sem hafa mikinn
metnað í snjóboltakasti og vilja
búa til almennilega bolta. Sno-
baller er búin til úr sterku plast-
efni sem mótar fullkomna bolta
úr snjónum og er tilvalin gjöf,
svona yfir vetrarmánuðina.
Hendurnar haldast heitar og
þurrar og framleiðsla snjóbolta
verður mun hraðari og skilvirk-
ari en ella.
Fleiri og betri
snjóboltar
Vinalegur fjölskyldumeðlimur
Þótt gæludýr fari úr hárum er ekki
sjálfgefið að þeim fylgi sóðaskapur.
PARKET...FLÍSAR...PARKET...FLÍSAR.
...FLÍSAR...PARKET...FLÍSAR...PARKE
PARKET...FLÍSAR...PARKET...FLÍSAR.
...FLÍSAR...PARKET...FLÍSAR...PARKE
PARKET FLÍSAR PARKET FLÍSAR... ... ... .
...FLÍSAR...PARKET...FLÍSAR...PARKE
PARKET...FLÍSAR...PARKET...FLÍSAR.
...FLÍSAR...PARKET...FLÍSAR...PARKE
PARKET...FLÍSAR...PARKET...FLÍSAR.
Ú LÞúsundir fermetra
af flísum með
20-70% afslætti
Plastparket
frá 890 kr/m 2
Eikarparket
14 mm 3 stafa
verð kr 2.290 kr/m 2
Járnsmiðja Óðins
Persónuleg þjónusta og fagleg ráðgjöfjsó