24 stundir - 06.02.2008, Page 25
24stundir MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 25
Það kostar sitt að gera heimilið
fallegt og er ekki á færi allra að
skipta öllu því gamla út fyrir hið
nýja, enda eru heimili sem ein-
göngu eru búin nýjum munum
ekkert sérstaklega heimilisleg og
því oftast mun fallegra að blanda
saman gömlum, persónulegum
munum og nýjum. Ef eitt rými er
tekið fyrir í einu má breyta og bæta
heimilið fyrir lítinn pening og svo
er alltaf gaman að gefa hugmynda-
fluginu lausan tauminn.
Eldhúsið fær andlitslyftingu
Gamla muni má oftar en ekki
gera upp á skemmtilegan hátt.
Upprunalegar eldhúsinnréttingar
er til dæmis hægt að láta sprautu-
lakka og gömul eldhúsborð má
pússa upp. Til þess að gefa eldhús-
inu nýlegra yfirbragð má svo kaupa
nýja eldhússtóla ásamt skemmti-
legum smáhlutum eins og fallegum
krukkum og skálum, kertum og
boxum.
Flott heimilistæki fara einnig vel
í gömlum eldhúsum ef þau fá að
njóta sín. Eins er hægt að skipta út
hluta af eldhúsinnréttingu eða setja
nýja borðplötu en þá fær eldhúsið
nýtt yfirbragð fyrir lítinn pening.
Stílhreint og notalegt
Svefnherbergið á að vera fallegur
griðastaður innan heimilisins.
Svefnherbergið á að vera hreint og
notalegt og laust við óþarfa drasl
sem kemur í veg fyrir almennilega
afslöppun og góðan svefn. Leyfið
rúminu að njóta sín, eyðið í fallegt
rúmteppi og flotta púða. Náttborð
þurfa ekki að vera dýr og er um að
gera að vera með góða lýsingu við
rúmið svo hægt sé að njóta þess að
slappa af með góða bók rétt fyrir
svefninn. Hafið röð og reglu í fata-
skápnum svo að fatahrúgur hlaðist
ekki upp í herberginu.
Það þarf ekki að eyða miklum peningum í endurbætur
Að breyta og bæta heimilið
Eldhús Það þarf ekki að
kosta mikinn pening að gefa
eldhúsinu andlitslyftingu.
Árvakur/Golli
Nú er hægt að fá fjöldann allan af
fallega hönnuðum baðkörum í
hinum og þessum litum en flott
hönnun getur gert baðkarið að
miðju baðherbergisins.
Hvers konar baðkar skal velja?
Baðherbergi bjóða ekki öll upp
á það að baðkari sé komið þar fyrir
enda getur það tekið pláss og eru
margir sem kjósa sturtuna frekar
ef velja þarf á milli. Í þröngum
plássum má hins vegar velja
smærri baðkör þar sem börnin
geta buslað og fullorðnir geta tyllt
sér. Baðkarið þjónar þá hlutverki
bæði sem sturtubotn og kar. Sé
hins vegar gert ráð fyrir baðkari á
baðherberginu þá er um að gera að
vanda valið og eins ef verið er að
skipta gamla karinu út fyrir nýtt.
Við valið þarf að taka tillit til per-
sónulegra þarfa heimilisfólksins
enda hægt að fá baðkör í ýmsum
stærðum og gerðum, bæði djúp og
grunn og eru mörg hver búin hin-
um og þessum þægindum.
Miðja baðherbergisins
Fagurlitað Grænblátt baðkar í klassískri
hönnun.
Sterkt Baðkar með járnklæðningu gefur
nýtískulegan blæ.
Skemmtilegt Rauði liturinn lífgar upp á
baðherbergið.
Klassísk Fallega hannað frístandandi
baðkar.
Vatnslosandi birkisafi
Birkisafinn frá Weleda hefur
verið vinsæll undanfarin misseri
enda er hann einkar góður
fyrir heilsuna. Birkisafinn hefur
sérstaklega verið vinsæll hjá
þeim sem vilja léttast enda
örvar hann vatnslosun og styður
við náttúrulega úthreinsun
líkamans, en eins og margir vita
er úthreinsun líkamans mikilvæg
fyrir líkamlega vellíðan og vert að
hafa í huga núna um hátíðarnar.
Birkisafinn losar bjúg.
Birkisafinn er unnin úr
þurrkuðum birkiblöðum.
Hægt er að fá birkisafann með
og án hunangs.
Þrátt fyrir að safinn sé kenndur
við birki bragðast hann síður
en svo eins og þessi ágæta
trjátegund. Þetta er bragðgóður
drykkur sem gott er að blanda
með vatni og eiga tilbúinn í
kæliskáp.
Útsölustaðir:
Heilsuhúsin, Fræið Fjarðarkaupum, Maður lifandi , Heilsuhornið Akureyri,
Blómaval, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa og Apótekarinn , Sólarsport Ólafsvík,
Femin.is, Lífsins lind Hagkaupum, Lyfjaval, Barnaverslanir, Góð heilsa gulli betri,
Birkisafi örfar vatnslosun og er því hentug
lausn fyrir þá sem vilja missa nokkur kíló.
Hollur og góður á Þorranum
Græna torgið Nóatúni og sjálfstætt starfandi apótek