24 stundir - 06.02.2008, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir
Minkar í Evrópu eru allir af-
komendur minka sem hafa slopp-
ið úr minkabúum að und-
anskildum þeim sem var sleppt í
Rússlandi af ásettu ráði á árunum
1930-1950 til að búa til veiðistofn.
Minkar sem sluppu úr búrum eru
útbreiddir í flestum löndum Evr-
ópu og útbreiðslusvæðið virðist
stöðugt stækka, frá Rússslandi í
austri og suður og á belti sem nær
þvert yfir stóran hluta Asíu og
syðst í Suður-Ameríku.
Eyðing varpfugla
Minkurinn var fluttur til Íslands
1931 og fyrsta íslenska minkabúið
var í Grímsnesi. Minkurinn er
meindýr í náttúrunni og vargur í
fuglabjörgum og varplandi fugla.
Talið er víst að minkurinn eigi
stærstan þátt í eyðingu varpfugla
t.d. við Mývatn og á fleiri svæðum.
Minkurinn er ekki friðaður og
helstu veiðiaðferðir eru að liggja yf-
ir óðulum hans og skjóta hann
með haglabyssu en gildruveiðar
hafa færst mjög í vöxt á síðustu ár-
um og gefið góða raun. Fyrsta
minkaóðalið fannst við Elliðaárnar
árið 1937. Það eru tuttugu og fimm
minkabú á landinu í dag.
Rottan að hverfa
Á undanförnum misserum hafa
meindýraeyðar tekið eftir því að
rottan er að hverfa úr höfnum og
úr fjörunni við suðurströndina og
á Reykjanesi en greinileg ummerki
eru eftir mink á þessum slóðum
og hefur hann víða gert sér óðul
við sjávarsíðuna. Það eru þó að
koma upp tilfelli þar sem rottan
berst inn á svæðið með vörum og
jafnvel skipum. Litlar sem engar
rannsóknir hafa verið gerðar á
þessum breytingum í vistkerfinu.
Minkur hefur t.d. ekki náð ból-
festu í Vestmannaeyjum fyrr en nú
á síðustu mánuðum að vart hefur
orðið við mink, fyrst uppi á
Heimakletti og síðan inni í Herj-
ólfsdal. Að sögn meindýraeyðis í
Vestmannaeyjum er aðeins um
eitt dýr að ræða.
Mikilvægar upplýsingar:
Stærð: Fullvaxið karldýr er um 48
cm að viðbættu skotti sem getur
orðið allt að 20 cm langt. Full-
vaxin læða er um 44 cm að við-
bættu skotti.
Þyngd, fullvaxið karldýr: Allt að
1,2 kg.
Þyngd, fullvaxin læða: Allt að 600
- 800 g.
Hljóð: Hvæs og ýlfur.
Fjöldi í goti: 3 - 12 afkvæmi.
Ætt: Marðardýraætt.
Samfélag: Minkurinn er einfari.
Fengitími: Febrúar – apríl.
Veiðitímabil: Allt árið.
Óðal - bæli: Við sjávarsíðuna, við
ár og vötn.
Lífstími: 2-3 ár.
Kynþroska: 10-12 mánaða gamall.
Fæða: Allt sem hreyfist og hann
ræður við.
Litur: Brúnn með hvíta höku og
óreglulegan hvítan flöt á kviði.
Ræktuð afbrigði eru af ýmsum lit,
s.s. hvít, brún, grá og svört.
Útbreiðsla: Minkurinn er með
búsetu um allt land.
Veiðar á minki
Best og árangursríkast er að
veiða þennan vágest í gildrur á
fengitíma á haustin og veturna.
Eins þegar læður eru hvolpafullar
og minkurinn þjappast saman á
afmörkuð svæði í leit að æti. Í
Noregi fækkaði mink aðallega
vegna þess að fiskur hvarf úr vötn-
um vegna áhrifa frá súru regni.
Kanadamenn veiða oft mink í
gildru en honum hefur ekki fækk-
að að ráði þar.
