24 stundir - 09.02.2008, Síða 62
62 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Þetta er bara ótrúlegt. Ég nýt hverrar mínútu
með honum og get ekki hætt að horfa á hann
og læra inn á hann.
Nú er Vetrarhátíð í bæ og í dag
eru ansi sérstakir lúðrasveit-
artónleikar í Hafnarhúsinu. Lúðra-
sveit verkalýðsins heldur sína ár-
legu barnatónleika og krakkar úr
Skólahljómsveit Austurbæjar eru
sérstakir gestir. Óli úr söngleiknum
Abbababb kynnir tónleikana og
syngur lagið „Rauða hauskúpan“
úr söngleiknum.
Athygli vekur að á efnisskránni
eru meðal annars lög með tónlist-
armanninum Mika.
„Við erum ekki að spila þessa
hefðbundnu lúðrasveitarmarsa,“
segir þverflautuleikarinn Ása Björk
Ólafsdóttir sem gekk aftur til liðs
við sveitina fyrir tveimur árum eft-
ir nokkurt hlé. „Stjórnandinn okk-
ar, Snorri Heimisson, valdi tvö lög
með Mika, en við spilum einnig
nokkur leikhúslög og kynnum
hvert hljóðfæri fyrir sig. Þetta er
allt spurning um tónlistarlegt upp-
eldi.“
Lúðrasveit verkalýðsins var
stofnuð árið 1953, og meðlimir eru
um 50. Samkvæmt heimasíðu
hennar var hlutverk hennar upp-
haflega að „efla tónmennt meðal
verkalýðsins, leika á útifundum, í
kröfugöngum og á öðrum sam-
komum alþýðunnar“.
Fjörið hefst klukkan 15.00 í dag,
allir eru velkomnir og aðgangur er
ókeypis. heida@24stundir.is
Lúðrasveitin leikur
stuðlög með Mika
Lúðrasveit verkalýðs-
ins Spilar óhefðbundin
lúðrasveitarlög.
Nýstárleg barnaskemmtun í dag
Söngkonan Christina Aguilera
segist ómögulega geta hætt að
horfa á nýfæddan son sinn, Max
Liron. Kveðst hún vart trúa því
að hún hafi skapað drenginn og
horfir hún dáleidd á hann öllum
stundum.
„Þetta er bara ótrúlegt. Ég nýt
hverrar mínútu með honum og
get ekki hætt að horfa á hann og
læra inn á hann.
Þú heldur að þú
hafir gert svo
marga hluti í líf-
inu, en þegar þú
eignast barn
kemstu að því að
hitt er ekkert í
samanburði,“ sagði söngkonan í
fyrradag. hþ
Horfir dáleidd á frumburðinn
Serblad 24 stunda
Auglysingasimi
Katrin s.510 3727 / kata@24stundir.is
KOLLA s. 510 3722 / kolla@24stundir.is
Heilsa
26. FEBRuar 2008
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
www.misty.is
Flott snið komið aftur í B,C,D skálum en
í nýjum lit en sama lága verðið
kr. 2.350,- buxur fást í stíl á kr. 1.250,-
Mjög fínlegur úr satín í BC skálum á
kr. 2.350,- buxur í stíl á kr. 1.250,-
Alveg nýtt snið í BCD skálum
á kr. 2.350,- buxur í stíl á kr. 1.250,-
Ofsa flott - splúnkunýtt
Hæfileikameyjar Retro Stefsson Stöllurnar Þorbjörg Gunnarsdóttir og
Kolfinna Nikulásdóttir spiluðu í Ráðhúsinu.
Kappklæddir Þeir Magnús Jóns-
son og Guðmundur E.S. Lárusson
brostu út í eitt.
Gítargrip við Tjörnina Svavar
Knútur tók fáein vel valin lög.
Vetrarhátíð Reykjavíkur fer nú fram höfuðborgarbúum til upplyftingar í
ofsaveðri og snjósköflum. Frá 7.-9. febrúar er rækilega skipulögð dagskrá
út um borg og bý þar sem alls kyns menningartengdir viðburðir fara
fram. Á fimmtudagskvöld lagði ljósmyndari 24 stunda leið sína í Ráð-
húsið þar sem gleðibandið Retro Stefsson dró fram hljóðfæri sín og spila-
þokka, fólk á besta aldri dansaði línudans auk þess sem akido-iðkendur
sýndu gestum nokkur vel valin brögð. Síðasti dagur hátíðarinnar er í dag,
laugardag en áhugasamir geta kynnt sér dagskrá á www.vetrarhatid.is.
bjorg@24stundir.is
Fjölmenning í Ráðhúsinu
Dans, dans, línu, línudans Línudansarar voru í fáguðum og vel viðeig-
andi búningum.
Akido sýning Bellibrögð frá Japan voru kynnt gestum Vetrarhátíðar.