24 stundir - 06.02.2008, Page 38

24 stundir - 06.02.2008, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir „Vel til fundið hjá NASA að varpa Across the Universe með Bítl- unum út í geiminn. ...myndi ég hafa lagt til að öllum lögum Geir- mundar, Sú Ellen, Dúkkulísanna og Baraflokksins yrði útvarpað stöðugt frá jörðinni út í geim. Öflugra innrásarvarnarkerfi er ekki hægt að hugsa sér.“ Björgvin Valur eyjan.is/goto/bjorgvin „...það sem er kannski merkileg- ast í þessari frétt er að þegar þeir náðust úti í Garðabæ voru þjóf- arnir á leið í andlitsbað og brúnkusprey. Já, íslenskum þjóf- um er greinilega umhugað um útlit sitt og má búast við því að þeir muni sitja í dómsölum kaffi- brúnir og sætir, eða hvað…?“ Ívar Guðmundsson blogg.visir.is/ivarg „Á föstudaginn varð ég vitni að nokkru sem ég get varla með nokkru móti útskýrt, tilfinningin var undarleg, ég nuddaði augun trekk í trekk, til að sannreyna að ekki væri um ofskynjanir að ræða. Sá ég Birgi Ármannsson þingmann Sjálfstæðisflokksins, í gallabuxum.“ Guðmundur Brynjólfsson blogg.visir.is/gb BLOGGARINN Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@24stundir.is „Ég er að fara að frumsýna 8. febr- úar,“ segir athafnamaðurinn Óskar Eiríksson, en hann er einn af fram- leiðendum Sexy Laundry sem verður sett upp í Hayworth- leikhúsinu í Los Angeles. Holly- wood-leikararnir Frances Fisher og Paul Ben Victor fara með aðal- hlutverk í sýningunni. „Aðalástæðan fyrir því að við frumsýnum í Hollywood er að við erum með William Morris- umboðsskrifstofuna í framleiðsl- unni,“ segir Óskar. William Morris er ein stærsta umboðsskrifstofa Bandaríkjanna með margar af stærstu stjörnum Hollywood á sín- um snærum, eins og Denzel Wash- ington, Scarlett Johansson og John Travolta. Sýningunni í Hollywood verður því ætlað að velta boltanum af stað og opna fyrir möguleikana á því að hún ferðist víðar. Stefnt á Broadway Óskar vinnur með yfirmanni leiklistarsviðs William Morris að uppsetningu Sexy Laundry, en hann ku einnig vera umboðs- maður fjölmargra stjarna í Holly- wood. „Hann er með sambönd við öll leikhúsin í Bandaríkjunum,“ segir Óskar. „Þegar hann sendir póst og biður fólk um að koma að sjá sýningu sem þeir framleiða þá er mætt.“ Sexy Laundry verður sýnt í nokkrar vikur í Los Angeles, en svo verður tekin ákvörðun um hvort hún ferðast víðar eða hvort það verður unnið að því að koma henni á svið á Broadway. „Leik- og söngkonan Bernadette Pet- ers kemur á sýn- inguna í næstu viku, en hún lék í Pink Cadillac með Clint Eastwood,“ segir Óskar. Peters er einnig þekkt fyrir gestahlutverk sín í þáttum á borð við Boston Legal og Ally McBeal. „Þá tekur hún ákvörðun hvort hún fari jafnvel með kvenhlutverkið á Broadway. Það er samt alveg óstaðfest og ólíklegt. Hún er kannski of stór til þess að stökkva inn í lítið leikrit.“ Fleiri nöfn úr glysborg- inni hafa verið nefnd til sögunnar sem mögulegir leikarar í sýningunni, en Óskar leggur áherslu á að ekki sé allt eins og það sýnist í Holly- wood. „Ameríkanar kasta nöfnum hægri vinstri þannig að ég þori ekki einu sinni að segja hvaða nöfn hafa verið nefnd í þessu samhengi.