24 stundir - 06.02.2008, Blaðsíða 29
24stundir MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 29
Árgerð 2008
Rafgeymir 12 V 115 amp
Stærð opinn (lxb) 511x226 cm
Stærð lokaður (lxb) 391x208 cm
Lengd kassa 8 fet
Eigin þyngd 565 kg
Heildarþyngd 1043 kg
www.ellingsen.is
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
\
9
0
8
0
1
5
0
Þægilegt líf
í Fleetwood Evolution Cobalt
• Saumlaust Fílon®-þak með áföstum
þakbogum
• Sveiflueldhús með djúpum
postulínsvaski, skúffu og
áhaldabakka
• Útvarp með AM, FM, CD-spilara
og hátölurum inni og úti
• BackSaver™ áfastir rúmfætur
• Útdraganlegur rampur í
flutningspalli
• „Utan vega“-bygging og stíll
• A-grind úr 5” stálrörum með varinni
raflögn
• 6” dufthúðaður afturstuðari
• Hjólhlífar úr stáli
• Aðalgrind úr 6” stálrörum
• Fram- og afturplötur úr
tígulstálplötum
• Hlutar hliðarplatna úr tígulplötum
• Dufthúðaðar stálstyrkingar á húsi
• Höggþolnar hjólhlífar
• Innfelld afturljós með stálrömmum
• Stöðuljós að framan og á hliðum
með burstahlífum
• Drullusokkar
• Höggdeyfar
• 10” dekk
• Svart og silfrað innra byrði
• Vatnsþolnar eldhúsborðplötur
með saumlausum köntum
• Vatnsþolið matborð með saum-
lausum köntum sem bera má út
• Rúmgóður farangurspallur
• Veðurþolinn skrikfrír frampallur
með festingum úr ryðfríu stáli
• Sætisgrindur úr dufthúðuðu stáli
• Slipper-blaðfjaðrir
• Fjórir stuðningstjakkar fyrir
stöðugleika
• LP-gastenging fyrir útieldunartæki
• Fóðruð gluggatjöld og 2 sett af
rúmtjöldum
• Rafgeymisfesting af bátagerð með
leiðslufestingum
• Samskeytalaust Structurwood-gólf
og rúm pallur
• Öryggiskeðjur með pósitífri
læsingu
• Álrammar kringum rúm
• Fínofið glugganet
• Útdraganlegt tvöfalt dyraþrep
• Rafhemlar
• Eldhús með skúffu og sveiflast út
• Sunbrella 302 tjalddúkur
• Útiljós
• Varahjól með vínylhlíf
• Miðjufestur kerrutjakkur með hjóli
• EZ Lube-öxull með 5 bolta nöfum
• Gagnsæir vínylgluggar
• Tveir 9 kg gaskútar með vínylhlífum
• Hurð með álramma í einu lagi
• 2 gashellur
• 25 ampera straumbreytir með
hleðslutæki
• 12 V vatnsdæla
• Djúpur postulínsvaskur
• LP-gasskynjari/viðvörun, CO-
skynjari/viðvörun
• Truma®-gashitari
Staðalbúnaður
Aðrar upplýsingar
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is
Opið mánudaga–föstudaga 10–18, laugardaga 10–16
Rúm
183x102 cm
Rúm
183x102 cm
Eldhús
Sæti
Sæti
Ge
ym
sla
Verð
985.00
0 kr.
Útborg
un
197.00
0 kr.
Mánað
argreið
sla
miðað
við 84
mánuð
i
Verðdæ
mi
11.722
kr.
„Þú ert það sem þú gerir á net-
inu“ er yfirskrift nemendasam-
keppni í tilefni af alþjóðlega net-
öryggisdeginum þann 12. febrúar.
Nemendum gafst kostur á að
koma hugmyndum sínum um net-
ið og aðra nýmiðla á framfæri með
því að framleiða margmiðlunar-
efni og bárust á fjórða tug tillagna.
