24 stundir - 06.02.2008, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Sú frammistaða braut engan ís hjá Frank
Rijkaard þjálfara en dugði til, enda svip-
að markahlutfall og hjá Svíanum Henrik Lars-
son hvers skarð Eiður átti að fylla.
Franz Beckenbauer telurlíkur á þýskum sigri áEvr-
ópumótinu í
sumar góðar en
setur spurning-
armerki við að
þrjár helstu
stjörnur liðsins
frá HM fyrir
tveimur árum, Bastian
Schweinsteiger, Philipp Lahm
og Lukas Podolski, hafa allir
setið meira og minna í vara-
mannaskýlum félaga sinna síð-
an þá. Undrast hann hvernig á
því standi að þessir þrír finni
aðeins neistann með landslið-
inu.
Theo og dýrið. Theo Wal-cott fær kalda kveðjufrá
Martin Keown
fyrrum leik-
manni Arsenal.
Segir hinn
aldni að ung-
lingurinn verði
að þroskast og
hætta væli sínu yfir fáum tæki-
færum með aðalliði Arsenal.
Vænlegra sé að bíta á jaxl og
hafa þolinmæði enda vinnur
hún víst þrautir allar.
Hinn bráðskemmtilegiþjálfari Roma, Lu-ciano
Spalletti, hefur
gefist upp. Seg-
ir hann lítinn
vafa leika á
hvaða félag
standi uppi
með titilinn á
Ítalíu eftir leiktíðina og aðeins
hörmuleg frammistaða Inter
það sem eftir er komi í veg fyrir
slíkt. Eru þetta merkileg orð
þjálfara þess liðs sem hvað
mesta keppni veitir Inter þegar
fjórir mánuðir lifa af deild-
arkeppninni á Ítalíu.
Ár og dagur er síðan skíðafæri í Bláfjöllum
hefur verið gott lengur en fimm mínútur í einu
enda hefur snjóað meira en undanfarin ár í
fjöll suðvestanlands í vetur. Það útskýrir líklega
þann mikla fjölda smáfólks sem renndi sér þar
um brekkur um helgina og mörg hver með
dyggri aðstoð pabba og mömmu í blíðskap-
arveðri þótt kuldaboli væri ekki langt undan.
Áfram er búist við lítilsháttar snjókomu fram
yfir helgi og sitji vindar á sér ættu brekkur Blá-
fjalla að iða af lífi á laugardag og sunnudag.
Rjóð og sæl Langt er síðan jafn mikill
og góður snjór hefur verið í Bláfjöllum
og þessi unga mær beið ekki boðanna
að setja skíðin undir sig.
Hve glöð er
vor æska …
Margt smáfólkið á skíðum í fyrsta sinn í snjóhvítum Bláfjöllum
Engum feitum hesti hefur enn
verið riðið af hálfu íslenska
landsliðsins í knattspyrnu
sem æfir sig á Möltu þessi
dægrin. Þar er Ólafur Jóhann-
esson að keyra saman nýjan
og gamlan mannskap en ár-
angurinn er vægast sagt dap-
urlegur. Tveir leikir, tvö töp og
síðasti leikurinn í dag þegar
Ísland mætir Armeníu. Ljóst
má vera miðað við úrslitin
hingað til að Ólafs bíður gríð-
arlegt verk.
Depurð
Þótt New England Patriots
hafi mistekist að komast
ósigraðir gegnum tímabilið og
skapa þannig söguna féll ann-
að met rækilega þegar Patriots
mættu Giants í Super Bowl-
leiknum vestanhafs um
helgina. Aldrei nokkurn tíma
hafa fleiri Bandaríkjamenn
horft á nokkurn viðburð í
sjónvarpi en mælingar sýna að
107 milljónir, tæpur þriðj-
ungur allra íbúa landsins, sáu
leikinn þegar mest var.
Met
Yfirmenn dönsku lýð-
heilsustöðvarinnar eru agn-
dofa yfir þeirri ákvörðun
íþróttasambandsins að semja
við hamborgarakeðjuna
McDonalds sem einn að-
alstyrktaraðila danskra af-
reksíþróttamanna. Þykja það
slæmar tvíbökur að tengja
hamborgaraát við afrek á
íþróttasviðinu.
Eitthvað bogið
Skipuleggjendur Dakar-
rallsins sem hætta varð við í
janúar hafa skipulagt nýtt rall
á svipuðum forsendum en
ólíkt leiðinlegra. Ekið verður
um Ungverjaland og Rúmeníu
sem seint jafnast á við skrauf-
þurra Sahara-eyðimörkina.
Nýtt Dakar
SKEYTIN INN
Ég get þetta alveg pabbi Fyrstu skref-
in á skíðum geta verið vandasöm.
Brettafólk Helmingur allra í Bláfjöllum
um helgina léku sér á brettum.
Fyrsta brunið Þessi 5 ára stúlka er að
fara á skíði í fyrsta sinn.
Árvakur/Ómar
6. febrúar 2008
Auglýsing
Tillaga að deiliskipulagi í landi Mels, Borgarbyggð.
Í samræmi við 25. grein skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 hefur sveitarstjórn Borgar-
byggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagstillögu:
Um er að ræða skipulag sem tekur til þriggja íbúðarhúsalóða og sex frístundlóða.
Tillagan verður til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar Borgarbraut 14 Borgarnesi frá 6. febrúar
til 19. mars og frestur til að skila inn skriflegum athugasemdum rennur út 19. mars 2008.
Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og bygginganefndar í Ráðhús Borgar-
byggðar Borgarbraut 14 311 Borgarnes.
Hver sá sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast henni samþykkir.
Borgarnesi 6. desember 2008
Verkefnastjóri skipulagsmála
Borgarbyggðar.