“ Óskar Eiríksson vinnur með stórum aðilum í Bandaríkjunum Framleiðir Sexí þvott í Hollywood Óskar Eiríksson er einn af framleiðendum leikrits- ins Dirty Laundry sem verður frumsýnt í vikunni í Hollywood. Óskar stefn- ir á að setja sýninguna á svið á Broadway. Árvakur/Golli Óskar Eiríksson Setur upp í Hollywood. Bernadette Peters Íhugar að taka að sér hlutverk í Sexy Laundry. HEYRST HEFUR … Líkt og alþjóð veit tók Sigurjón M. Egilsson, fyrr- verandi ritstjóri DV, við ritstjórn Mannlífs fyrir skemmstu og hefur eitt tölublað komið út undir hans stjórn. Reynir Traustason tók við DV úr höndum Sigurjóns og því er svolítið undarlegt að í sölum kvikmyndahúsa borgarinnar skuli rúlla aug- lýsingar frá DV þar sem Sigurjón staðhæfir að hann sé ritstjóri DV. Ætli Reynir viti af þessu? tsk Rás 2 hefur undanfarið verið að lýsa eftir þátttöku í pönklagakeppni sem útvarpsstöðin stendur fyrir í samvinnu við Þjóðleikhúsið. Sigurlögin á að nota í nýjum söngleik Hallgríms Helgasonar, Ástin er diskó – lífið er pönk. Nú hafa sex lög verið valin í úrslit og má fara á síðuna www.ruv.is/heim/vefir/ poppland/ponk/ og hafa áhrif á hvaða pönkarar rokka feitast. re Lítið hefur heyrst frá tónlistarmanninum Herberti Guðmundssyni undanfarin ár þótt athafnamað- urinn Herbert Guðmundsson skjóti reglulega upp kollinum. Nú heyrist að kappinn sé í hljóðveri að taka upp efni á nýja breiðskífu ásamt kunnum upp- tökustjóra. Spennandi verður að sjá hvað kemur út úr því, en Herbert á sem kunnugt er hittara á borð við Can’t Walk Away og Svaraðu kallinu. afb „Mér finnst þetta náttúrulega al- veg frábærar fréttir. Ég var mjög svekktur yfir því að þeir skyldu endursýna Fyrstu skrefin og Silvíu Nótt í staðinn fyrir Jay Leno,“ segir verslunarmaðurinn og Jay Leno- aðdáandinn Árni Árnason. Jay Leno snýr aftur á skjá lands- manna næstkomandi mánudags- kvöld, en Skjár einn hætti sýn- ingum á þáttunum í október á síðasta ári eftir að um 1.500 þættir höfðu verið sýndir óslitið í átta ár. Árni bloggaði um málið á sínum tíma og sagðist eiga erfitt með að sætta sig við ákvörðun Skjás eins. Hann vonaði innilega að sjón- varpsstöðin myndi endurskoða af- stöðu sína, sem hún gerði og geta því Árni og aðrir aðdáendur Leno tekið gleði sína á ný. Spenntur „Ég fagna því innilega að Jay Leno sé að koma aftur á sjónvarpsskjáinn,“ segir Árni. „Ég bíð spenntur eftir honum.“ Brotthvarf Leno af skjánum vakti hörð viðbrögð á síðasta ári. Yfir 1.100 aðdáendur spjallkóngs- ins rituðu nafn sitt á undir- skriftalista á Netinu og blogg- heimar loguðu. Árni segist ekki hafa kvartað á sínum tíma, enda lét hann sér nægja að tjá sig á blogg- síðu sinni. atli@24stundir.is Aðdáendur spjallþáttakóngsins gleðjast Jay Leno snýr aftur á skjá landsmanna Endurfæddur Jay Leno snýr aftur á mánudaginn. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 9 4 2 1 6 3 5 7 8 7 3 6 2 5 8 1 4 9 5 8 1 4 7 9 3 2 6 6 5 9 3 8 7 2 1 4 8 2 3 5 4 1 6 9 7 1 7 4 6 9 2 8 5 3 2 9 8 7 3 5 4 6 1 3 6 5 9 1 4 7 8 2 4 1 7 8 2 6 9 3 5 Hann er að koma! Mundu bara allt sem ég kenndi þér. 24FÓLK folk@24stundir.is a Nei nei, við vorum með svo mörg ofurmenni á svæðinu. Jóhann, var þetta ekki verkefni fyrir Köngulóarmanninn? Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri Suðurnesja, gerði upptæka tarantúlu-kónguló við húsleit í fyrrakvöld. Brá tarantúlan á það ráð að reyna að flýja úr búri sínu en náðist á síðustu stundu. Voru þar að verki vaskir starfs- menn heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. PL 01 Svart PL 45 Silfur- metallic PL 20 Dökk Grá PL 22 Dökk Rauð PL 56 Dökk brún PL 42 Rauðbrún PL 80 Hvítt PL 55 Kopar - metallic Aluzink Kopar BLIKKÁS – Smiðjuvegi 74 – 200 Kópavogi – Sími 515 8700 www.funi.is – www.blikkas.is Fr u m ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar Litir í miklu úrvali Það er engin ástæða til að horfa á heiminn í svarthvítu. SIBA–ÞAKRENNUKERFI í fjölda lita Glaður Árni gleðst yfir endurkomu Jay Leno

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.