Mjög árangursríkt er að nota
hunda við minkaveiðar en ekki er
hægt að nota þá alls staðar vegna
aðstæðna í landslagi. Það þarf að
þjálfa hunda til minkaveiða og fáir
nota hunda til veiðanna í dag.
Agn sem minkabanar nota í
gildrur er m.a. rjúpa, laxahausar,
nýr fiskur, fiskúrgangur, loðna,
bleikja, smásíld, innmatur úr fugl-
um og jafnvel dauður minkur.
Samkvæmt reynslu veiðimanna
hefur einna mest veiðst á bleikju.
Blástursaðferð. Þessi aðferð er
ættuð frá Finnlandi þar sem henni
er beitt ásamt gildruveiðum í
sænsk-finnska skerjagarðinum til
að halda ákveðnum eyjum lausum
við mink. Gæti hentað vel hér á
landi við ákveðnar aðstæður og
reyndar hefur aðferðin verið próf-
uð hér með góðum árangri. Að-
ferðin felst í því að hundur er lát-
inn leita að mink og þegar
minkurinn er fundinn notar
veiðimaðurinn laufblásara til að
blása reyk inn í óðalið eða þar sem
minkurinn er. Minkurinn kemur
þá út og er skotinn. Kosturinn við
þessa aðferð er að sáralítil spjöll
verða á náttúrunni og veiðin
gengur fljótt fyrir sig.
Starfsskírteini
Minkurinn hefur næmt lykt-
arskyn og hafa rannsóknir staðfest
að karldýrið getur greint milli
óþekktra einstaklinga sömu teg-
undar út frá saur þeirra og æxl-
unarstig kvendýra út frá þvagi
þeirra. Hins vegar er ekki vitað
hvort læðuhland virkar sem agn
fyrir minka allan ársins hring eða
hvort það jafnvel fælir mink frá
agnstöðum og gildrum.
Þegar fólk þarf að fá til sín
meindýraeyði eða garðúðara þá
skal alltaf óska eftir að fá að sjá
starfsskírteini útgefið af Umhverf-
isstofnun og eiturefnaleyfi gefið út
af lögreglustjóra/sýslumanni og
það mikilvægasta er að viðkom-
andi hafi starfsleyfi frá viðkom-
andi sveitarfélagi. Ein og sér hafa
starfsréttindi meindýraeyða og
garðúðara ekkert gildi. Athugaðu
hvort öll skírteini séu í gildi. Fé-
lagar í Félagi meindýraeyða eru
með félagsskírteini á sér. Fáðu
alltaf nótu vegna viðskiptanna.
Réttindi meindýraeyða og garð-
úðara frá erlendum ríkjum og fé-
lagasamtökum gilda ekki á Ís-
landi.
Árvakur/Arnaldur
Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
Meindýr í náttúrunni
Minkurinn (Mustela vi-
son) er upprunninn í
Norður-Ameríku. Fyrstu
dýrin voru flutt til Evrópu
á 2. tug 19. aldar en
fyrsta minkabúið í Evr-
ópu var stofnað í Noregi
1927. Næstu ár og ára-
tugi voru minkar fluttir til
annarra landa í norð-
anverðri Evrópu.
Veiðar Best og árangursrík-
ast er að veiða þennan vá-
gest í gildrur á fengitíma á
haustin og veturna.
Guðmundur Óli
Scheving
skrifar um minka
MEINDÝR OG VARNIR
PL 01 Svart PL 45 Silfur-
metallic
PL 20 Dökk Grá PL 22 Dökk Rauð PL 56 Dökk brún PL 42 Rauðbrún PL 80 Hvítt PL 55 Kopar -
metallic
Aluzink Kopar
BLIKKÁS –
Smiðjuvegi 74 – 200 Kópavogi – Sími 515 8700
www.funi.is – www.blikkas.is
Fr
u
m
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Litir í miklu úrvali
Það er engin ástæða til að horfa á heiminn
í svarthvítu. SIBA–ÞAKRENNUKERFI í fjölda lita
upplysingar
Kolbrun S.510 3722
Kolla@24stundir.is Kata@24stundir.is
Katrin s.510 3727
Serblad 24 stunda
tiska