24 stundir - 09.02.2008, Side 15
24stundir LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 15
Lítil bleik gjöf fyrir stóru ástina
Fí
to
n
/
S
ÍA
Við kynnum nýjan lit, bleikan iPod nano – tilvalinn fyrir ástina á
Valentínusardaginn eða konudaginn. Þú getur fengið hann með
sérstakri áletrun til elskunnar þinnar án aukakostnaðar.
iPod nano fæst annað hvort 4 eða 8 GB og rúmar allt að 2.000
sönglög eða u.þ.b. 4–8 klst. af myndbandsefni. Ljósmyndin hér að
ofan sýnir spilarann í raunstærð og með honum getur þú ekki
aðeins hlustað á tónlist, heldur einnig horft á myndbönd.
iPod nano bleikur, 8 GB – tilboð með séráletrun 24.990 kr.
iPod nano
Raunstærð:
52 x 70 x 6,5 mm
Aðeins 49 g
iPod nano
Innifalið í tilboði:
Sérmerktur elskunni þinni!
Febrúar Ko
nudagurinn
Febrúar
Valentín
usardag
urinn
Apple IMC
Apple IMC | Humac ehf.
Sími 534 3400
www.apple.is
Laugavegi 182
105 Reykjavík
Kringlunni
103 Reykjavík
Tilboðið gildir til 24. febrúar.
Ljósmyndir Rebekku Guð-
leifsdóttur hafa notið vin-
sælda á Yahoo Flickr-
ljósmyndasíðunni um nokk-
urt skeið en Rebekka
uppgötvaði nýlega að myndir
hennar hafa verið seldar í leyf-
isleysi á iStockphoto-
vefsíðunni.
Sagt er frá því á fréttavefnum
www.news.com að Rebekka
fann 25 myndir sem hún hafði
tekið og sett á eigin Flickr-
síðu, til sölu á iStockphoto á
fölskum forsendum.
iStockphoto-ljósmyndasíðan
sem er í eigu Getty Images
hefur fjarlægt myndirnar.
iStockphoto er myndabanki
sem selur myndir. mbl.is
Vinun er einkarekin þjónustu-
miðstöð fyrir fatlað fólk, aldr-
aða og aðra þá sem þurfa
tímabundna aðstoð við dag-
legar athafnir vegna veikinda
og slysa. Þjónustan er per-
sónumiðuð og tekur mið af
þörfum einstaklinga sem fá
þjónustu hvort sem er inni á
heimili þeirra eða úti í sam-
félaginu. Vinun veitir einnig
ráðgjöf við að samþætta þjón-
ustu og upplýsingar um leiðir
þegar áföll verða í lífi fólks.
Hér á landi er þjónusta af
þessu tagi nýmæli en hefur
verið vel tekið segir í frétta-
tilkynningu.
Fatlaðir og aldraðir
Einkaþjón-
ustumiðstöð
Nemendaópera Söngskólans í
Reykjavík setur nú upp í
Langholtskirkju óperu Moz-
arts Brúðkaup Figarós.
Söngvarar í uppsetningunni
eru 39 af nemendum Söng-
skólans. Sýningin á þessari
þekktu gamanóperu er nokk-
uð stytt og er í leikgerð leik-
stjórans, Sibylle Köll, sem
einnig er dansahöfundur. Þau
samtöl sem ekki eru sungin
fara fram á íslensku nútíma-
máli, en öll söngatriði eru
sungin á frummálinu, ítölsku.
Sýningar verða tvær, á mánu-
dag og miðvikudag. aak
Ópera Söngskólans
Brúðkaup í
Langholti
Vinsælar ljósmyndir
Seldar í
leyfisleysi
Starfsmaður verktakafyrirtækisins Loftorku,
sem ber ábyrgð á náttúruspjöllum í fjöru á
norðanverðu Álftanesi, er samflokksmaður Sig-
urðar Magnússonar, bæjarstjóra Álftaness, og
formaður atvinnumálanefndar sveitarfélagsins.
Mörgum bílförmum af grjóti hefur verið sturtað
í umrædda fjöru en fjaran er á náttúruminjaskrá
og enginn sótti um leyfi til verksins hjá yfirvöld-
um.
Samkvæmt heimildum 24 stunda voru hlöss-
in á annan tug talsins og vöktu töluverða athygli
íbúa á Álftanesi.
Aðspurður í aðalfréttatíma Sjónvarpsins á
laugardagskvöld sagði bæjarstjórinn að sér væri
ekki kunnugt um málið, en umræddar fram-
kvæmdir hófust í byrjun janúar.
„Ég vissi ekki af þessu og gaf fyrirmæli um
að framkvæmdirnar yrðu stöðvaðar þegar ég
frétti af þeim, enda verið að vinna þarna í al-
gjöru leyfisleysi“ segir Sigurður Magnússon,
bæjarstjóri Álftaness.
„Það er alveg ljóst að þarna er verið að vinna í
einkalandi og einhver samtöl hafa átt sér stað á
milli verktaka og landeiganda. Þarna er um að
ræða verktaka sem hefur unnið árum saman
fyrir bæði bæjaryfirvöld og einstaka landeigend-
ur og ég er sannfærður um að hann hefði ekki
gert þetta ef hann hefði talið sig vera að brjóta
lög og reglur,“ segir Sigurður.
„Mér finnst ekki trúverðug yfirlýsing bæjar-
stjóra um að hann hafi ekki vitað af þessari
framkvæmd. Samband bæjarstjórans við fram-
kvæmdastjóra Loftorku er með þeim hætti að
mér finnst ótrúlegt að þessa framkvæmd hafi
aldrei borið á góma þeirra á milli,“ segir Guð-
mundur G. Gunnarsson, fyrrverandi bæjar-
stjóri.
Verktaki sem annaðist jarðvegslosun í leyfisleysi á Álftanesi á sæti í nefnd sveitarfélagsins
Bæjarstjóri vill ekki kannast við málið
Álftanes Bæjarstjóri segist ekki hafa vitað af því að sam-
flokksmaður hans stæði fyrir framkvæmdum í fjörunni.