Skilaboð frá jafningjum
Að sögn Guðbergs K. Jónssonar,
verkefnastjóra hjá SAFT, verða
vinningstillögurnar útfærðar nán-
ar og notaðar í jafningjafræðslu.
„Við vitum að það er ákveðinn
hópur sem tekur við skilaboðum
frá fullorðnu fólki en svo eru aðrir
sem eiga miklu betra með að með-
taka skilaboð frá jafningjum,“ segir
Guðberg.
Samkeppnin er tvíþætt, annars
vegar landskeppni og hins vegar
samevrópsk samkeppni þar sem Ís-
lendingar eiga tvær tillögur. Hægt
er að kynna sér allar tillögurnar á
vefslóðinni www.saferinternet.org
og greiða atkvæði til 7. febrúar.
Ólík sýn á net og nýmiðla
Úrslit í landskeppninni verða
síðan tilkynnt á málþingi á alþjóð-
lega netöryggisdaginn. Þar verður
á vissan hátt leitast við að brúa
kynslóðabilið. „Markmiðið er ann-
ars vegar að draga fram sýn nem-
enda og hins vegar foreldra og
kennara á helstu kosti og galla
netsins. Við ætlum að skoða hvað
hóparnir eiga sameiginlegt og hvað
skilur þá að,“ segir Guðberg og
bætir við að einnig verði athugað
hver framtíðarsýn þeirra er í þess-
um efnum.
Nokkurs kynslóðabils hefur gætt
í notkun netsins og annarra ný-
miðla og eru hinir yngri oftar en
ekki feti framar en þeir eldri. „Við
höfum fundið mjög vel fyrir því í
okkar rannsóknum en okkur sýn-
ist þetta bil fara snarminnkandi,“
segir Guðberg.
Málþingið fer fram í Kenn-
araháskóla Íslands 12. febrúar kl.
16-18.
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn
Reynt að brúa
kynslóðabilið
Örugg netnotkun Yngri og eldri
netnotendur leiða saman hesta sína
á alþjóðlega netöryggisdeginum.
Uppáklædd börn fara úr einni verslun í aðra í dag, öskudag, og þiggja
góðgæti að launum fyrir fagran söng.
Foreldrar ættu að gæta þess áður en þeir hleypa börnum sínum út að
þau séu vel í stakk búin fyrir gönguna. Ef kalt er í veðri líkt og verið
hefur undanfarna daga er upplagt að klæða ungviðið í hlýjar flíkur
undir grímubúningnum. Þar sem hálka er víða á götum getur verið
hyggilegt að klæðast góðum kuldaskóm með hrjúfum botni.
Síðast en ekki síst þurfa ökumenn að sýna sérstaka varkárni í tilefni
dagsins, ekki síst þar sem má eiga von á smávöxnum vegfarendum.
Þegar leikar taka að æsast eiga börnin til að gleyma umferðarreglum
og æða yfir götur án þess að líta til hægri eða vinstri.
Örugg skemmtun á öskudegi
Neytendastofa hefur birt drög að
nýjum reglum um útsölur eða
aðra sölur þar sem selt er á lækk-
uðu verði á heimasíðu. Þar er
meðal annars kveðið á um að selj-
andi skuli geta sannað að vara
eða þjónusta hafi verið seld á því
verði sem tilgreint er sem fyrra
verð. Þegar auglýst er kynningar-
eða opnunartilboð skal afslátt-
urinn vera raunverulegur sem
þýðir að eftir tilgreindan tíma
hækkar verð vörunnar eða þjón-
ustunnar. Jafnframt skal gefa upp
venjulegt verð ásamt kynningar-
eða opnunarverði.
Óheimilt er að auglýsa takmark-
að magn vöru nema tilgreint sé
hversu mikið magn standi neyt-
endum til boða.
Þá er kveðið á um að í verðvernd
felist skilyrt loforð seljanda um
að geti kaupandi sýnt fram á að
sama vara sé fáanleg á lægra verði
hjá öðrum seljanda fái hann
greiddan verðmuninn.
Reglurnar má nálgast í heild
sinni á www.neytendastofa.is.
Reglu komið
á útsölurnar