24 stundir - 06.02.2008, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir
Það getur verið erfitt að koma
öllu haganlega fyrir í litlu rými en
það sama er einnig hægt að segja
um mjög stór rými. Án þess að
hugsa nákvæmlega út í það hvernig
stíl fólk vill hafa í stóru herbergi
eiga margir það til að fylla her-
bergið af sófum, hægindastólum,
hliðarborðum og bókahillum.
Þetta getur orðið til þess að her-
bergið verði drekkhlaðið og ekki
aðlaðandi lengur. Ef þú vilt skapa
notalega stemningu fyrir alla fjöl-
skylduna í stóru herbergi skaltu
hafa nokkur ráð í huga.
Notagildi á hreinu
Fyrst skaltu ákveða hvernig þú
hugsar þér að nota herbergið og
velja síðan húsgögn og stíl eftir því.
Í fjölskylduherbergi þar sem börn
og jafnvel dýr munu ráða ríkjum
eru ljós teppi og húsgögn með
hvössum hornum t.d. ekki góð
hugmynd. Ef þú ert með stóra
stofu getur þú gert hana notalega
með teppum yfir húsgögnin og
jafnvel þægilega mottu eða stóra
púða sem krökkunum finnst
spennandi að liggja á fyrir framan
sjónvarpið.
Litaval mikilvægt
Ef þú ætlar að mála í lit er mik-
ilvægt að velja réttan lit sem gefur
þá stemningu sem þú sækist eftir.
Eitthvað hefðbundið eins og hvítt
eða kremlitað getur verið huggu-
legt í einu herbergi en lítið
spennandi í öðru. Í stærra her-
bergi er auðveldara að leyfa sér
meira í dökkum litum, eins og
t.d. hlýjan rauðan lit, appels-
ínugulan eða gulan. Bláan og
grænan tengja flestir ef til vill
frekar við baðherbergi eða svefn-
herbergi en þeir geta líka passað
vel í stofuna. Passaðu þig þó að
mála ekki meira en einn stóran
vegg og notaðu frekar veggfóður
sem passar við á móti. Þannig
næst gott jafnvægi á litagleðina.
Stór herbergi geta orðið drekkhlaðin
Kósí með púðum og teppum
Stofan Verður meira kósí með tepp-
um og púðum í bland við húsgögnin.
Þessa dagana er tilvalið að dunda
sér við að sortera og flokka. Það
má til dæmis ráðast í það að flokka
myndirnar sem geymdar eru í tölv-
unni og eins má fara í gegnum
heimilistölvuna og henda út göml-
um og óþörfum skjölum. Einhvern
veginn líður manni betur í sálinni
þegar allt er í röð og reglu. Þá er
líka óþarfi að vera með sam-
viskubit þegar maður gerir eitt-
hvað skemmtilegt.
Farið í gegnum
smáatriðin
Tyggjókúluvél er nú líklegast ekki
talin þarfaþing á flestum heim-
ilum. Sum okkar hefur þó
kannski langað í svoleiðis frá
barnæsku. Eina slíka er hægt að
kaupa innrammaða þannig að
hægt er að hengja hana upp á
vegg heima fyrir eða jafnvel á
skrifstofunni. Síðan er náttúrulega
hægt að fá sér hefðbundna sem
stendur á borði eða gólfi. Tilvalin
grín gjöf t.d. handa samstarfs-
félögum.
Tyggjókúluvél á skrifstofuna
Litríkir og fallegir hurðahnúðar
geta sett skemmtilegan svip á
hurðir. Ef þú vilt t.d. ekki þurfa að
skipta um bað- eða eldhúsinnrétt-
ingu eins og stendur getur þú í
staðinn lífgað upp á hurðir inn-
réttingarinar með einhverju litríku
eins og þessum hér. Hurðahnúð-
ana má fá í ýmsum gerðum á mis-
munandi verði. Þessir fást hjá fyr-
irtækinu bombay duck og má sjá á
www.bombayduck.co.uk.
Litríkir hurða-
hnúðar
Verslunin Rúmgott · Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
www.rumgott.is
GEL OG
ETHANOL
ELDSTÆÐI
BYLTING Í SVEFNLAUSNUM
SPRENGIÚTSALA
EITT BESTA ÚRVAL LANDSINS Á HEILSUDÝNUM
20-50% AFSLÁTTUR
VAXTALAUS LÁN Í 6 MÁNUÐI
Lokadagur útsölunnar er 10. febrúar