24 stundir - 06.02.2008, Síða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir
Feim-Lene Bjerre
Bæjarlind 6
www.feim.is
Opið laugardag 10-18 og sunnudag 13-18
Dúkar á
veisluborðið
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
www.misty.is
Mjög sexí og flottur í D,DD,E,F,FF,G
skálum á kr. 4.990,-
Mjúkt efni og styður vel í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 4.990,-
BARA flottur í D,DD,E,F,FF,G
skálum á kr. 5.770,-
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Nei ég er ekkert að fara að hringja brjálaður í
lögfræðinginn minn sko. Ég efast um að þeir
hafi stolið þessu frá okkur, þó svo vissulega höfum
við fengið hugmyndina fyrst.
Iron Maiden hóf tónleikaferð
sína, „Somewhere Back In Time“,
á Indlandi í síðustu viku. Fyrstu
tónleikarnir í Mumbai stóðu
undir væntingum og sveitin spil-
aði einungis lög af fyrstu skífum
sínum, auk lagsins „Fear Of The
Dark“, eins helsta smellsins. Með
í för er uppvakningurinn Eddie í
fullri stærð, en hann er lukkudýr
sveitarinnar. Indverskir aðdá-
endur yfirgáfu tónleikana í sjö-
unda himni yfir vel heppnuðu
kvöldi. re
Iron Maiden
hefur heimsferð
„Það er alveg ljóst að það ber að
upplýsa fólk um það í auglýsingum
ef ekki er hægt að standa við það
sem lofað er,“ segir Sigurjón Heið-
arsson hjá Neytendastofu og vísar
þá til þeirrar umræðu að fjar-
skiptafyrirtæki selji viðskiptavin-
um sínum ákveðinn nethraða án
þess að geta ábyrgst það að not-
andinn muni fá þann hraða að
fullu.
24 stundir greindu frá því í gær
að fjarskiptafyrirtækin gætu ekki
ábyrgst að viðskiptavinir þeirra
fengju allan þann hraða sem þeir
greiddu fyrir sökum ýmissa ut-
anaðkomandi ástæðna.
Sigurjón vísar til laga um eftirlit
með viðskiptaháttum en þar segir í
sjöttu grein, sem snýr að auglýs-
ingum: „Óheimilt er að veita rang-
ar, ófullnægjandi eða villandi upp-
lýsingar og þarna er greinilega um
ófullnægjandi upplýsingar að ræða
ef að til getur komið að þú kaupir
þjónustu sem þú getur ekki nýtt
þér.“
Hann segir ennfremur að ef fjar-
skiptafyrirtækin vita af því að ekki
munu allir viðskiptavinir geta nýtt
sér þjónustuna þá beri þeim að
greina frá því. „Þeir eiga ekki að
selja hluti nema ganga úr skugga
um að fólk geti nýtt þá.“
Sigurjón segir að Neytendastofu
hafi ekki borist neinar ábendingar
varðandi fullyrðingar fjarskiptafyr-
irtækjanna um hraða nettenginga í
auglýsingum en hann segir að það
komi alveg fyrir að fólk kvarti und-
an auglýsingum fjarskiptafyr-
irtækja sem standast ekki.
Hann bætir við að fyrirtæki sem
senda frá sér villandi auglýsingar
geti átt á hættu að verða sektuð.
„Við höfum heimild til að sekta
fyrirtæki um allt að 10 milljónir
króna en það hefur ekki komið til
svo stórra fjárhæða.“ vij
Vafasamar fullyrðingar fjarskiptafyrirtækja
ADSL-auglýsingar eru ófullnægjandi
Árvakur/Ómar
Hægvirkt net Umsaminn
hraði á nettengingu kemst
ekki alltaf til skila.
Amy Winehouse fékk frí frá með-
ferðinni til að hitta starfsmenn
bandaríska sendiráðsins í Lund-
únum og sækja um landvist-
arleyfi fyrir Grammy-verðlauna-
afhendinguna. Hátíðin er um
næstu helgi í L.A. en þar er söng-
konan tilnefnd til sex Grammy-
verðlauna. Amy var lögð inn á
Capio Nightingale-stofnunina 24.
janúar síðastliðinn, eftir að hún
náðist á myndband við þá vafa-
sömu iðju að reykja krakk.
Hjúkrunarkona frá stofnuninni
fylgdi henni til og frá sendi-
ráðinu. re
.
