24 stundir - 09.02.2008, Síða 64
64 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 24stundir
Grínistinn Larry David, sem er
meðal annars þekktur fyrir þætt-
ina Curb Your Enthusiasm, hefur
tekið að sér að leika í næstu mynd
Woodys Allens samkvæmt heim-
ildum Entertainment Weekly.
Ekkert er vitað um titil eða sögu-
þráð myndarinnar en leikkonan
Evan Rachel Wood, ástkona rokk-
arans Marilyn Manson, mun
einnig leika í myndinni. vij
Snillingar snúa
bökum saman
Kvikmyndasíð-
an
ShockTillYou-
Drop.com hef-
ur greint frá
því að næsta
kvikmynd leik-
stjórans Alex-
andre Aja,
hrollvekjan Piranha, verði sýnd í
þrívídd í kvikmyndahúsum.
Myndin er endurgerð á sam-
nefndri mynd frá árinu 1978.
Söguþráður myndarinnar er á þá
leið að eftir að öflugur jarð-
skjálfti skekur Havasu-vatn í Ari-
zona opnast botn vatnsins og for-
sögulegir, blóðþyrstir og ofvaxnir
píranafiskar streyma út í vatnið
til að gæða sér á sundfólki. vij
Forsögulegur
þrívíddarhrollur
Samkvæmt
áreiðanlegum
heimildum Var-
iety er leikstjór-
inn Martin Scor-
sese um þessar
mundir að und-
irbúa gerð heim-
ildarmyndar um
reggae-goðsögnina Bob Marley.
Scorsese gerir myndina í sam-
starfi við Shangri-La Entertain-
ment og Fortissimo Films en fullt
samþykki fjölskyldu Marleys hef-
ur fengist fyrir gerð mynd-
arinnar. Áætlað er að frumsýna
myndina 6. febrúar 2010 en þann
dag hefði Marley orðið 65 ára, en
hann lést árið 1981. vij
Ævisaga Bobs
Marleys í bígerð
Undanfarna mánuði hafa sögu-
sagnir verið á sveimi sem segja að
hinn heimsfrægi kvikmynda-
morðingi Jason Voorhees muni
birtast í þáttaröðinni Supernat-
ural.
Framleiðandi þáttanna, McG,
hefur nú gefið þessum sögusögn-
um byr undir báða vængi í nýlegu
viðtali við iF Magazine en þar gaf
hann í skyn að mjög fræg persóna
myndi koma fram í þáttaröðinni.
Þar vilja spekingar á netinu
meina að hann sé að tala um Jas-
on.
Jason er einn frægasti morðingi
kvikmyndasögunnar og hefur
hann birst í nálægt tíu myndum,
fyrst í Friday the 13th Part 2 og
nú síðast í myndinni Freddy vs.
Jason árið 2003. vij
Jason birtist í
Supernatural
Þann 28. mars verður frumsýnd í
Bandaríkjunum nýjasta myndin í
ádeilu- eða paródíugeiranum en
hún ber nafnið Superhero Movie.
Eins og nafnið gefur til kynna fá
ofurhetjurnar hér að finna fyrir
gríninu.
David Zucker, framleiðandi
myndarinnar, sagði í viðtali við
USA Today að grínið beindist
fyrst og fremst að Spiderman-
myndunum en þó fengju aðrar
myndir sinn skerf af kökunni. vij
Grín gert að
ofurhetjunum
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
„Þessi ræða hreyfði við mér og
snerti mig á þann veg sem ekkert
hefur gert í langan tíma,“ sagði
tónlistarmaðurinn Will.I.Am, sem
er einnig þekktur sem meðlimur
hljómsveitarinnar Black Eyed Peas,
um tilurð lagsins Yes We Can.
Texti lagsins, sem hefur notið
gríðarlegra vinsælda á netinu, er
fenginn að láni úr ræðu sem for-
setaframbjóðandinn Barack
Obama flutti í New Hampshire.
Einungis tveimur dögum eftir að
Obama flutti ræðuna var lagið
tilbúið og komið á netið þar sem
milljónir manna hafa horft og
hlustað á það á síðum eins og You-
tube.com.
Stjörnuprýtt stuðningslið
Í laginu lætur Will.I.Am sér ekki
nægja að syngja einn heldur fær
hann dágott safn af stjörnum til að
flytja lagið með sér og má til dæm-
is nefna stjörnur á borð við Scar-
lett Johansson, Kareem Abdul-
Jabbar, Nicole Scherzinger og
Adam Rodriguez sem þekktur er
úr CSI-þáttunum.
Lagið hefur hlotið góðan hljóm-
grunn í herbúðum Obama og hef-
ur meðal annars verið sett á op-
inbera heimasíðu frambjóðandans.
Will segir þó að hann hafi enn ekki
fengið þakkir eða símtal frá
Obama eða aðstoðarliði hans.
„Þau hafa mörg mikilvægari verk-
efni en að hringja í mig og segja
takk fyrir. Ef þau hefðu tíma til að
hringja í mig þá myndi ég fara að
örvænta.“
Ræða forsetaframbjóðanda veitir Will.I.Am úr Black Eyed Peas innblástur
Lag fyrir Barack Obama
Skáldgyðjan Obama Will.I-
.Am heillaðist af ræðu Obama
og gerði úr henni lag.
Eitt vinsælasta lagið á
netinu um þessar mundir
er lagið Yes We Can eftir
tónlistarmanninn Will.I-
.Am. Lagið er byggt á
ræðu forsetaframbjóð-
andans Barack Obama.
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Þessi ræða hreyfði við mér og
snerti mig á þann veg sem ekkert
hefur gert í langan tíma.
Nú hefur verið tilkynnt um stærstu nöfnin sem spila á tónlistarhátíð-
inni Glastonbury, sem haldin er ár hvert í júní á Englandi. Rapparinn
Jay-Z og hljómsveitirnar Verve og Kings of Leon verða þessa heiðurs
aðnjótandi að enda kvöldin í ár, en samstarfsaðili hátíðarinnar, tíma-
ritið Q, greinir frá. Kings of Leon spila á Pýramídasviðinu föstudags-
kvöldið 27. júní, en þetta er í fyrsta sinn sem þeir enda kvöld þótt þeir
hafi leikið áður á hátíðinni. Jay-Z kemur með fríðu föruneyti frá
Bandaríkjunum og spilar á laugardagskvöld og breska sveitin Verve
lokar hátíðinni á sunnudagskvöldið.
Af öðrum atriðum sem eru staðfest eru Leonard Cohen, Neil Diamond
og hljómsveitin British Sea Power með þeim bitastæðari. re
Stærstu nöfnin staðfest