Amy í fríi frá
meðferðinni
Snoop Dogg hefur lýst yfir stuðn-
ingi við Barack Obama í kapp-
hlaupinu um að verða forseti
Bandaríkjanna. Rapparinn lofaði
frambjóðanda demókrata og bar-
áttu hans fyrir að verða fyrsti þel-
dökki forsetinn. Í sjónvarpsþætt-
inum Larry King Live sagðist
Snoop svo líka styðja Hillary
Clinton og neitaði að gefa upp
hvort þeirra hann myndi sjálfur
kjósa. „Ég tilheyri hvorki repú-
blikanaflokknum né demókröt-
um. Ég er í flokki glæpónanna,“
sagði Snoop. „Báðir fulltrúar eru
þó góðir fyrir Ameríku því við
þörfnumst breytinga,“ sagði
hann ennfremur. re
Snoop styður
Obama
Dagana 6. til 9. febrúar býður
Alliance française, vináttufélag
Frakklands og Íslands, upp á jap-
ansk-franskan nýsirkus frá sýn-
ingahópnum Oki Haiku Dan, sem
kallast „Beinagrindin“. Sýningin er
í senn sirkus, tónlist og dans- og
ljósasýning. Japanski listamað-
urinn Keisuke Kanaí leikur á frum-
legan og skemmtilegan hátt með
samspil ljóss og skugga.
Oki Haiku Dan kom síðast til
landsins árið 2004 og sýndi þá
verkið „Hreyfa ekki hreyfa“ í Borg-
arleikhúsinu. Beinagrindin verður
sýnd á nýja sviði Borgarleikhússins
dagana 6. og 8. febrúar. Nýsirkus-
inn verður svo með opnunaratriði
Vetrarhátíðar fimmtudagskvöldið
7. febrúar og með sirkussmiðju
fyrir börn og unglinga í Gerðu-
bergi laugardaginn 9. febrúar frá
klukkan 13:00-16:00.
Allar upplýsingar má finna á
vefjunum www.borgarleikhus.is,
www.vetrarhatid.is og www.af.is
heida@24stundir.is
Japansk-franskur nýsirkus
Sirkussmiðja Oki Haiku Dan verð-
ur með sirkussmiðju.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Bandaríski grínleikarinn Jack
Black, sem margir kannast við úr
myndunum School of Rock, King
Kong og Nacho Libre, ýtir brátt úr
vör sinni nýjustu mynd, Be Kind
Rewind, sem sýnd verður hér á
landi þann 29. febrúar næstkom-
andi. Söguþráðurinn er furðu líkur
gömlu atriði úr Svínasúpunni.
Jack Black er Vídeó-Vigfús
Söguþráður myndarinnar er í
stuttu máli sá að persóna Jacks
eyðileggur óvart allar spólurnar á
myndbandaleigunni sem hann
vinnur á og neyðast þeir félagar til
að endurleika allar myndirnar
sjálfir. „Ég vissi ekki af þessu fyrr
en 24 stundir bentu mér á þetta. Ég
var reyndar búinn að gleyma þessu
atriði, en þetta er greinilegur stuld-
ur,“ sagði Sverrir Þór Sverrisson,
betur þekktur sem Sveppi, léttur í
bragði. Margir muna eftir persónu
Sveppa í atriðinu, þar sem hann
leikur Vídeó-Vigfús sem lánar að-
eins út myndir sem hann hefur
sjálfur framleitt, til dæmis end-
urgerð Terminator og einhverra
blárra mynda með eiginkonu
sinni, sem hann afgreiðir undir
borðið.
Aðhefst ekkert
„Grínið fer í hringi. Allir grín-
arar fá lánað héðan og þaðan og
stundum fá einfaldlega ólíkir grín-
istar sömu hugmyndina,“ sagði
Sveppi, sem segist ekki ætla að að-
hafast neitt frekar í mál-
inu. „Nei, ég er ekk-
ert að fara að
hringja brjálaður í
lögfræðinginn
minn. Ég efast
um að þeir hafi
stolið þessu frá
okkur, þó svo
við höfum vissulega fengið hug-
myndina fyrst. En það er kannski
munurinn á Kananum og okkur,
þeir gera heila bíómynd úr þessu,
en við aðeins tveggja mínútna
sketch,“ sagði
Sveppi að
lokum.
Be Kind Rewind með Jack Black minnir á atriði með Sveppa
Stelur stjarna úr
Svínasúpunni?
Söguþræði nýjustu
myndar Jack Black, Be
Kind Rewind, svipar
grunsamlega mikið til at-
riðis úr Svínasúpunni,
sem sýnd var á Stöð 2.
Vídeó-Vigfús? Persóna
Jacks heitir reyndar Jerry í
myndinni, en grínið er á
sömu hugmynd byggt.
Sveppi Segist ekkert ætla
að aðhafast í málinu.